Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 48
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Við erum að halda hátíðina í áttunda
skipti núna,“ segir Kristín Schev-
ing, stjórnandi hátíðarinnar 700IS
Hreindýraland sem opnuð verður í
Norræna húsinu í dag. „Fókusinn er
á tilraunalistir og þá aðallega vídeó
og stuttar listrænar kvikmyndir
sem teygja sig meira í átt að mynd-
list en hefðbundnum kvikmyndum.“
Hvernig byrjaði þetta ævintýri?
„Ég byrjaði á þessu árið 2006 þegar
ég bjó á Eiðum og vann á Egils-
stöðum og þar höfum við sýnt sjö
sinnum. Hreindýralandið hefur þó
ekki eingöngu haldið sig á Egils-
stöðum heldur ferðast víða um
heim. Eftir sýninguna í Norræna
húsinu förum við til dæmis með
íslensku verkin til Orkneyja, Hong
Kong og Perú og okkur fannst að við
gætum alveg eins verið á ferðalagi
hér á Íslandi. “
Eiga bæði innlendir og erlendir
listamenn verk á sýningunni? „Já,
núna erum við með 130 listamenn
frá 30 löndum frá öllum heims-
hornum. Meðal þeirra sem koma
núna er par sem er með svipaða
hátíð á Orkneyjum og horfði svo-
lítið til Hreindýralandshátíðarinn-
ar þegar það byrjaði með sína hátíð
fyrir tveimur árum. Parið kemur
frá Hong Kong og Rússlandi en nýr
á Orkneyjum og það er í boði þess
sem ég er að fara með hluta af sýn-
ingunni til Hong Kong í apríl.“
Titillinn 700IS, er það ekki póst-
númerið á Egilsstöðum? „Jú, póst-
númerið er eitt af því sem maður
notar mikið þegar maður býr ein-
hvers staðar, ekki satt? Og verandi
úr Breiðholtinu fannst mér Egils-
staðir algjört ævintýraland með
hreindýr úti um allt. Þannig kom nú
titillinn til og þótti hálfgerð klisja
fyrir austan en hefur virkað vel í
markaðssetningunni erlendis.“
Sýningin í Norræna húsinu stend-
ur fram á sunnudag og upplýsingar
um atburðaskrá hennar má nálgast
á heimasíðunni 700.is.
fridrikab@frettabladid.is
Hreindýraland á ferð og fl ugi um heiminn
700IS Hreindýraland er yfi rskrift sýningar sem opnuð verður í Norræna húsinu í dag. Sýningin á uppruna sinn að rekja til Egilsstaða þar
sem sýnt hefur verið sjö sinnum en einnig hafa verk af henni ferðast vítt og breitt um heiminn.
Í HREINDÝRALANDI Kristín Scheving
og Dodda Maggý. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SELMA
BJÖRNS
REGÍNA
ÓSK
STEFANÍA
SVAVARS
ERNA
HRÖNN
B
ra
nd
en
b
ur
g
HARPA ELDBORG 09.02.13 HOF AKUREYRI 16.03.13
HEIÐURSTÓNLEIKAR
Dægurflugan kynnir heiðurstónleika ABBA í Hörpu og Hofi, Akureyri. Miðasala er á
midi.is, harpa.is, menningarhus.is eða í síma 528 5050 (Harpa) og 450 1000 (Hof).
Miðaverð í Hörpu 4.990 kr. - 9.990 kr. Miðaverð í Hofi 7.990 kr.
Viðskiptavinir Íslandsbanka fá 20% afslátt á ABBA ef greitt er með greiðslukorti frá Íslandsbanka eða Byr.
Viðskiptavinir á tilboðslista Vildarklúbbsins hafa fengið heimsendan afsláttarkóða í tölvupósti til nota í netsölu.
Einnig er hægt að nálgast afsláttarkóða í þjónustuveri bankans í síma 440 4000 eða í næsta útibúi bankans.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013
Fundir
18.00 Göngu-Hrólfur og Vita sport
halda kynningarfund á Hótel Hilton,
Suðurlandsbraut 2. Kynntar verða
gönguferðir á Gran Canaria, í Andalúsíu,
á Madeira, tvær gönguferðir í Toscana
og pílagrímsganga í fótspor Nikulásar
Bergssonar. Allir velkomnir.
Sýningar
18.00 Sýning Sædísar Bauer Halldórs-
dóttur gullsmiðs og Bjarna Sigurðs-
sonar keramikers opnar í Sædísi Gull-
smiðju, Geirsgötu 5b.
Hátíðir
19.30 Vetrarhátíðin Magnað myrkur
hefst í Reykjavík. Dagskrá hátíðarinnar
má finna á heimasíðunni vetrarhatid.is.
Opið hús
16.00 Vinnustofur verða opnar fyrir
gestum og gangandi á Akureyri.
Stofurnar sem um ræðir eru Listasafns-
húsið að Kaupvangsstræti 12, Flóra
Hafnarstræti 90 og vinnustofa að Ráð-
hústorgi 7.
Kvikmyndir
18.00 Kvikmyndin The City Dark verður
sýnd á Listasafni Reykjavíkur. Aðgangur
er ókeypis.
Bókmenntir
12.00 Kristín Steinsdóttir talar um
bók sína, Ljósu, í fyrirlestraröðinni
Hvernig verður bók til? í stofu HT105 á
Háskólatorgi. Allir eru velkomnir.
Tónlist
21.00 Spútnik-sveitin Samaris spilar
á Slippbarnum, Hótel Marina. Tón-
leikarnir eru hluti af tónleikaröðinni
Heineken Music í boði Heineken og
gogoyoko.com og aðgangur er ókeypis
í þeirra boði.
21.00 Hljómsveitin Camp Keighley
spilar kraftmikið rokk á Bar 11. Hljóm-
sveitin Stolið kemur einnig fram.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Spottarnir syngja og leika á Café
Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
21.00 Þungarokkspartý verðr haldið á
efri hæðinni á Dillon. Krummi í Mínus
sér um að þeyta skífum og mun spila
allt milli glam metals og black metals.
Aðgangur er ókeypis og bjór í boði fyrir
þá fyrstu.
22.00 Nóra, Oyama og Jón Þór halda
tónleika á Faktorý. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
22.00 Andrea Gylfadóttir og Eðvarð
Lárusson halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
Fyrirlestrar
17.15 Jón Björnsson sálfræðingur
og rithöfundur flytur fyrsta erindið
í erindaröð Bókasafns Kópavogs um
tímann. Aðgangur er ókeypis á meðan
húsrúm leyfir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.