Fréttablaðið - 07.02.2013, Page 49
FIMMTUDAGUR 7. febrúar 2013 | MENNING | 41
TÓNLIST ★★★★ ★
Kammersveit Reykja-
víkur, stjórnandi Ezequiel
Menalled
Myrkir músíkdagar
HARPA 3. FEBRÚAR
Hljóðið í kvikmyndahúsum kemur
ekki bara úr einni átt, heldur allt
um kring. Sumir tónlistarmenn
gefa líka út „surround“ plötur,
sem virka vel ef maður á heima-
bíó. Maður upplifir þetta miklu
sjaldnar á tónleikum, a.m.k. þeim
sem eru órafmagnaðir. Tónleikar
Kammer sveitar Reykjavíkur á
Myrkum músíkdögum í Norður-
ljósum í Hörpu voru því óvana-
legir. Velflest verkanna byggð-
ust á svona þrívídd. Hljómsveitin
var dreifð um salinn og á svölun-
um fyrir ofan. Það kom skemmti-
lega út.
Caballero de cuatro lunas fyrir
flautu og kammerhóp eftir Jónas
Tómasson var fyrst. Áshildur
Haraldsdóttir lék einleik og gerði
það með afbrigðum vel. Tónlist-
in var snörp og viðburðarík, með
glæsilegum endi.
MMXIII (2013) eftir Þráin
Hjálmarsson var næst. Ég man
ekki eftir að hafa heyrt tónlist
eftir hann áður. Verkið var inn-
hverft, dálítið sveimtónlistarlegt,
fallega unnið, fíngert og nostur-
samlegt.
… Quasi una fantasia … eftir
Györgi Kurtág var síðast fyrir
hlé. Það er fyrir píanó og mis-
munandi hljóðfærahópa. Tónlist-
in var sérlega öfgafull, innhverf
eða ofsafengin, kyrrstæð eða á
mikilli hreyfingu. Píanóhlut-
verkið var stórbrotið og hrika-
legt. Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir leysti það svo vel af hendi að
það var aðdáunarvert.
Eftir hlé var fyrst The
Unanswered Question eftir
Charles Ives. Það er rúmlega
hundrað ára gamalt tónverk, langt
á undan sinni samtíð. Eiríkur Örn
Pálsson lék afar fallega á trompet-
inn, og hinir hljóðfæraleikararnir
spiluðu líka prýðilega. Tilkomu-
mikið var að heyra í strengja-
kvartett uppi á svölum langt í
burtu. Hann spilaði eitthvað allt
annað. Samt rímaði það fullkom-
lega við trompeteinleikinn.
Næst á dagskrá var Phantasma-
goria fyrir píanó, kammerhóp og
rafhljóð eftir Steingrím Rohloff.
Tinna Þorsteinsdóttir var þar
einleikarinn og spilaði af krafti,
nákvæmni og fagmennsku. Tón-
listin sjálf var einnig athyglis-
verð, mikið gekk á, atburðarásin
var hröð. Uppbyggingin var sér-
lega vel ígrunduð og spennu-
þrungin. Stígandin var markviss
og hápunkturinn brjálæðislegur.
Kannski var atburðarrásin þó
aðeins OF hröð. Steingrímur hefði
mátt slaka stundum á og leyfa
hlustandanum að dvelja lengur
við tiltekin augnablik. Það hefði
gefið tónlistinni meiri dýpt.
Einmitt þetta einkenndi hið
skemmtilega lokaverk eftir Alej-
andro Castaños, sem bar hið sér-
kennilega nafn [+]. Þar var líka
mikill kraftur og læti, en maður
fékk smá næði til að meðtaka
hvað gekk á hverju sinni áður en
næsti kafli hófst. Það var magn-
aður lokahnykkur á tónleikunum,
sem í heild voru líflegur endir á
frábærri tónlistarhátíð. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Sérlega vandaðir,
metnaðarfullir tónleikar.
Kammersveit
í surround
Tvær yfirlitssýningar hefja göngu
sína í Listasafni Íslands á morgun.
Sú fyrri nefnist Gamlar gersem-
ar en þar er dreginn fram hluti af
verkum í eigu safnsins sem sjald-
an koma fyrir augu almennings
eftir erlenda og innlenda lista-
menn sem létust um miðbik síðari
heimsstyrjaldar. Sýningin er hald-
in í Sal eitt og tvö á safninu.
Erlendir áhrifavaldar nefnist
hin sýningin. Tíundi hluti safn-
eignar Listasafns Íslands er eftir
erlenda listamenn, til dæmis frá
Norðurlöndunum, meginlandi
Evrópu, Bretlandseyjum, Norður-
Ameríku og Austurlöndum. Á sýn-
ingunni er staldrað við verk gerð
eftir heimsstyrjöldina síðari og
áttu þau hljómgrunn meðal inn-
lendra listunnenda. Brugðið er
upp úrvali þessara verka, þrívíðra
í sal þrjú og tvívíðra, málverka og
ljósmynda, í sal fjögur.
Báðar sýningarnar standa til 5.
maí.
Tvær sýningar opnaðar í Listasafni Íslands
Gamlar gersemar og verk eft ir erlenda áhrifavalda í eigu safnsins dregin fram á tveimur yfi rlitssýningum
LISTASAFN ÍSLANDS Á sýningunni Gamlar gersemar má sjá verk eftir listamenn
sem létust um miðbik síðari heimsstyrjaldar en á sýningunni Erlendir áhrifavaldar
eru verk frá því eftir stríð.
Save the Children á Íslandi