Fréttablaðið - 07.02.2013, Page 50
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
Fimmtánda hljóðversplata Nick
Cave & the Bad Seeds, Push the
Sky Away, kemur út 18. febrúar.
Þetta er fyrsta plata hljómsveitar-
innar án stofnmeðlimsins Micks
Harvey, sem sagði skilið við Cave
og félaga fyrir þremur árum. Þar
með er forsprakkinn Nick Cave
orðinn eini upphaflegi meðlimur
The Bad Seeds sem er enn í band-
inu en á þessu ári eru þrjátíu ár
liðin frá stofnun þess.
Eftir að hafa fylgt eftir síðustu
plötu, Dig Lazarus, Dig!!! sem kom
út 2008, lagðist hljómsveitin í híði
á meðan Cave sneri sér að öðrum
hugðarefnum. Önnur plata hliðar-
sveitar hans, Grinderman, kom út
2010 og í fyrra kom út glæpamynd-
in Lawless sem Cave samdi hand-
ritið að og bjó einnig til tónlistina
við í samstarfi við Warren Ellis,
félaga sinn úr The Bad Seeds og
Grinderman.
Push the Sky Away þykir rólegri
og hlýlegri en Dig Lazarus, Dig!!!
en á þeirri plötu var rokkið áber-
andi. Smáskífulögin tvö, We No
Who U R og Jubilee Street bera
vott um það og minna á plöturnar
Boatman’s Call og No More Shall
We Part.
Upptökur fóru fram í hljóð-
verinu La Fabrique á gömlum
herragarði í suðurhluta Frakk-
lands og annaðist Nick Launay,
sem hefur unnið með Cave í mörg
ár, upptökustjórn. „Ég mæti inn
í hljóðverið með slatta af ómót-
uðum hugmyndum. Það eru The
Bad Seeds sem breyta þeim í eitt-
hvað töfrandi,“ sagði hinn 55 ára
Cave, sem segir nýju plötuna hafa
yfir óskilgreindri fegurð að ráða.
„Við erum búnir að gera einhverj-
ar fimmtán plötur og við ættum
eiginlega ekki að vera að gera
áhugaverðar eða merkilegar plötur
svona seint á ferlinum. Þess vegna
erum við frekar stoltir,“ sagði
hann við tímaritið Uncut.
Push the Sky Away kemur út í
viðhafnarútgáfu, meðfram hinum
hefðbundnu, eða í harðspjaldabók
með 32 blaðsíðum með handskrif-
uðum textum og myndum. Mynd-
diskur fylgir einnig útgáfunni með
myndefni frá listamönnunum Iain
Forysth og Jane Pollard.
Nick Cave & the Bad Seeds
ætla að fylgja Push the Sky Away
eftir á heldur óhefðbundinn hátt.
Auk þess að fara í tónleikaferð
um heiminn spilar sveitin á fjór-
um tónleikum í fjórum mismun-
andi borgum, London, París, Berl-
ín og Los Angeles, dagana 10. til
18. febrúar. Á hverjum tónleikum
spilar sveitin ásamt strengjasveit
og kór, auk þess sem sýnd verður
stuttmynd um gerð plötunnar.
freyr@frettabladid.is
Óskilgreind fegurð
Nick Cave & the Bad Seeds sendir frá sér sína fi mmtándu hljóðversplötu, Push
the Sky Away, í næstu viku. Hljómsveitin fagnar 30 ára afmæli sínu á þessu ári.
Í spilaranum
My Bloody Valentine
- MBV
Við tónlistarfíklar þurfum alltaf að vera að hlusta á eitthvað nýtt. Aðgengi
að nýrri tónlist hefur aldrei verið betra. Það er t.d. hægt að streyma sig í
hel (afsakið orðbragðið) á tónlistarsíðum eins og gogoyoko og Tónlist.is og
eins er hægt að hala niður út í hið óendanlega.
Leitin að einhverju sem maður
hefur ekki áður heyrt er hins
vegar ekkert bundin við nýja
listamenn. Það er ekki síður
spennandi að grúska í fortíðinni.
Síðustu ár hafa sprottið upp
endurútgáfufyrirtæki sem
sérhæfa sig í tónlist sem er
orðin meira en 50 ára og þar
með komin úr höfundarrétti.
Eitt af þeim betri er Fantastic
Voyage. Útgáfur þess eru mjög
vel unnar: Tónlistin almennilega
hljóðblönduð og veglegur
bæklingur fylgir hverri plötu.
Í fyrra gaf FV út tveggja diska
pakka tileinkaðan bandaríska
ryþmablússöngvaranum og
píanóleikaranum Johnny Ace.
Ace var fæddur í Memphis í júní
1929. Hann var sjálfmenntaður
píanóleikari og hóf ferilinn í
hljómsveit BB King árið 1949.
Þremur árum seinna gerði hann samning við Duke-útgáfufyrirtækið og
sendi frá sér lagið My Song, sem náði toppi ryþmablúslistans. Eftir það
kom röð af smáskífum næstu tvö árin en ferillinn hlaut snöggan endi 25.
desember 1954. Ace hafði fengið þá hugmynd í fimm mínútna pásu bak-
sviðs á tónleikum, að fara í rússneska rúllettu. Hann skaut sig í hausinn í
pásunni, en augnabliki á undan hafði hann beint byssunni að kærustunni
og hleypt af. Hún var heppnari …
Á safnplötunni Ace‘s Wild eru öll þau lög sem Johnny hljóðritaði á
ferlinum, en að auki lög sem hann lék inn á sem sessjón-leikari, m.a.
með listamönnum eins og Bobby Bland, Earl Forest og BB King. Flott
ryþmablús tónlist og fín útgáfa.
Einn af þeim villtari
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
STUTTUR FERILL Hryggilegur dauðdagi
batt enda á feril Johnny Ace.
FIMMTÁNDA PLATAN Nick Cave og félagar í The Bad Seeds gefa út sína fimmtándu hljóðversplötu í næstu viku.
NORDIPCHOTOS/GETTY
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Ásgeir Trausti Nýfallið regn
2 Valdimar Yfir borgina
3 Moses Hightower Háa C
4 Retro Stefson Julia
5 Bruno Mars Locked Out of Heaven
6 Frank Ocean Lost
7 Justin Timberlake / Jay-Z Suit and Tie
8 Jónas Sigurðsson Fortíðarþrá
9 Asaf Avidan One Day
10 Rihanna / Mikky Ekko Stay
Sæti Flytjandi Plata
1 Ýmsir Söngvakeppnin 2013
2 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
3 Retro Stefson Retro Stefson
4 Moses Hightower Önnur Mósebók
5 Valdimar Um stund
6 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf
7 Hjaltalín Enter 4
8 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
9 Raggi Bjarna Dúettar
10 Skálmöld Börn Loka
31.1.2013 ➜ 6.2.2013
ÁSGEIR TRAUSTI SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPSINS 2013
Bloodgroup -
Tracing Echoes
Eels - Wonderful,
Glorious
hlustið
trúið
hlýðið
HARMAGEDDON