Fréttablaðið - 07.02.2013, Page 58
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
JEPPADEKK
ÚRSLIT ÚRSLIT
SPORT
SÍMABIKAR KVENNA Í HANDBOLTA
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT
GRÓTTA - HK 25-23 (14-8)
Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 8,
Laufey Ásta Guðmundsdóttir 5, Arndís María
Erlingsdóttir 4, Harpa Baldursdóttir 3, Unnur
Ómarsdóttir 3, Þórunn Friðriksdóttir 1, Eva Björk
Davíðsdóttir 1.
Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 9, Sóley
Ívarsdóttir 5, Heiðrún Björk Helgadóttir 4,
Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Valgerður Ýr
Þorsteinsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1.
Undanúrslitaleikirnir fara báðir fram í
Laugardalshöllinni laugardaginn 9. mars en í
pottinum verða Fram, ÍBV, Valur og Grótta.
DOMINOS KVENNA Í KÖRFU
KEFLAVÍK - VALUR 78-97 (42-48)
Keflavík: Jessica Ann Jenkins 21, Sara Rún
Hinriksdóttir 18, Birna Valgarðsdóttir 16 (11
frák.), Pálína Gunnlaugsdóttir 10 (5 frák./5
stoðs./5 stolnir), Bryndís Guðmundsdóttir 7,
Ingunn Embla Kristínardóttir 6.
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 31, Jaleesa
Butler 24 (16 frák./6 stoðs./7 varin), Unnur Lára
Ásgeirsdóttir 15, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 11,
Hallveig Jónsdóttir 9, Guðbjörg Sverrisdóttir 7.
KR - HAUKAR 73-54 (34-21)
KR: Shannon McCallum 38 (14 frák./9 stolnir),
Helga Einarsdóttir 15, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
14 (9 frák./5 stoðs.), Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
4, Björg Guðrún Einarsdóttir 2.
Haukar: Siarre Evans 20 (31 frák.), Gunnhildur
Gunnarsdóttir 12, Margrét Rósa Hálfdanardóttir
11, Dagbjört Samúelsdóttir 4, María Lind
Sigurðardóttir 3, Auður Íris Ólafsdóttir 2, Jóhanna
Björk Sveinsdóttir 2.
NJARÐVÍK - SNÆFELL 61-78 (28-43)
Stigahæstar: Lele Hardy 35 (16 frák.), Svava Ósk
Stefánsdóttir 7, Ásdís Vala Freysdóttir 6 - Kieraah
Marlow 24 (15 frák.), Hildur Björg Kjartansdóttir
16, Berglind Gunnarsdóttir 13, Rósa Indriðadóttir
8, Hildur Sigurðardóttir 6 (13 frák./5 stoðs.), Alda
Leif Jónsdóttir 6, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5.
GRINDAVÍK - FJÖLNIR 90-64 (44-33)
Stigahæstar: Crystal Smith 24 (10 frák./6 stoðs.),
Petrúnella Skúladóttir 23 (8 frák./5 stoðs./5
stolnir), Berglind Anna Magnúsdóttir 12 - Bergdís
Ragnarsdóttir 21, Britney Jones 19, Fanney Lind
Guðmundsdóttir 11 (11 frák.).
Stig liða í deildinni: Keflavík 36, Snæfell
32, Valur 24, KR 24, Haukar 16, Grindavík 12,
Njarðvík 10, Fjölnir 6
VINÁTTULANDSLEIKIR Í FÓTBOLTA
ÍSLAND- RÚSSLAND 0-2
Mörk: 0-1 Roman Shirokov (43.), 0-2 Olge Shatov
(65.)
Tölfræðin í leiknum:
Skot (á mark): 3-10 (0-4) Varin skot: Hannes 2,
Akinfeev 0. Horn: 5-5.
Aukaspyrnur fengnar: 8-15
Rangstöður: 1-5
Lið Íslands: Hannes Þór Halldórsson - Birkir Már
Sævarssonm, Hjálmar Jónsson, Ragnar Sigurðsson,
Ari Freyr Skúlason - Eiður Smári Guðjohnsen
(79., Helgi Valur Daníelsson), Emil Hallfreðsson,
Birkir Bjarnason, Gylfi Þór Sigurðsson - Kolbeinn
Sigþórsson (60., Jóhann Berg Guðmundsson),
Alfreð Finnbogason (75., Arnór Smárason).
KÝPUR* - SERBÍA 1-3
1-0 Constantinos Makridis (19.), 1-1 Dusan Tadić
(33.), 1-2 Tadić (47.), 1-3 Dusan Basta (70.).
SLÓVENÍA* - BOSNÍA 0-3
0-1 Vedad Ibisevic (33.), 0-2 Miralem Pjanić
(41.), 0-3 Muamer Svraka (80.).
NOREGUR* - ÚKRAÍNA 0-2
0-1 Mykola Morozyuk (17.), 0-2 Andriy
Yarmolenko (42.).
ALBANÍA* - GEORGÍA 1-2
GRIKKLAND - SVISS* 0-0
SPÁNN - ÚRÚGVÆ 3-1
1-0 Cesc Fabregas (16.), 1-1 Cristián Rodríguez
(32.), 2-1 Pedro (51.), 3-1 Pedro (74.).
MAKEDÓNÍA - DANMÖRK 3-0
1-0 Goran Pandev (8.), 2-0 Agim Ibraimi (17.),
3-0 Nikolce Noveski (24.).
ENGLAND - BRASILÍA 2-1
1-0 Wayne Rooney (26.), 1-1 Fred (49.), 2-1
Frank Lampard (60.). Fyrsti sigur Englendinga á
Brasilíumönnum síðan árið 1990.
HOLLAND - ÍTALÍA 1-1
1-0 Jeremain Lens (33.), 1-1 Marco Verratti
(90.+1).
WALES - AUSTURRÍKI 2-1
1-0 Gareth Bale (21.), 2-0 Sam Vokes (52.), 2-1
Marc Janko (75.).
BELGÍA - SLÓVAKÍA 2-1
1-0 Eden Hazard (10.), 1-1 Richard Lásik (87.),
2-1 Nicolas Lombaerts (90.)
SVÍÞJÓÐ - ARGENTÍNA 2-3
0-1 Sjálfsmark Mikael Lustig (3.), 1-1 Jonas
Olsson (17.), 1-2 Sergio Agüero (19.), 1-3
Gonzalo Higuaín (23.), 2-3 Rasmus Elm (90.)
FRAKKLAND - ÞÝSKALAND 1-2
1-0 Matthieu Valbuena (44.), 1-1 Thomas Müller
(51.), 1-2 Sami Khedira (74.).
SKOTLAND - EISTLAND 1-0
1-0 Charlie Mulgrew (39.). Fyrsti leikur Skota
undir stjórn Gordon Strachan.
*MEÐ ÍSLANDI Í RIÐLI Í UNDANK. HM
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza hefja
í kvöld leik í keppni um spænska Konungsbikarinn
í körfubolta en þangað komast bara átta efstu lið
spænsku deildarinnar. Jón Arnór er á sínu fimmta
tímabili á Spáni en þetta er í fyrsta sinn sem hann
tekur þátt í þessari sérstöku bikarkeppni sem er
kláruð á fjórum dögum. CAI Zaragoza mætir liði
Caja Laboral í 8 liða úrslitunum í kvöld. Caja er í 2.
sæti deildarinnar en CAI er í 7. sæti. Sigurvegari
úr þessum leik mætir sigurvegaranum úr leik
Real Madrid (1. sæti) og Barcelona (4. sæti) sem
fer einnig fram í kvöld. Undanúrslitaleikurinn fer
fram á laugardaginn og úrslitaleikurinn er síðan
spilaður daginn eftir.
Jón Arnór keppir um Konungs-
bikarinn í fyrsta sinn Kolbeinn Sigþórsson bar fyrirliðaband íslenska landsliðsins í fyrsta sinn á
móti Rússum í gær, aðeins 22 ára, 10 mánaða og 23 daga gamall. Hann er
yngri en Aron Einar Gunnarsson þegar hann fékk fyrsta fyrirliðabandið á
móti Frökkum í fyrra, þá bara 23 ára, 1 mánaða og 5 daga. Aron Einar gat
ekki tekið þátt í leiknum í gær vegna meiðsla.
Þegar Aron Einar fékk fyrirliðabandið frá Lars Lagerbäck í lok maí í
fyrra var hann yngsti landsliðsfyrirliðinn síðan Ásgeir Sigurvinsson bar
fyrirliða bandið í leikjum á móti Hollandi og Belgíu haustið 1977, þá
aðeins 22 ára og fjögurra mánaða. Ásgeir var þarna fyrirliði landsliðsins
í annað og þriðja sinn, en tveimur árum áður hafði hann sett metið, þá
aðeins 20 ára og fjögurra mánaða. Lars Lagerbäck er greinilega óhræddur að
láta unga leikmenn taka við fyrirliðabandinu.
Eiður Smári Guðjohnsen, sem lék með landsliðinu á ný í gær, bar fyrst
fyrirliðaband landsliðsins í sigurleik á móti Færeyjum 7. júní 2003, þá 24 ára,
8 mánaða og 23 daga.
Kolbeinn yngsti fyrirliðinn síðan 1977
Íslenska 21 árs landsliðið tapaði
3-0 á móti Wales í vináttulandsleik
í Wales í gær. Wales var sterkara
liðið í leiknum en skoraði ekki
mörkin sín fyrr en á síðustu ellefu
mínútum leiksins. Þetta er áttunda
tap íslenska 21 árs liðsins í röð undir
stjórn Eyjólfs Sverrissonar því liðið
tapaði sjö síðustu leikjum sínum
í síðustu undankeppni. Markatala
íslenska liðsins í þessum átta leikjum
er 2-23 mótherjunum í hag.
Arnór Ingvi Traustason fékk besta
færi íslenska liðsins í leiknum þegar
hann slapp í gegn í stöðunni 0-0.
Markatalan er 2-23
FÓTBOLTI Árið hefði getað byrj-
að betur fyrir Lars Lagerbäck
og lærisveina hans í íslenska
landsliðinu. Eftir ágætt fyrsta ár
hans í starfi sem einkenndist af
almennri bjartsýni í garð liðsins í
fyrsta sinn í langan tíma var fátt
sem gladdi augað í 2-0 tapi Íslands
fyrir Rússlandi í æfingaleik í gær.
Lagerbäck tefldi þó djarft og
bauð upp á ógnarsterka sóknar-
línu. Eiður Smári Guðjohnsen
og Gylfi Þór Sigurðsson voru á
köntunum og frammi voru þeir
Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð
Finnbogason – báðir miklir marka-
hrókar.
En því miður náðu þessir fjór-
ir ekki að komast í gegnum vel
skipulagðan rússneskan varnar-
múr í gær. Rússarnir voru þolin-
móðir, fóru sér að engu óðslegu og
biðu þess að íslenska vörnin myndi
sýna bresti – sem og varð raunin.
Lagerbäck sjálfur hefur bent á að
helsta vandamál íslenska landsliðs-
ins sé varnarleikurinn og að efni-
viðurinn sé ekki jafn mikill þar og í
sóknarþenkjandi leikmönnum. Það
sýndi sig í gær enda varnarleikur
Íslands heldur vandræðalegur í
báðum mörkum Rússa.
Rússneska liðið, sem var ein-
göngu skipað leikmönnum úr
deildinni heima, spilaði afar skyn-
samlega í leiknum og hélt íslensku
sóknarmönnunum algerlega niðri
frá fyrstu mínútu.
„Þetta var ekki nógu gott hjá
okkur í dag,“ sagði Kolbeinn við
Fréttablaðið eftir leik í gær, en
hann var fyrirliði í fjarveru Arons
Einars Gunnarssonar. „Við getum
þó huggað okkur við að við spil-
uðum ágætan varnarleik í fyrri
hálfleik en Rússarnir voru þolin-
móðir og nýttu sín færi vel. Þeir
voru mjög yfirvegaðir og gerðu
það sem þeir þurftu.“
Ísland fékk þó nokkur færi.
Eiður komst í góða skotstöðu en
hitti boltann illa og þá fékk Gylfi
aukaspyrnu á hættulegum stað en
náði ekki að lyfta boltanum yfir
vegginn. Annars kom skammar-
lega lítið úr þeim föstu leik atriðum
sem Ísland þó fékk í leiknum. Kol-
beinn segir að sóknarleikurinn
hafi valdið sér vonbrigðum.
„Það var erfitt að skapa eitthvað
af viti,“ sagði hann. „Við viljum fá
boltann í lappirnar og spila okkar
leik en þeir náðu að loka vel á það.
Það voru vonbrigði að ná ekki að
skapa fleiri færi og spila betur.
Þetta var þó æfingaleikur en við
verðum að gera betur en þetta ef
við ætlum okkur að vinna fleiri
leiki í ár.“ eirikur@frettabladid.is
Misheppnuð tilraun
Ísland tapaði fyrir Rússlandi, 2-0, í vináttulandsleik á Marbella á Spáni í gærkvöld.
Liðsuppstilling Íslands var sókndjörf en bar lítinn sem engan árangur.
RÚSSARNIR STERKIR Roman Shirokov fagnar hér marki með félögum sínum en hann átti þátt í báðum mörkum Rússa. MYND/AFP