Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 62
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54 „Uppáhaldsdrykkurinn minn er viskí vegna þess að það vermir mann eins og arineldur á góðu kvöldi.“ Árni Kristjánsson, leikstjóri og leikrita- höfundur. „Ég er búinn að henda gítar- nöglinni,“ segir tónlistar maðurinn Birgir Örn Steinarsson, oftast kenndur við Maus. Hann spilar á sínum fyrstu sóló- tónleikum í rúm sex ár á Gamla Gauknum í kvöld ásamt nýrri hljóm- sveit. Einnig koma Árstíðir fram. Tónlistin er þjóðlagaskotin en með skírskotanir í popp, tangó, vals og polka. Birgir hefur lítið haft sig í frammi síðan hann starfrækti hljómsveitina Krónu fyrir nokkrum árum. Hann stekkur núna út í djúpu laugina eftir að hafa eytt tveimur árum í að læra betur á gítarinn sinn. Núna kann hann listina að fingraplokka. „Ég ákvað að vera ekki að trana mér fram fyrr en mér fyndist ég hafa upp á eitthvað að bjóða og ég gæti staðið einn og óstuddur. Ég tók líka ákvörðun um að spila ekki nema ég væri beðinn um það og það hafði ekki gerst lengi fyrr en núna fyrir áramót,“ segir Birgir, sem tók þátt í tónleikaröðinni Vinnslunni. „Ég „koksaði“ alveg í byrjun og stamaði og hikstaði. Síðan komst ég á flug og komst að því að mér fyndist þetta enn þá skemmtilegt,“ segir hann en ný sólóplata er væntanleg í sumar. Birgir gaf út sína fyrstu sóló- plötu, Id, árið 2006 á meðan hann var búsettur í London. Upptöku- stjóri var Tim Simenon sem hafði unnið með Depeche Mode og Sinéad O´Connor. Allt kom fyrir ekki því platan fékk miðlungsgóða dóma og spilaði þar kannski inn í að hún var undir áhrifum raftónlistar og allt öðruvísi en það sem hann hafði gert með Maus. Hann semur núna lög ef þau koma til hans á eðlislægan hátt án þess að vera þvinguð fram. „Ég er búinn að vera í þeirri frábæru aðstöðu að það er enginn að bíða eftir neinu, sem þýðir að það eru engar væntingar. Það gefur mér færi á að koma fólki á óvart,“ segir popparinn og held- ur áfram: „Áður fyrr bjó maður kannski til lag eða plötu og um leið og maður kláraði lagið var maður byrjaður að taka við Íslensku tón- listarverðlaununum í hausnum. Ef ég horfi til baka get ég ekki heiðar- lega sagt að ég hafi verið að gera tónlistina bara ánægjunnar vegna. Ef þú ert ekki að semja tónlistina frá hjartanu þá heyrir fólk það. Það er kannski stærsti galli síðustu plötu.“ Birgir einbeitir sér núna að sál- fræðinámi sínu við Háskóla Íslands og fjölskyldunni sinni. Einnig er hann að vinna með geðfötluðu fólki í Reykjavík í tengslum við nám sitt og þykir það mjög gaman. Að auki skrifaði hann handrit myndarinnar Vonarstræti ásamt leik stjóranum Baldvini Z og hefjast tökur 20. febrúar. Aðspurður segist hann vera búinn að þroskast mikið, sérstak- lega eftir að hann varð fjölskyldu- maður og varð að „kippa höfðinu út úr rassgatinu á sjálfum sér“. Nýju lögin hans eru öll á íslensku og koma aðeins út á Íslandi. „Ég er ekk- ert á leiðinni neitt. Mig langar bara að vera hér og njóta þess að semja íslenska texta aftur.“ freyr@frettabladid.is BIRGIR ÖRN STEINARSSON Biggi spilar á Gamla Gauknum í kvöld ásamt nýrri hljómsveit. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DRYKKURINN „Mig langaði að setja rætur mínar á mig, ef svo má segja, og fannst frábært að geta sameinað Svíþjóð og Patreksfjörð í einni mynd. Ég bjó fyrstu ár ævi minnar í Sví- þjóð og ber enn sterkar taugar til landsins. Hver hefur ekki gaman af munntóbaki, íshokkíi og léleg- um bröndurum?“ segir tónlistar- maðurinn Smári Tarfur Jósepsson, sem leikur með hljómsveitinni Ylju um þessar mundir, um nýtt húðflúr sem hann fékk sér á mánudag. Húðflúrið er virðingarvottur Smára við æskuslóðirnar og er hannað af listakonunni Kristjönu Elísabetu Sigurðardóttur í sam- starfi við húðflúrarann Gunnar Sigurð Valdimarsson, sem er jafn- framt góðkunningi Smára. „Við Gunni erum vinir til margra ára og að koma til hans í flúr er sér- stök stemning fyrir mig. Við dett- um í gott spjall og förum út um víðan völl. Áður en ég veit af er ég staðinn upp með nýtt húðflúr og skil ekki neitt í neinu.“ Húðflúrið er fiðrildi í sænskum litum og lýsir Smári því á eftir- farandi hátt: „Þetta er Vestfjarða- kjálkinn, réttsælis og svo spegl- aður, inni í fiðrildi. Þannig að kjálkinn myndar í raun vængina. Minningar mínar frá Svíþjóð eru mjög tengdar fiðrildum.“ Húðflúrið er staðsett á vinstri framhandlegg Smára og er það ellefta sem hann fær sér. Smári kveðst vera með ákveðið þema á hvorum handlegg fyrir sig; á þeim hægri er tónlistarmaðurinn Smári og á þeim vinstri er persónu leikinn. „Á vinstri handlegg er ég með sjálfsmynd af mér, mynd af litlum Smára og sitthvað fleira. Á vinstri handlegg er ég sem sagt mjög sjálf- miðaður,“ segir hann að lokum og hlær. - sm Virðingarvottur við æskuslóðirnar Smári Tarfur Jósepsson er með ellefu húðfl úr. Nýtt fl úr bættist við á mánudag. ÆSKUSLÓÐIRNAR Á HANDLEGGINN Smári Tarfur Jósepsson er kominn með einn eitt húðflúrið. Í þetta sinn kaus hann að flúra á sig virðingarvott við æskuslóðirnar. MYND/KRISTJANA ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR Bókmenntaborgin Reykjavík og bókaforlagið Rúnatýr bjóða upp á hrollvekjandi dagskrá í Bíó Para- dís í kvöld í tilefni Vetrar hátíðar í Reykjavík. Dagskráin hefst klukkan 20.30 og lýkur með sýn- ingu á kvikmyndinni Nosferatu eftir F.W. Murnau. Kvöldið nefnist Með blóði vætt- an góm og meðal þeirra sem fram koma eru Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Þorsteinn Mar, Jóhann Þórsson og Einar Leif Nielsen, sem les upp úr nýútkom- inni vísindaskáldsögu sinni. Að bókmenntadagskránni lokinni hefst kvikmyndasýningin og kostar ekkert inn á hana. Blóð í Paradís Lærði fi ngraplokk og er laus við væntingar Birgir Örn Steinarsson heldur sína fyrstu sólótónleika á Íslandi í rúm sex ár í kvöld. Hann vonast til að koma fólki á óvart enda laus við allar væntingar. Birgir hefur stundum verið gagnrýndur fyrir söngrödd sína og eitt sinn sagði Bubbi Morthens hann lélegan söngvara eftir að Birgir hafði skrifað umdeildan pistil um rokkkónginn er hann ritstýrði tímaritinu Monitor. Ummælin fóru á forsíðu DV. „Ég held að ég sé eini íslenski söngvarinn sem hefur endað á forsíðu blaðanna út af söngrödd sinni. Við erum með marga aðra söngvara á Íslandi sem eru með skrítnar raddir, eins og Megas og Björn Jörund, en ég hef einhvern veginn lent í þessu og ég er ekki viss um að það sé endilega sanngjarnt. Söngröddin mín böggar mig ekki neitt,“ segir Birgir, sem er búinn að sættast við Bubba. Það var Birgir sjálfur sem sendi pistilinn sinn á bloggsíðu Bubba í von um að hann tjáði sig um hann og svo sendi hann ummæli Bubba á DV. Þannig vildi hann kynna Monitor betur en segja má að þetta „plott“ hafi sprungið í andlitinu á honum. Búinn að sættast við Bubba Morthens NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Einstaklega raunveruleg stórslysamynd, sem lætur engan ósnortinn“ „Ein af betri myndum ársins 2012.“ Mbl. Komin í bíó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.