Fréttablaðið - 07.02.2013, Page 64
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
Ný lög á Sónar-hátíð
Daníel Ágúst og félagar í GusGus
ætla að frumflytja ný lög á tónleikum
sínum á Sónar-hátíðinni sem verður
haldin í Hörpu um miðjan febrúar.
Þessum tíðindum hljóta aðdáendur
hljómsveitarinnar að fagna en tvö
ár eru liðin síðan áttunda
plata þeirra, Arabian
Horse, leit dagsins
ljós við mjög góðar
undirtektir. GusGus
hefur verið í hljóð-
veri að taka upp nýtt
efni að undanförnu
en óvíst er hvenær
það kemur út. Búið er
að bæta við miðum á
Sónar-hátíðina eftir
að þeir seldust
upp hér á landi og
fara þeir í sölu í
dag á Midi.is og
Harpa.is.
1 Egill vill þrjár milljónir í bætur
2 Ungmenni sögð fl ýja ágengni
fíkniefna sala
3 Misbýður yfi rlýsing stjórnar Stúdenta-
ráðs í nótt
4 Flugfreyja gaf farþegum fi ngurinn–
„Þetta er ekki höndin mín”
5 „Maður spyr sig hvort þeir hafi eitt-
hvað að fela“
6 Hæstiréttur gerði alvarleg mistök–
Hvernig getur þetta verið skýrara?
Tapaði keppni
um sjálfan sig
Allsérstök spurningakeppni fór fram
á skemmtistaðnum Dollý á þriðju-
dagskvöld. Keppnin var þemaskipt
að vanda, og að þessu sinni var eitt
þemað Björn Jón Bragason, fyrrver-
andi formaður Frjálshyggjufélagsins
og talsmaður verslunareigenda við
Laugaveg. Sá hluti keppninnar gekk
mikið til út á að hæðast að Birni Jóni
og eitt liðið hafði meira að segja
mætt með Björns Jóns Bragasonar-
grímur á keppnina. Viðstöddum
til mikillar skemmt-
unar lét Björn Jón
sjálfur sjá sig á
keppninni og
tók þátt. Hann
vann reyndar ekki
heldur lenti í öðru
sæti, en afhenti
grímuklædda
liðinu viðurkenn-
ingu fyrir bestu
búninga að leik
loknum.
- fb, sh
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
ath.
opið
sunnu-
dag
af öllum
vörum
afsláttur
40-
70%
Troðfull
merkjavöru!
verslun af