Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 2

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 2
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜12 SKOÐUN 16➜20 HELGIN 24➜50 SPORT 72➜73 MENNING 60➜78 BIKARÚRSLIT Í KÖRFUBOLTA 72 Sérfræðingar fara yfi r stórleiki dagsins í Laugardalshöllinni. STÓR STUND HJÁ GUNNARI 73 Gunnar Nelson mætir Jorge Santiago í Lundúnum í dag. Jóga Golf Andlegi hluti golfsins er ekki síður mikilvægur en sá líkamlegi til þess að sem bestur árangur náist. Skráning í síma 772 4950 eða gudjon@sveinsson.is www.sveinsson.is Guðjón Sveinsson jógakennari verður með námskeið í golf jóga sem hefst 21. febrúar næstkomandi, kl 18:00 og verður haldið í Fram-heimilinu, Safamýri Ég get af eigin reynslu heilshugar mælt með þessu námskeiði Sveinn Jónsson Ég náði upp meiri styrk og jafnvægi, lærði árangurs ríkari öndun, réttara hugarfar og betri einbeitingu eftir námskeiðið. Það að stunda GOLF-YOGA tel ég að hafi bætt mig í golfi. Ragnar Gíslason Þetta námskeið gaf mér mjög mikið, bæði hvað varðar styrkingu líkamans og slökun. Það gaf mér líka nýja sýn á markmiðasetningu og aukna ánægju af golfleik  sem síðan leiddi til lækkandi forgjafar. Mæli hiklaust með því. Kolbrún Stefánsdóttir SAMFÉLAGSMÁL Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins á vefnum Vísir. is (visir.is/samfelagsverdlaun) en verðlaunin verða veitt í áttunda sinn í apríl. Sem fyrr er hægt að til- nefna til verðlaunanna í fimm flokkum. Í flokknum Hvunndagshetja koma til greina ein- staklingar sem hafa sýnt óeigingirni í tengslum við einn atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma. Í flokknum Frá kynslóð til kyn slóðar er leitað að kennurum eða öðrum uppfræðurum. Þá koma einnig til greina félagasamtök sem sinna börn- um af metnaði. Til atlögu gegn fordómum er flokkur einstaklinga eða félagasamtaka sem með starfi sínu stuðla að því að draga úr fordómum í sam félaginu. Heiðursverðlaun eru veitt fyrir ævistarf sem stuðlað hefur að betra samfélagi. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt félaga- samtökum sem vinna framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og hafa lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra. Í þessum flokki nema verðlaunin 1,2 milljónum króna. „Nú óskum við eftir því að lesendur okkar líti í kringum sig í leit að góðum verkum því þau eru sannar lega til víða. Því fleiri tilnefningar, þeim mun betra og meiri fjölbreytni,“ segir Steinunn Stefáns- dóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, en hún stýr- ir starfi dómnefndar sem tekur við og velur úr inn- sendum tilnefningum. - aþ Opnað fyrir tilnefningar til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins: Lýst eftir góðum verkum STÓR LOFORÐ VÍSA OFT Á MIKIL SVIK 16 Þorsteinn Pálsson um kosningaloforð. ORÐSPOR OG TRAUST ENDURHEIMT 18 Jóhanna Sigurðardóttir um jafnaðarstjórn. ENN UM MISSKILNING 20 Gylfi Magnússon svarar Heiðari Má Guðjónssyni. VEITING SAMFÉLAGSVERÐLAUNA Í FYRRA Þorvaldur Kristins son heiðursverðlaunahafi, Pauline McCarthy hvunn- dagshetja og Edda Guðmundsdóttir, fulltrúi Dyngjunnar sem hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ VALLI Agnes Smáradóttir krabbameins- læknir hefur miklar áhyggjur af munntóbaksnotkun íslenskra ungmenna og óttast að holskefla krabbameins í munnholi og hálsi eigi eftir að koma fram eftir um tuttugu ár. Guðbjartur Hannesson velferðar- ráðherra hefur staðið í ströngu undanfarið vegna yfirvofandi uppsagna hjúkrunarfræðinga Land spítalans. Í vikunni náðust samningar við hjúkrunarfræðinga og hafa lang- flestir dregið uppsagnir sínar til baka. Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra telur Wikileaks- uppljóstrarann hafa verið notaðan sem tálbeitu í rannsókn FBI gegn Wikileaks. Umræða spannst um málið á Alþingi í vikunni þar sem stjórnar- andstaðan gagnrýndi framgang stjórnvalda vegna komu FBI hingað til lands. Slawomir Krolikowski, blaðberi Fréttablaðsins, bjargaði mæðginum út úr brennandi húsi í Mosfellsbæ eldsnemma á þriðjudagsmorgun. Slawomir sagðist einfaldlega hafa verið á réttum tíma á réttum stað. FIMM Í FRÉTTUM KJARADEILA OG HÖRPUDANS MÁL ÍSLENSKS SMYGL- HRINGS TÚTNAR ÚT 4 FÆRRI SLASAST VIÐ VINNU EFTIR HRUN 6 „Ekki eru til aurar hér, því miður.“ 12 Erna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs LSH og formaður kjara- og launanefndar spítalans. FÓLK „Við erum auðvitað í rusli yfir þessu öllu. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér neitt þessu líkt. Þetta er rosalega sorglegt,“ segir Ebba Guðný Guðmundsdóttir, vinkona suður-afríska Ólympíuhlauparans Oscars Pistorius. „Okkar kynni af Oscari eru þau að hann er einstaklega ljúfur og góður drengur og það má ekki gleymast. Hann reyndist okkur ótrúlega vel, jafnvel til að byrja með þegar ha nn þekkt i okkur ekki neitt. Hann gaf okkur a l lt a f t í ma , sýndi okkur hlýju, kærleik og mikla vin- áttu.“ Ebba hefur þekkt Pistorius síðan hún var ólétt af syni sínum, sem nú er átta ára gamall. Hann fæddist með sama fæðingargalla og íþrótta- hetjan, fótalaus fyrir neðan hné. Ebba komst þá í kynni við Pistorius og hefur þeim verið afar vel til vina síðan. Íslenska fjölskyldan fluttist meðal annars til Suður-Afríku, þar sem hún eyddi miklum tíma með íþróttahetjunni. Ebba segir fregnir af skotárás á heimili Pistorius hafa komið öllum í opna skjöldu. Hún hefur ekki rætt við fjölskyldu hans, sem hún þekkir einnig. „Það næst ekki í neinn. Það er auðvitað ekkert grín þegar svona ákæra er lögð fram. Það er allt í uppnámi,“ segir hún. Ebba hefur aldrei hitt kærustu hlauparans, hina 29 ára gömlu Reevu Steen- kamp, sem hann skaut til bana aðfaranótt 14. febrúar. Þau höfðu verið saman í nokkra mánuði. Pistorius brotnaði niður í réttar- sal í Pretoríu í gær þegar sak- sóknarinn las upp ákæru á hend- ur honum fyrir morð að yfirlögðu ráði. Hlauparinn hágrét og neit- aði alfarið að hafa myrt kærustu sína. Saksóknari heldur því fram að Pistorius hafi ekki aðeins myrt Steenkamp, heldur hafi hann verið búinn að skipuleggja það fyrir fram. Sjálfur heldur hann því fram að hann hafi ruglast á kærustu sinni og innbrotsþjófi. Steenkamp fannst látin á heim- ili hlauparans í Pretoríu með fjög- ur skotsár á líkamanum. Lög- reglan hefur áður verið kölluð að húsinu vegna gruns um heimilis- ofbeldi. Pistorius er 26 ára gamall og hefur löngum verið eitt helsta andlit íslenska stoðtækjaframleið- andans Össurar. Ekki náðist í tals- menn fyrirtækisins í gærkvöld en í yfirlýsingu sem send var út daginn eftir skotárásina sagði að hugurinn væri hjá aðstandendum Steenkamp og allra sem málið varðaði. Þá væri beðið eftir niðurstöðum lögreglu í málinu. sunna@frettabladid.is „Við erum auðvitað í rusli yfir þessu öllu“ Íslenskir vinir íþróttahetjunnar Oscars Pistorius eru harmi slegnir eftir voðaverkið á miðvikudagsnótt. Honum er lýst sem ljúfum og góðum dreng sem hafi reynst fjölskyldunni vel. Pistorius hágrét þegar saksóknari las honum ákæru fyrir morð. HÁGRÉT Í RÉTTARSAL Oscar Pistorius brotnaði niður þegar saksóknari lýsti hann ákærðan fyrir morð að yfirlögðu ráði. Pistorious neitar sök og heldur því fram að hann hafi ruglast á kærustu sinni og innbrotsþjófi. NORDICPHOTOS/AFP EBBA GUÐNÝ GUÐMUNDS- DÓTTIR Hann gaf okkur alltaf tíma, sýndi okkur hlýju, kærleik og mikla vináttu. Ebba Guðný Guðmundsdóttir ELDAÐI Í LAUMI 24 Gunnar Helgi Guðjónsson fór með sigur af hólmi í Masterchef. FRÉTTAMYND ÁRSINS 30 Ljósmynd af útför barna á Gasa var valin fréttamynd ársins af World Press Photo. YFIRBURÐIR Á EDDUNNI 34 Ingvar Sigurðsson og Kristbjörg Kjeld eru þeir leikarar sem oft ast hafa fengið Edduverðlaunin. GULLÖLD GEIMVÍSINDA 42 Geimjeppinn Curiosity hefur lokið próf- unum á Mars og nú tekur alvaran við. HREIFST AF Á ANNAN VEG 44 Bandaríski leikarinn Paul Rudd vill koma til Íslands þegar myndin Prince Avalanche verður frumsýnd. HÖFÐAÐ TIL HÚSMÆÐRA 46 Húsmæður voru helsti markhópur auglýsenda framan af síðustu öld. KRAKKASÍÐA 48 KROSSGÁTA 50 OSTAR Í ALLT 64 Osta má nota í matargerð á fj ölbreyttan hátt. DJÁSN ÚR DÝRAFIRÐI 66 Kristín Þórunn Helgadóttir býr til háls- festar, eyrnalokka og armbönd úr þara sem hún tínir í fj örum Dýrafj arðar. KÖLNARVATN ÚR KÚMENI 78 Reykjavík Distillery hefur sett á markað ilmvatn fyrir karla úr íslenskum jurtum. LOFTSTEINN OLLI SKELFINGU 10 Hundruð manna særðust þegar tíu tonna loft steinn splundraðist yfi r Úral- fj öllum. ➜ Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, var að vonum ánægð með frábæra mætingu Íslendinga í Hörpu í vikunni þar sem dansað var í hádeginu vegna átaksins „Milljarður rís upp“.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.