Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 100
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 68
BÍÓ ★★★★★
Kon-Tiki
Leikstjórn: Joachim Rønning, Espen
Sandberg. Leikarar: Pål Sverre Valheim
Hagen, Anders Baasmo Christiansen,
Odd-Magnus Williamson, Agnes Kittel-
sen, Gustaf Skarsgård, Jacob Oftebro,
Tobias Santelmann.
Hin sannsögulega Kon-Tiki er
norsk og segir frá fífldjarfri
flekasiglingu landkönnuðarins
Thors Heyerdal frá Perú til Pólý-
nesíu árið 1947. Þetta er gríðar-
lega íburðarmikil framleiðsla og
sú allra dýrasta sem ráðist hefur
verið í á Norðurlöndunum.
Sagan af Thor Heyerdal er
vissulega dramatísk að mörgu
leyti en hér er meiri hlátur en grát-
ur. Það er eitthvað bráðfyndið við
hið norska fas leikaranna og mynd-
in fattar það og spilar með. Aldrei
er farið út í djúpu drama laugina og
fyrir vikið verður hún meira í ætt
við Indiana Jones en t.d. Aguirre,
reiði Guðs, snar brjálaða fleka-
mynd Werners Herzog. Ég hef
verið svo heppinn að sjá Kon-Tiki
tvisvar, en hún var sýnd á RIFF
síðasta haust. Tvö áhorf þolir hún
vel og jafnvel fleiri.
Þessir krúttlegu Norðmenn á
flekanum verða á skömmum tíma
bestu vinir manns en Heyerdal
er magnaður persónuleiki sem er
misauðvelt að skilja. Stundum er
sem skynsemi hans sé af skornum
skammti en ástríðan er smitandi
og ég vil trúa því að ég hefði sjálf-
ur fylgt honum alla leið á flekan-
um. Flekamennin komast þó reglu-
lega í hann krappann og þegar
fjörið stendur sem hæst eru bók-
staflega tekin andköf.
Listræn stjórnun er fyrsta
flokks og myndatakan hreint
ótrúleg. Útkoman er „sannkallað
augnakonfekt“, frasi sem er ef til
vill orðinn þreyttur en á engu að
síður fullkomlega við hér.
Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Ógleymanleg mynd
um hreint út sagt ótrúlegan atburð.
Meiri hlátur en grátur
KON-TIKI „Það er eitthvað bráðfyndið við hið norska fas leikaranna, og myndin
fattar það og spilar með.“
Sænska hljómsveitin First Aid Kit, sem er skipuð systrunum Jóhönnu
og Klöru Söderberg, vann Norrænu tónlistarverðlaunin fyrir plötuna
The Lion´s Roar. Í niðurstöðu dómnefndar segir að allir hafi hrifist
af kraftinum í plötunni. „Lagasmíðarnar eru framúrskarandi,
melódíurnar sígildar og harmóníurnar einstaklega fallegar,“ sagði
dómnefndin. Dómararnir komu m.a. frá The Guardian, plötufyrir-
tækjunum Rough Trade, Domino Records og Columbia Records. Ell-
efu plötur voru tilnefndar, þar á meðal Dýrð í dauðaþögn með Ásgeiri
Trausta og Retro Stefson með Retro Stefson.
First Aid Kit verðlaunuð
SIGUR-
VEGARAR
Sænska
hljómsveitin
First Aid Kit
vann Norrænu
tónlistar-
verðlaunin.
NORDICPHOTOS/GETTY
Vænt og vel grænt
Hönnunarfyrirtækið Pantone hefur svipt hulunni af lit ársins en það er sma-
ragðsgrænn. Litinn er því tilvalið að hafa í huga ef á að fl ikka upp á heimilið á
árinu. Fatahönnuðir virðast vera sammála um lit ársins en grænir tónar hafa
hingað til verið áberandi í sýningum helstu hönnuða á tískuvikunni í New York.
FRÁ TOPPI TIL TÁAR Græni
liturinn var áberandi í sýningu
Philips Lim, 3.1, fyrir haustið.
LITUR
ÁRSINS
Kaffi-
bolli frá
Pantone í
smaragðs-
grænum
lit.
KÖFLÓTT Marc
Jacobs klæddist
grænköflóttum
buxum og skyrtu
við lok sýningar
sinnar í New
York.
GRÆNIR TÓNAR Sófinn Polder frá
hönnunarfyrirtækinu Vitra smell-
passar inn í græna þemað.
FYLGIHLUTIR
Græn taska frá
Marc by Marc
Jacobs.
KVENLEGT Oscar
de la Renta sýndi
marga græna tóna
í þessum klæðnaði
í fatalínu sinni
fyrir haustið.
Tónlistarmennirnir Chris Brown
og Drake hafa lögsótt hvor annan
vegna slagsmála sem þeir áttu í
á næturklúbbi í New York í júní
síðast liðnum.
Rifrildið, sem endaði með högg-
um og flöskukasti á báða bóga,
mun hafa byrjað vegna Rihönnu,
unnustu Chris Brown. Tónlistar-
mennirnir benda hvor á annan
þegar þeir eru inntir eftir ástæð-
um slagsmálanna á skemmti-
staðnum W.i.P. í New York.
Eigendur staðarins höfðuðu mál
á hendur Brown og Drake í ágúst
og sögðust hafa orðið af stórum
auglýsingasamningum vegna
slagsmálanna. NBA-leikmaðurinn
Tony Parker, sem mun hafa hlotið
augnskaða í hamaganginum, hefur
einnig lögsótt skemmtistaðinn.
Popparar lögsækja hvor annan
CHRIS BROWN Tónlistarmaðurinn er
góðkunningi lögreglunnar.
NÁMSKEIÐ UM SKÓLAGÖNGU BARNA
MEÐ ATHYGLISBREST OG OFVIRKNI
FYRIR KENNARA OG ANNAÐ STARFSFÓLK GRUNNSKÓLA
Fimmtudagur 28. febrúar 2013
Kl. 8:30-14:50
Almennt yfirlit um athyglisbrest og ofvirkni:
Páll Magnússon sálfræðingur.
Athyglisbrestur og nám:
Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur.
Kennsla nemenda með ADHD og teymisvinna:
Elín Hoe Hinriksdóttir sérkennsluráðgjafi.
Föstudagur 1. mars 2013
Kl. 12:30-16:30
Líðan barna með ADHD í skólanum:
Urður Njarðvík sálfræðingur.
Samskipti skóla og heimila barna með ADHD:
Bóas Valdórsson sálfræðingur.
Fundarstjóri:
Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna.
Að námskeiðinu stendur samstarfshópur fulltrúa frá ADHD samtökunum, Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf
á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Félagi grunnskólakennara, SAMFOK, Heimili og skóla, Skólastjórafélagi
Reykjavíkur, Kennarafélagi Reykjavíkur og sérfræðingum.
Skráning og greiðsla fer fram hér á heimasíðu ADHD samtakanna:
www.adhd.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-um-skolagongu-barna-
med-athyglisbrest-og-ofvirkni
Verð fyrir félagsmenn kr. 10.900 en 14.900 fyrir aðra.
Innifalið í námskeiðsgjöldum eru gögn og nýútkomin handbók
fyrir kennara: ADHD og farsæl skólaganga.
Námskeiðið er haldið í Háskólanum í Reykjavík
og með fjarfundi í Háskólanum á Akureyri.
FIMMTUDAGINN 28. FEB
RÚAR OG
FÖSTUDAGINN 1. MARS
2013
samtökin Háaleitisbraut 13, 108 Reykjav
ík, sími 581-1110, w
ww.adhd.is