Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 45
| FÓLK | 3
Skartgripahönnuðurinn Christina Lihn hefur skapað fíngerða, fallega skartgripi sem hengdir eru á leðurarmbönd. „Við féllum
fyrir þessum skartgripum um leið og við sáum
þá,“ segir Björg Barðadóttir hjá heildversluninni
Echo sem sér um innflutning á Blossom Copen-
hagen. „Þetta er skemmtilega öðruvísi skart-
gripahönnun þar sem gróf leðurarmbönd mynda
mótvægi við fínlegt skartið sem hengt er á
böndin. Einnig er hægt að fá keðjur til að hengja
skartið á. Konur geta safnað litlu hlutunum smátt
og smátt,“ útskýrir Björg og segir að skartið henti
konum á öllum aldri. „Þetta er nákvæm hönnun
þar sem öll vinna er úthugsuð með alúð, kær-
leik og hjartahlýju. Christina notar hjarta í alla
gripina á einn eða annan hátt.“
Christina hefur sagt opinberlega að hún sé
rómantísk og hanni skartgripi fyrir konur sem
elska. „Eftirlætishluturinn er hjarta og það er
kjarninn í allri minni hönnun.“ Christina segist
ekkert vera feimin við að hanna fallega gripi sem
ýta undir kvenlegan þokka.
Skartgripalínan einkennist af þessu litla, fallega
skarti en einnig eru í boði hálsmen, eyrnalokkar
og hringir. Christina notar eingöngu náttúru-
steina í hönnun sinni. Þótt fyrirtækið sé einungis
tveggja ára hafa skartgripirnir náð miklum vin-
sældum í Evrópu og Ástralíu.
Christina Lihn hefur verið viðloðandi skart-
gripagerð stærstan hluta lífs síns. Hún byrjaði
ferilinn hjá hinu fræga fyrirtæki Georg Jensen.
Dönsk hönnun er vel metin um allan heim og
Blossom Copenhagen er þar engin undantekning.
Hægt er að skoða hönnunina á vefslóðinni
blossomcopenhagen.com.
Blossom-skartgripirnir fást hjá eftirfarandi aðilum
Gull- og silfursmiðjan,
Mjódd, 109 Reykjavík
G.Þ. skartgripir & úr,
Bankastræti 12, 101 Reykjavík
Gallery Sædís gullsmiðja,
Geirsgata 5b, 101 Reykjavík
Meba, Kringlunni, 103 Reykjavík
Úr & gull, Firði, 220 Hafnarfirði
Halldór Ólafsson úrsmiður,
Glerártorgi, 602 Akureyri
FÍNGERT SKART MEÐ
HJARTAHLÝJU OG KÆRLEIKA
ECHO HEILDVERSLUN KYNNIR Blossom Copenhagen skartgripi er nú hægt að fá hér á landi en þeir hafa vakið mikla athygli víða
um heim. Skartgripirnir eru hannaðir af hinni dönsku Christinu Lihn og eru allir handunnir.
Blossom copenhagen
Hægt er að fá marg-
víslega smáhluti til
að hengja á leður-
armböndin.