Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 74
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
Eftir hálfs árs dvöl á plánetunni rauðu er komið að kaflaskilum í leiðangri geimjeppans Curiosity. Á dögunum var jarðvegsbor tækisins prufu-keyrður með góðum árangri og nú er honum ekkert að vanbúnaði að
hefja formlega verkefni sitt með því að taka
stefnuna á Sharp-fjall. Þegar þangað verður
komið er markmiðið einfalt, en sennilega tor-
sótt; að skera úr um með vissu hvort einhvern
tíma hafi aðstæður á Mars verið með þeim
hætti að líf hefði getað þrifist þar.
Mikið þegar unnið
Þótt leiðangurinn sé formlega að hefjast hefur
gríðarlega mikið unnist hingað til. Hönnun
jeppans, ferðalag hans til Mars og ekki síst
lendingin, sem var verkfræðilegt stórvirki út
af fyrir sig, hafa gefið vísindamönnum gott
veganesti inn í komandi verkefni, sem munu
einhvern daginn ferja manneskju til annarra
reikistjarna. Þá er ógetið þess sem Curiosity
hefur þegar séð og sent heim, en á 188 daga og
um 600 metra ferðalagi sínu hefur hann þegar
staðfest það sem áður var vitað með nokkurri
vissu, að á Mars rann eitt sinn vatn. Það sést á
berginu, en síðustu vikur og mánuði hafa bor-
ist myndir af þornuðum árfarvegi sem gætu
þess vegna hafa verið teknar hér á Íslandi.
Vísindamenn fái lyklana
Ævintýrið hófst fyrir alvöru hinn 5. ágúst
þegar Curiosity lenti á Mars. Þar sem jeppi
þessi er miklu stærri en önnur slík fjarstýrð
tæki sem hafa verið send út í geim, kallaði
hann á nýja lausn sem fólst í því að honum
var slakað niður á yfirborðið úr lendingar fari
knúnu þrýstiloftshreyflum. Síðan þá hefur
starf vísindamanna falist í að prófa öll hin
fjölmörgu rannsóknar- og mælitæki, meðal
annars greiningarmyndavél, jarðvegsskóflu
og myndavél auk virkni og stýringu jeppans
sjálfs, og hefur allt gengið að óskum.
Eftir lendingu var jeppanum ekið spotta-
korn vestur að svæði sem er kallað Glenelg,
en þar var talið að væri áhugavert svæði og
kjörið til prófana og þar hefur Curiosity haldið
sig síðustu mánuði.
„Nú þegar prófunum er lokið ættu vísinda-
mennirnir að fá lyklana í hendur frá verk-
fræðingunum hvað úr hverju og bruna af
stað,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður
Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og rit-
stjóri Stjörnufræðivefsins. „Nú verður vænt-
anlega keyrt meðfram sandöldunum að rótum
Sharp-fjallsins þar sem hann verður næstu tvö
árin. Þetta er um átta kílómetra leið en ferðin
mun væntanlega taka allt þetta ár og fram á
það næsta, bæði vegna þess að Curiosity keyr-
ir hægt, í mesta lagi um 200 metra á klukku-
stund, og svo verður líka stoppað víða á leið-
inni til að safna gögnum og gera mælingar.“
Sævar segir prófunarferlið á Glenelg hafa
tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir, en það
komi hins vegar til af góðu því að svæðið hafi
verið mun áhugaverðara en NASA bjóst við.
Skýr merki um vatn
Curiosity hefur þegar fundið á ferð sinni sönn-
unargögn um rennandi vatn, sem hefur leyst
upp steindir í bergi og fallið út, til dæmis í
holur og sprungur, og myndar nú æðar sem
sjást bersýnilega á myndum Curiosity. Þá má
einnig sjá af lögun smásteina í árfarveginum
uppþornaða að þeir hafa slípast til í vatni.
„Þetta virðist vera botninn á farvegi ár sem
hefur verið um hnédjúp,“ segir Sævar.
„Við vitum nú að Mars var einu sinni renn-
andi blautur, en hversu lengi það hefur varað
og hve lífvænlegt hefur verið þar, er spurn-
ingin sem við vonum að náist að svara.“
Leitað að lífi
Sævar segir rannsóknina á Glenelg vera góða
upphitun fyrir stóra verkefnið þar sem ráðist
verður í að kanna setlög í hlíðum Sharp-fjalls.
„Þetta fjall er hreinlega setlagastafli þar
sem lögin liggja lárétt. Neðst eru þá elstu
lögin, frá þeim tíma sem Mars er talinn hafa
verið lífvænlegastur, og það eru áhugaverð-
ustu staðirnir til að rannsaka. Ofar komum
við í nýrri lögin, um svipað leyti og Olympus-
fjall og fleiri risaeldfjöll mynduðust, en þá
varð lofthjúpur Mars súrari.“
Til að fá endanlega úr því skorið hvort líf
hafi einhvern tíma getað þrifist á Mars mun
Curiosity greina efnasamsetningu setlag-
anna, og segir Sævar að það yrði meiri háttar
uppgötvun ef lífrænar sameindir fyndust í
bergi.
„Svo mun hann líka leita eftir metani í
loftinu. Hann hefur þegar prófað einu sinni,
án þess að hafa fundið neitt, en vísindamenn
hafa hins vegar „fundið lykt“ af metani á
Mars bæði frá jörðinni og með geimförum
á braut um Mars, þannig að metanið hlýtur
að vera þarna einhvers staðar. Ef Curiosity
finnur slíkt, getur hann skorið úr um hvort
metanið er af líffræðilegum eða jarðfræði-
legum toga og hvort sem er yrði afar for-
vitnilegt. Ef það er jarðfræðilegt merkir það
að jarðhiti sé til staðar og það gæti klárlega
stutt líf, en ef það er svo af lífrænum toga, er
sönnunin nánast komin. Það eru þá einhverjir
Marsbúar þarna undir að gefa frá sér metan!
Það verður þó í raun aldrei skorið úr því með
óyggjandi hætti að líf sé á Mars fyrr en við
borum niður og finnum verurnar.“
Æfingatímabilinu lokið á Mars
Eftir hálfs árs prófanir á tækjum og tólum geimjeppans Curiosity á Mars er komið að því að hefja rannsóknir að fullu. Borað
var í berg í síðustu viku. „Gullöld fyrir áhugafólk um geimferðir“, segir formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness.
TIL Í ALLT Geimjeppinn Curiosity er nú orðinn klár í slaginn, eftir hálfs árs prófanir á kerfum og tækjabúnaði. Hann heldur á næstunni í átt að áfangastað sínum,
hlíðum Sharp-fjalls, þar sem hann verður við rannsóknir næstu tvö árin eða svo til að fá úr því skorið hvort einhvern tíma hafi verið lífvænlegt á Mars. MYNDIR/NASA
1 Borinn sjálfur er í grunninn ekki ósvipaður hefðbundnum
höggbor og er á enda arms sem nær rúma tvo metra frá jepp-
anum.
2 Hér má sjá borinn sem Curiosity vígði hinn 8. febrúar síðast-
liðinn. Hann boraði þar rúmlega sex sentímetra djúpa og 1,3
sentímetra breiða holu og tók bergsýni. Borinn er hluti af ein-
stökum tækjabúnaði Curiosity, sem telur meðal annars smásjá,
litrófsrita og myndavél sem efnagreinir berg með því að skjóta
á það leysigeisla og greina reykinn. Í innviðum jeppans er líka
sýnaklefi þar sem bergsýni verða greind til hlítar.
3 Hér sjást greinilega ljósar æðar í berginu á Glenelg. Þær
myndast þegar vatn rennur í gegnum sprungur og skilur eftir
sig steindir. Þessar æðar eru fyrsta sönnunin sem Curiosity
fann um steinefni sem mynduðust á þennan hátt.
SÆVAR HELGI
BRAGASON
Geimjeppinn Opportunity hefur fallið í
skuggann af Curiosity síðustu mánuðina,
en það má ekki vanmeta hans framlag á
þeim níu árum sem hann hefur skondrast
um plánetuna rauðu, þó tækjabúnaðurinn
sé ekki nærri eins fullkominn og hjá Curio-
sity. Hann hefur á 35 kílómetra ferðalagi
sínu meðal annars fundið fjölmargar vís-
bendingar um að vatn hafi runnið á Mars.
„En hans niðurstöður benda flestar til þess
að það vatnið hafi verið frekar súrt og ekki
mjög lífvænlegt,“ segir Sævar. „En lífið er
harðgert og maður veit aldrei hvernig það
hefur þróast.“
➜ Í skugganum eftir níu ár á Mars
Sævar segir að sannkallað ævintýri hafi verið að fylgjast með leiðangri
Curiosity fyrir áhugafólk um geimferðir og að hann beri miklar væntingar
til framhaldsins.
„Já, heldur betur. Ég get varla beðið eftir því að hann fari að rannsaka
þarna fyrir alvöru.“
Það sem standi upp úr það sem af er, sé útsýnið sem sést af myndunum
sem Curiosity hefur sent heim, en þær hafa bæði verið fræðandi og
ægifagrar og leitt í ljós það tignarlegasta sem hingað til hefur sést á Mars.
Hundruð mynda hafa þegar borist, en það tekur jafnan innan við
klukkustund að senda mynd heim til NASA, allt eftir því hve langt er á milli
Mars og jarðarinnar hverju sinni. Vegna þess að sporbaugur þeirra um
sólina er misstór er fjarlægðin milli þeirra á bilinu 55 milljón kílómetrar upp í 400 kílómetrar.
Hið sama gildir um samskipti stjórnenda við jeppann, en frá því að skipun er gefin, til dæmis
um að aka af stað, stöðva eða snúa myndavélinni að áhugaverðum stað, líður nokkur stund þar
til jeppinn nemur hana. Til dæmis var seinkunin um það bil stundarfjórðungur þegar Curiosity
var nýlentur.
En er þetta þá ekki einstakt að fá að upplifa slíka atburði, hér um bil í beinni útsendingu?
„Jú, algerlega. Það er æðislegt og hálf súrrealískt að geta skoðað ljósmyndir á vefnum sem
voru teknar fyrir hálftíma síðan á fjarlægri reikistjörnu. Við erum að upplifa gullaldartíma í
þessu, engin spurning! Og þetta verður bara betra og betra,“ segir Sævar.
➜ Lifum á gullaldartíma
Curiosity borar í bergið á rauðu plánetunni
1 2 3
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is