Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 20
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 20
12:00 Súpa og brauð
13:00 Setning – Eydís Þ. Indriðadóttir
13:10 Flokkun landbúnaðarlands í Rangárþingi eystra –
Ásgeir Jónsson
13:25 Sóknarfæri í akuryrkju – Birkir Tómasson
13:35 Sóknarfæri í nautgriparækt – Jóhann Nikulásson
13:45 Sóknarfæri í sauðfjárrækt – Oddný Steina Valsdóttir
13:55 Sóknarfæri í hrossarækt – Sigurður Sæmundsson
14:05 Tækifæri í trjárækt – Hreinn Óskarsson
14:15 Hagfræði mismunandi landnýtingarkosta – Eggert Þ. Þórarinsson
14:35 Kaf hlé
14:55 Verndarsvæði vegna eldgosavár – Guðmundur Halldórsson
15:05 Var einhver að nefna land? – Friðrik Pálsson
15:20 Þróun landnotkunar á Suðurlandi: orsakir og áhrif –
Tómas Grétar Gunnarsson
15:35 Framsýni og forsjárhyggja - er hægt að stýra landnotkun? –
Kristín Þórðardóttir
15:50 Umræður
16:30 Málþingi slitið – Eydís Þ. Indriðadóttir
Fundarstjórar: Guðbjörg Arnardóttir og Sigurgeir Guðmundsson
Tæknimaður: Óðinn Burkni Helgason
Samkeppni um land
MÁLÞING um landnýtingarstefnu
í Rangárþingi
Gunnarsholti 19. febrúar 2013
Rótarýklúbbur
Rangæinga
Heiðar Már Guðjónsson,
fjárfestir í Sviss, birti sína
aðra grein þar sem hann
gerir mig að umfjöllunar-
efni í Fréttablaðinu 15.
febrúar. Efnislega bætir
hún litlu við fyrri grein
hans um sama efni. Þó
víkur hann núna loksins
stuttlega að ástæðunum
fyrir þessum sérkenni-
legu skrifum, sem er til-
tekin viðskiptahugmynd
hans sem hann virðist telja að ég
hafi flækst fyrir að óþörfu. Við-
skiptahugmyndin gekk í grófum
dráttum út á að setja Orkuveituna
og Reykjavíkur borg í þrot og endur-
reisa svo aftur, væntanlega gegn
nokkurra milljarða króna þóknun.
Áttu að koma að þessu ýmsir erlend-
ir aðilar, ofurlögmenn og vogunar-
sjóðir, auk Íslendinga. Öllum gekk
þeim án efa gott eitt til. Ekki veit
ég hvernig átti að skipta þóknun-
inni en hafi Heiðar Már ekki ætlað
sér neinn hlut, jafnvel persónu lega
greiða útlagðan kostnað, þá er það
aðdáunarvert örlæti.
Það er skemmst frá því að segja
að þessi frumlega hugmynd fékk
álíka góðan hljómgrunn og tillag-
an um einhliða upptöku nýs gjald-
miðils. Ég stöðvaði ekki viðskipta-
hugmyndina, hún var einfaldlega
andvana fædd. Það virðist penna-
vinur minn eiga erfitt með að
sætta sig við. Það verður bara svo
að vera.
Meiru skiptir að tekist hefur að
snúa rekstri Orkuveitunnar við svo
að hann skilar nú um 20 milljörð-
um króna á ári sem hægt er að nýta
til greiðslu vaxta og afborgana.
Það er meira en nóg til að
koma fjárhagnum á réttan
kjöl. Raunar myndi fyrir-
tækið verða skuldlaust á
rúmum áratug með þessu
áframhaldi. Allar helstu
tölur um rekstur og efna-
hag og áætlanir fyrirtæk-
isins eru opinberar. Þær
tala sínu máli. Lesi Heið-
ar Már annað út úr þeim
en ég þá verður bara svo
að vera.
Tilgangslaust að þrátta
Það sama má segja um skuldastöðu
þjóðarbúsins. Hann telur það á
vonarvöl. Allar helstu tölur eru þar
opinberar, þótt vissulega sé óvissa
um sumar þeirra. Ég les annað út
úr þeim en Heiðar Már og mér sýn-
ist tilgangslaust að þrátta frekar við
hann um þetta. Legg frekar til að
við sammælumst um það að skrif-
ast aftur á eftir t.d. fimm eða tíu ár.
Verði íslenska ríkið, þjóðarbúið eða
Orkuveitan þá farin í þrot þá liggur
fyrir að hann hafði rétt fyrir sér.
Ég skal meira að segja bæta því við
að ég tel meiri líkur en minni á því
að þá verði raungengi krónunnar
hærra en nú.
Heiðar Már nefnir fleira. Hann
telur það hafa verið mistök að færa
innlendar eignir þrotabús gamla
Landsbankans inn í nýja bankann
sem er að mestu í eigu ríkisins. Þar
er ég algjörlega ósammála honum
en um þetta má deila eins og annað.
Ég skil hins vegar ekki hvers vegna
hann vill deila um þetta við mig.
Þetta var allt saman gert haustið
2008 og kom ég þar hvergi nærri.
Það væri nærtækara að hann ræddi
þetta við þá sem þá voru í ríkis-
stjórn, enda hæg heimatökin.
Það sama má raunar segja um
nauðasamninga þrotabúa gömlu
bankanna sem hann virðist telja
mig bera einhverja ábyrgð á. Ég
hef ekkert komið að gerð þeirra
eða skoðun íslenskra stjórnvalda
á þeim. Það er ekki einu sinni mér
vitan lega neinn alvarlegur ágrein-
ingur innanlands um það hvaða skil-
yrði þurfa að vera uppfyllt vegna
þeirra. Aðalvandinn hér er annars
vegar hve hratt þrotabúin geta selt
eignir í krónum fyrir erlenda mynt
og hins vegar hver verður framtíð
nýju bankanna. Nauðasamningar
þurfa að taka á þeim vandamálum
með skynsamlegum hætti. Annars
á ekki að fallast á þá.
Að lokum þetta. Það er ekkert
að því að takast á um hagtölur og
efnahagsmál og gagnrýna niður-
stöður og spár stjórnvalda eða
annarra aðila. Það er hluti af heil-
brigðri þjóðfélagsumræðu. Ein-
hverjir verða að mála skrattann á
vegginn, eins og Heiðar Már gerir
núna. Það hefðu að ósekju fleiri
mátt gera fyrir hrun. Heiðar Már
er ósammála mér um ýmsa hluti
og gerir mikið úr meintum mis-
skilningi mínum. Honum er það að
sjálfsögðu heimilt, hvort sem hann
hefur rétt fyrir sér eða ekki. Fram-
vinda mála mun leiða hið rétta í
ljós. Sjálfur tel ég mig ekki óskeik-
ulan og hef aldrei haldið því fram.
Er ekki páfinn einn óskeikull?
Enn um misskilning
Umfjöllun um kynlíf kallar gjarn-
an á mikla athygli, ekki síst ef hún
tengist umdeildum málefnum eins
og klámi og kynferðislegu ofbeldi.
Vekur hún iðulega upp sterk við-
brögð fólks í samfélaginu, hneyksl-
un, reiði, jafnvel ótta og óöryggi.
Þegar grannt er skoðað verður
ekki séð að umfjöllunin hverju
sinni gefi til kynna heildræna sýn
stjórnvalda á viðkomandi málefni
eða að unnið sé eftir langtíma-
áætlun um málið. Það sýnir fram á
mikilvægi þess að setja málaflokk-
inn kynheilbrigðismál í fastan og
faglegan farveg.
Frá stofnun Lýðheilsustöðvar
tilheyrðu áfengis- og vímuvarna-
ráð, manneldisráð, slysavarnaráð
og tóbaksvarnaráð stöðinni. Við
nýlegan samruna Landlæknis-
embættisins og Lýðheilsustöðv-
ar var gerð breyting á þessu. Á
vegum Landlæknisembættisins
starfa nú sóttvarnaráð og fjögur
fagráð. Það eru fagráð um áfengis-
og vímuvarnir, tóbaksvarnir, geð-
rækt og lifnaðarhætti en ekki er
gert ráð fyrir kynheilbrigðisráði
eða fagráði um kynheilbrigði. Enn
fremur má vekja athygli á því að á
vegum velferðarráðuneytisins eru
engin sérstök ráð eða nefndir sem
taka til kynheilbrigðismála.
Ekki sett í forgang
Af ofangreindu er ljóst að kynheil-
brigðismál eru ekki sett í forgang
innan íslensks heilbrigðiskerfis.
Nauðsynlegt er að koma sem allra
fyrst á fót kynheilbrigðis ráði eða
fagráði um kynheilbrigði innan
heilbrigðiskerfisins. Hlutverk
þess væri að halda utan um þennan
málaflokk til að hafa yfirsýn yfir
málefnin en jafnframt að standa
að stefnumótun á þessu sviði. For-
gangsverkefni ráðsins væri að
vinna að kynheilbrigðis áætlun
fyrir íslenskt samfélag. Víða í
nágrannalöndum okkar hafa verið
settar fram áætlanir um kynheil-
brigðismál. Má þar nefna lönd eins
og Finnland, Bretland, Banda ríkin
og Ástralíu. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin setti árið 2001 fram
stefnu um kynheilbrigðismál fyrir
Evrópu. Í þeirri stefnu er lögð
áhersla á að fólk geti tekið upplýst-
ar ákvarðanir um barneignir og
takmörkun þeirra og njóti örygg-
is í barneignarferlinu. Fjallað er
um ýmis kynheilbrigðisvanda-
mál á þessu sviði í álfunni eins og
brjóstakrabbamein, HIV-smit, kyn-
sjúkdóma, kynferðislegt ofbeldi og
mansal. Einnig er áhersla lögð á
kynheilbrigði ákveðinna hópa sam-
félagsins eins og unglinga, aldr-
aðra og flóttamanna.
Meginmarkmið með kynheil-
brigðisáætlun í hverju landi er
að stuðla að kynheilbrigði þegna
sinna. Norðurlöndin eiga margt
sameiginlegt en eru að mörgu leyti
með ólík vandamál á þessu sviði. Í
samanburði við lönd í Evrópu þá
kemur enn frekar í ljós munur á
löndunum. Þetta þýðir að nauðsyn-
legt er fyrir hvert land að skoða
þau kynheilbrigðisvandamál sem
eru til staðar og þá hópa sam-
félagsins sem þarf sérstaklega að
hlúa að og setja fram markmið og
leiðir til úrbóta. Með því að setja
kynheilbrigðismál í skýrari far-
veg innan heilbrigðiskerfisins
má vinna markvissar að þessum
málefnum, leggja meiri rækt við
að fyrirbyggja vandamál á þessu
sviði sem væri í takt við langtíma-
áætlun. Við sem sitjum í stjórn
Fagráðs hjúkrunarfræðideildar
Háskóla Íslands og Landspítalans
um kynheilbrigði erum tilbúnar að
leggja þessu máli lið.
Sóley S. Bender
Áslaug Kristjánsdóttir
Herdís Sveinsdóttir
Hildur Sigurðardóttir
Þóra Þórsdóttir
í stjórn Fagráðs hjúkrunar-
fræðideildar HÍ og Landspítal-
ans um kynheilbrigði
Kynheilbrigðis-
áætlun fyrir Ísland
➜ Ég stöðvaði ekki við-
skiptahugmyndina, hún var
einfaldlega andvana fædd.
➜ Meginmarkmið með kyn-
heilbrigðisáætlun í hverju
landi er að stuðla að kyn-
heilbrigði þegna sinna.
FJÁRMÁL
Gylfi
Magnússon
dósent
1.724
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR
Hagræðingarhelvíti
Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur
1.668
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR
Ert þú frekja?
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur
640
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR
3 milljónir á mánuði og lúxus-
jeppar
Helgi Vilhjálmsson framkvæmdastjóri
565
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR
Raunveruleikatékk
Svavar Hávarðsson pistlahöfundur
394
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR
Vandi skólastarfs felst ekki í
kjarasamningi
Ólafur Loft sson, form. Félags grunnskóla-
kennara
335
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR
Hrun á Landspítala
Sara Arnarsdóttir hjúkrunarfræðingur
Skoðun visir.is
ORÐ VIKUNNAR
09.02.2013 ➜ 15.02.2013