Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 110
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 78
Hermann og Hreiðar fá lóðir
Stracta Construction, félag feðg-
anna Hreiðars Hermannssonar
og Hermanns Hreiðarsonar knatt-
spyrnumanns, hefur nú fengið
úthlutað lóðum fyrir hótel á Hellu og
í Reykholti. Rangárþing eystra hefur
hins vegar hafnað beiðni Stracta um
hótellóðir á Hvolsvelli því það falli
ekki að deiliskipulagi.
Eins og fram
hefur komið í
Fréttablaðinu ætla
feðgarnir að reisa og
reka hótel víða um
land og stefna að því
að keðja þeirra geti
boðið gistingu í yfir
1.001 herbergi fyrir
vorið 2014. - gar
„Ég elska að
snerta. Ég er alltaf
að snerta fólk.“
LEIKARINN JEREMY
IRONS LÉT HAFA
ÞETTA EFTIR SÉR
Í VIÐTALI VIÐ THE
TIMES ER HANN VAR
SPURÐUR ÚT Í HJÓNA-
BANDIÐ OG HVORT
EIGINKONA HANS,
SINEAD CUSACK, VÆRI
AFBRÝÐISÖM.
FORSKOT Á SÆLUNA
Ingibjörg Birgisdóttir hlaut tvær
tilnefningar fyrir plötuumslag ársins
og Magnús Leifsson einnig tvær fyrir
besta tónlistarmyndbandið á Íslensku
tónlistarverðlaununum. Tilkynnt var
um tilnefningarnar í gær en úrslit
verða kynnt í Kastljósi
RÚV á næstu dögum.
Fagnefndin sem valdi
umslögin sem keppa
var skipuð Dr. Gunna,
Dögg Mósesdóttur
og Goddi en verð-
launahátíðin fer
fram í Hörpu
miðvikudaginn 20.
febrúar. - kg
ÓHUGNANLEGA
HEILLANDI
Brakið eftir Yrsu Sigurðardóttur kom
nýlega út í Noregi og stökk beint
í 14. sæti norska metsölulistans. Í
blaðinu Dagsavisen segir að Yrsu takist
að halda spennunni allt til síðustu
blaðsíðu og því bætt við að hún muni
örugglega slá í gegn. „Og það er alls
óvíst að maður myndi þiggja far með
skútu til Íslands eftir að hafa siglt með
Brakinu,“ segir gagnrýnand-
inn. Trönder avisen segir
að Brakið sé óhugnanlega
heillandi tryllir sem
ógjörningur sé að leggja
frá sér. Brakið kom út
árið 2011 á Íslandi og
varð söluhæsta bók
ársins. - fb
„Það er mjög fín lína á milli þess
að gera snafsa og gera ilmvatn,“
segir Snorri Jónsson hjá Reykja-
vík Distillery. Fyrirtækið setti
nýverið á markað rakspíra unninn
úr íslenskum jurtum.
Rakspírinn ber nafnið Landi og
kom fyrst á markað í Leifsstöð í
haust. Nú má finna ilminn í Herra-
fataverslun Kormáks og Skjaldar
og Kraumi og hefur honum verið
vel tekið. Ilmvatnsgerðin er hlið-
arverkefni Snorra og Reyjavik
Distillery sem hingað til hefur
einbeitt sér að framleiðslu líkjöra
og eimaðra snafsa úr íslensku hrá-
efni. „Rakspírinn byggir á sömu
hugmyndafræði og líkjörarnir
okkar. Hann er unninn úr íslensk-
um jurtum á borð við kúmen, eini-
ber, fjallagrös, bláber, rabarbara,
sóley, trékvoðu og blóðberg. Við
vildum vera trú upprunanum og
notum raunverulegar ilmolíur,
sem er orðið sjaldgæft nú til dags
þar sem framleiðendur freistast
til að nota gerviilm í ábataskyni,“
segir Snorri, sem fékk til liðs við
sig frægan ilmhönnuð í verkið.
„Fyrst ætluðum við að gera þetta
allt sjálf en komumst að því að það
eru djúp fræði á bak við ilmvatns-
framleiðslu sem eru ekki á allra
færi. Þess vegna fengum við til liðs
við okkur algeran gúrú í þessum
geira sem meðal annars sá um að
hanna brúðkaupsilm í konunglega
breska brúðkaupinu hjá Katrínu og
Vilhjálmi.“
Nafn rakspírans, Landi, vekur
athygli og segir Snorri að þeim hafi
þótt nafnið þjóðlegt og flott með
skemmtilega tengingu. „Nafnið er
með gamansömum tóni og vísar
í líkindin á milli áfengis og ilm-
vatns. Heimagerður Landi er, að
okkar mati, líkur rakspíranum á
þann hátt að báðir eru síður ákjós-
anlegir til drykkjar.“ Á næstunni
er áætlað að rakspírinn Landi fáist
á nokkrum fleiri stöðum á land-
inu og fari jafnvel í sölu erlendis
í framtíðinni.
alfrun@frettabladid.is
Rakspíri úr
íslenskum jurtum
Íslenskir karlmenn geta nú sprautað á sig Landa frá Reykjavik Distillery en
ilmurinn er gerður úr íslenskum jurtum á borð við kúmen og fj allagrös. Fyrir-
tækið er þekktara fyrir áfengisframleiðslu, sem útskýrir nafnið á rakspíranum.
LANDI Nafn rakspírans má rekja til líkinda áfengis og ilmvatns en framleiðsluferli beggja er
í rauninni nauðalíkt, segir Snorri Jónsson hjá Reykjavik Distillery. Hér er hann ásamt Judith
Orlishausen, hluthafa í fyrirtækinu.
Vetrar- og útivistarhátíðin Élja-
gangur hófst á Akureyri í gær og
lýkur á morgun. Þetta er í þriðja
sinn sem hátíðin fer fram og að
henni standa meðal annars Vetrar-
íþróttamiðstöð Íslands, Hlíðar-
fjall, Skíðafélag Akureyrar og
Akureyrar stofa, auk fjölda ann-
arra. Ætlunin er að kynna ólíkar
vetraríþróttir fyrir fólki.
Fjölbreytt og skemmtileg dag-
skrá er í boði um helgina fyrir
hvern þann sem hefur unun af
útiveru, snjó og hreyfingu. Meðal
þess sem boðið er upp á eru bretta-
keppni, sleðaspyrna, snjóflóðanám-
skeið, hundasleðakynning, vél-
sleðaferðir og þyrluskíðamennska
í Hlíðarfjalli.
„Þetta hófst með vélsleða-
mönnum sem héldu hér til margra
ára vetrarsportsýningu, en hátíðin
er nú haldin í þriðja sinn undir for-
merkjum Éljagangs,“ segir Birkir
Sigurðsson, talsmaður Éljagangs.
Hátíðin hefur lagt miðbæ Akur-
eyrar undir sig og hefur torg-
inu meðal annars verið breytt í
stærðarinnar stökkpall, auk þess
sem mótorkrosshjól munu þeysast
um ísilagða tjörnina í dag. Birkir
segir norðanmenn vera mikið úti-
vistarfólk og adrenalínfíkla enda
blómstra vetraríþróttirnar þar í
bæ. „Ég held það sé borðliggjandi.
Það standa allir bæjarbúar að þess-
ari hátíð,“ segir hann að lokum.
Dagskrá Éljagangs má finna á
vefsíðunni www.eljagangur.is.
- sm
Vetraríþróttir vinsælar fyrir norðan
Vetraríþróttahátíðin Éljagangur er haldin í þriðja sinn á Akureyri um helgina.
BLÓMSTRANDI ÍÞRÓTT Þessi mynd
var tekin af ungum snjóbrettakappa er
atti kappi í Brettakeppninni á Ráðhús-
torgi í fyrra. MYND/ÞÓRIR TRYGGVASON