Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 4
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
+50-34
34 sjómenn missa vinnuna
við skipulagsbreytingar hjá
HB Granda. Á móti skapast
50 störf í landi.
Borgarstarfsmenn ná að
hreinsa tyggjóklessur af
á dag.200 m2
10.02.2013 ➜ 15.02.2013
NÁM Í TÖLVUVIÐGERÐUM
Næstu námskeið byrja 6. og 7. mars
Þetta vinsæla námskeið er fyrir þá sem vilja starfa
við tölvuviðgerðir, uppfærslur og endurbætur.
Námskeiðið er verklegur undirbúningur fyrir A+
gráðurnar frá Comptia.
Allar nánarið upplýsingar er að finna á ntv.is
77 kg
Bardagakappinn Gunnar Nelson
var 77 kíló við vigtun í gær, fyrir
bardagann við Jorge Santiago.
króna af opin-
beru fé þarf til
að bjarga Hörpu
frá gjaldþroti.
milljarða2
LeBron James
hefur skorað 30
stig eða meira
í sjö leikjum
í röð með
Miami Heat
í NBA-deild-
inni.
Sýni hafa verið
tekin úr 15
vörum hérlend-
is til að kanna hvort
hrossakjöti sé laumað
í nautakjötsvörur.
15
gamlar djammmyndir hafa
skotið upp kollinum á vef-
síðu Geira.net og skelft Ís-
lendinga á fertugsaldri.
4 milljarða banka-ábyrgð sem Glitnir veitti vegna kaupa
Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar á formúluliðinu
Williams var kærð til
sérstaks saksóknara sem
umboðssvik.
11 ára
Veðurspá
Mánudagur
5-13 m/s hvassast SV-lands.
ÚRKOMA S-LANDS um helgina, dálítil él NA-lands í dag en annars þurrt að mestu
fram undir kvöld á sunnudag fyrir norðan. Hvessir með S- og V-landi í dag og má búast
við hvassviðri þar í nótt og á morgun. Hlýnar og lægir fram á mánudag.
-1°
8
m/s
0°
8
m/s
0°
7
m/s
5°
13
m/s
Á morgun
13-20 m/s S- og V-til. Hægari NA-lands
Gildistími korta er um hádegi
6°
5°
5°
4°
4°
Alicante
Basel
Berlín
17°
6°
4°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
2°
7°
3°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
3°
3°
22°
London
Mallorca
New York
10°
15°
3°
Orlando
Ósló
París
20°
-2°
9°
San Francisco
Stokkhólmur
17°
1°
1°
4
m/s
2°
7
m/s
-2°
3
m/s
-2°
3
m/s
-3°
3
m/s
-2°
7
m/s
-8°
3
m/s
5°
0°
3°
-2°
-1°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LÖGREGLUMÁL Stórtækur íslensk-
ur fíkniefnasmyglhringur er tal-
inn hafa staðið fyrir innflutningi
á 27 kílóum af amfetamíni frá Hol-
landi til Danmerkur í nóvember
2011. Tveir dæmdir Íslendingar,
sem þegar sátu í
fangelsi í Kaup-
mannahöfn, voru
handteknir í gær
vegna málsins.
Smyglhringur-
inn var í fréttum
í haust, eftir að
átta Íslending-
ar, þrír Danir
og einn Frakki
voru handtekn-
ir í Danmörku,
grunaðir um að hafa staðið að
smygli á 34 kílóum af amfetamíni í
tveimur ferðum frá Hollandi í ágúst
og september. Allir mennirnir voru
handteknir í Danmörku, fyrir utan
einn, sem var handtekinn í Noregi.
Þeir sitja allir enn í gæsluvarðhaldi.
Lögregla telur að leiðtogi smygl-
hringsins sé Guðmundur Ingi Þór-
oddsson, sem hlaut árin 2000 og
2002 sjö og fimm ára fangelsis-
dóma hérlendis fyrir e-töflusmygl,
og hefur undanfarin ár verið búsett-
ur á Spáni.
Víkur þá sögunni að mönnunum
tveimur sem handteknir voru í fang-
elsinu í gær, að sögn Ekstra bladet
í Danmörku. Þeir eru 25 og 37 ára
og voru fyrst handteknir í febrúar
í fyrra á Kastrup-flugvelli, þá með
fimm kíló, um 25 þúsund stykki, af
e-töflum í fórum sínum. Í septem-
ber hlutu þeir svo fimm og átta ára
fangelsis-
dóma fyrir
það smygl og
hafa setið inni
síðan.
Við ra n n -
sóknina á íslenska
smyglhringnum
hafa augu manna
beinst í ýmsar áttir, enda er talið
að hann hafi starfað lengi og um
alla Evrópu, og meðal annars hefur
verið horft til þess þegar 27 kílóum
af amfetamíni var smyglað til Fjóns
22. og 23. nóvember 2011.
Sá sem tók á móti efnunum þar,
42 ára Fjónbúi, hefur þegar verið
dæmdur í tólf ára fangelsi vegna
málsins en nú er komið á daginn að
lögregla telur að innflutningurinn
hafi verið skipulagður af íslenska
smyglhringnum og að Íslending-
arnir tveir úr e-töflumálinu hafi átt
þátt í því.
Þar með hefur mál Íslendinganna
vaxið mjög úr því að hverfast um
átta Íslendinga og 34 kíló af amfet-
amíni í það að snúast um tíu Íslend-
inga og 51 kíló.
Mennirnir tveir voru leiddir fyrir
dómara í gær og farið var fram á
gæsluvarðhald yfir þeim.
stigur@frettabladid.is
Mál íslenska smygl-
hringsins tútnar út
Guðmundur Ingi Þóroddsson og gengi hans eru ekki lengur bara undir grun um
smygl á 34 kílóum af amfetamíni, heldur 51 kílói. Tveir til viðbótar voru hand-
teknir í gær og eru nú fjórtán manns í haldi vegna málsins, þar af tíu Íslendingar.
GUÐMUNDUR
INGI ÞÓRODDS-
SON
Drottningin njóti efri áranna
1 DANMÖRK Fjórði hver Dani er þeirrar skoðunar að Margrét Þórhildur drottning eigi að að segja af sér, eins og Beatrix Hollandsdrottning, og láta
Friðrik krónprins vera við völd meðan hún nýtur efri áranna. Þetta eru niður-
stöður könnunar á vegum metroXpress. Samkvæmt könnuninni eru 35 prósent
þeirrar skoðunar að drottningin eigi að segja af sér en ekki strax.
Drottningin hefur áður greint frá því að hyggist vera við völd þar til hún
deyr.
Missti af flugi vegna bæna bílstjóra
2 NOREGUR Prófessorinn Østein Noreng missti af flugi frá Noregi til Úganda þegar leigubílstjórinn stöðvaði bíl sinn og steig út til að biðjast fyrir. Haft
er eftir Noreng á fréttavef VG að þetta hafi verið eins og í kvikmynd þegar
bílstjórinn tók bænateppið úr skottinu og breiddi úr því fyrir framan bílinn.
Bílstjórinn segir að bænin hafi aðeins tekið 4 til 5 mínútur og að þeir hafi
verið komnir á flugvöllinn fyrir þann tíma sem samið var um. Þetta var í
annað skipti sem þetta kom fyrir hjá bílstjóranum, sem nú starfar hjá annarri
leigubílastöð.
Leikskólastarfsfólk hæddist að börnum
3 SVÍÞJÓÐ Átta starfsmenn í leikskóla í Nacka í Stokkhólmi hafa verið reknir fyrir að leggja börn og aðra starfsmenn kerfisbundið í einelti. Rannsókn
leiddi einnig í ljós kynþáttahatur. Börn sem grétu voru ekki hugguð og hermt
var eftir og hæðst að fötluðum. Börn voru kölluð fitubollur, grísir og dekur-
rófur.
„Mál þessa íslenska hóps er
umfangsmikið og líklega með
stærstu málum sem við höfum
unnið að,“ segir Karl Steinar Vals-
son, yfirmaður fíkniefnadeildar
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. „Á undanförnu ári hafa
fleiri mál en bara þessi tvö verið
til skoðunar við rannsóknina á
þessum sama hóp,“ segir hann.
Fleiri mál verið til
rannsóknar
NORÐURLÖND
1
2
3