Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 92
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
„Ég er að fást við mjög stórar
spurningar, aðalglíman er að setja
hugsanir mínar í sjónrænt form,“
segir Eirún Sigurðardóttir mynd-
listarkona um sýningu sem hún
opnar í dag kl. 16 í Listasafni ASÍ.
Sýningin ber yfirskriftina „Gæfu-
smiður“ og er tilvísun í eina af
þeim stóru spurningum sem Eirún
er að fást við, hvort það sé raun-
verulega svo að hver sé sinnar
gæfusmiður.
„Það þarf að taka það með í
reikninginn að það hafa ekki allir
sömu tækifærin, það er ýmislegt í
lífi fólks sem hefur áhrif á mögu-
leika þess til gæfusmíða eins og
kyn, heilsa, fjölskylda og fleira,“
segir Eirún og bætir við að öll
séum við hluti af stærra samfélagi
sem mótar okkur. Eirún vinnur
mikið með hugmyndir um mót og
mótun í sýningunni og má meðal
annars sjá myndbandsverk af
barnshöndum setja form í rétt göt
á barnaleikfangi. „Strax frá unga
aldri lærum við að láta allt passa í
rétt mót, hvort sem það eru kubb-
ar eða hlutverk kynjanna,“ segir
Eirún.
Verkin á sýningunni eru mörg
hver búin til úr Doka-plötum eða
mótatimbri sem vísar til þess
hvernig samfélagið mótar okkur
og við mótum samfélagið. „Við
sjáum samt aldrei þessi mót, þau
bara eru þarna,“ segir Eirún.
Doka-plöturnar sem notaðar eru
í sýninguna koma hvaðanæva að,
sumar eru nýjar en aðrar hafa
verið notaðar til að móta fjölmörg
hús og heimili rétt eins og síendur-
tekin hugmyndakerfi samfélagsins
um hlutverk kynjanna móta okkur.
Inngangsverk sýningarinnar
tengist bæði kynjamyndum og
formum en það kallast Skráargöt.
Líkami sýningargesta er í raun
lykill þeirra að sýningunni og þeir
þurfa að gera það upp við sig að
hvaða skrá þeir ganga eða hvort
þeir passa yfir höfuð í þessi mót.
„Áður en við fæðumst er farið að
hugsa um hvors kyns við erum,
munur kynjanna er ýktur í sam-
félaginu miðað við hversu lítill
hann er í raun líffræðilega,“ bætir
Eirún við.
Í lok árs mun koma út bókverk
í tengslum við sýninguna. Eirún
mun standa að því sjálf og leggja
til myndir, texta og teikningar en
auk þess fær hún til liðs við sig
fjóra einstaklinga, listfræðing,
skáld, arkitekt og akademískan
kynjafræðing sem munu skrifa um
sýninguna út frá sinni upplifun.
Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga milli kl. 13-17 og
aðgangur er ókeypis. - kbj
Um byggingarefnið
í gæfusmiðjunni
Eirún Sigurðardóttir opnar sýninguna Gæfusmiður í Listasafni ASÍ í dag. Þar má
sjá vangaveltur Eirúnar um val, mótun og samfélagið út frá kynjafræðilegum
vinkli. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 13-17, ókeypis aðgangur.
EIRÚN SIGURÐARDÓTTIR Veltir fyrir sér möguleika mannsins til að vera eigin
gæfu smiður, meðal annars með tilliti til kyns, heilsu, fjölskylda og fleira.
Áður en við fæðumst
er farið að hugsa um hvors
kyns við erum, munur
kynjanna er ýktur í samfé-
laginu miðað við hversu
lítill hann er í raun líf-
fræðilega.
Þegar ég var unglingur, árið 1981, las Dagný
Kristjánsdóttir þýðingu sína á Praxis eftir
Fay Weldon í útvarpinu. Lesturinn olli
fjaðrafoki meðal teprulegra hlustenda
og lesendadálkar bókstaflega fylltust
af kvörtunum yfir klámi og sóðalegu
orðbragði. Bókin, sem kom fyrst út í
Englandi 1978 og var tilnefnd til Booker-
verðlaunanna, fjallar um ævi konu frá
æsku til fullorðinsára. Söguna má lesa
sem frásögn um lífshlaup konunnar
í karlasamfélagi 20. aldar. Hún hefst
í Brighton um 1920 og aðalpersónan
er Praxis Duveen, sem einnig gengur
undir mörgum öðrum nöfnum á lífsleiðinni
og leikur líka mörg hlutverk, hún er m.a.
skólastúlka, vændiskona, móðir og stjúp-
móðir, ástkona og eiginkona, starfsmaður
auglýsingastofu, morðingi, leiðtogi, fyrirmynd
kvenna og farlama einstæðingur, en sögu
hennar lýkur á áttunda áratug síðustu aldar.
Praxis hafði djúpstæð áhrif á mig, fyrst í
lestri Dagnýjar og síðan las ég bókina sjálfa
mörgum sinnum. Margir telja þessa bók til
lykilverka kvennabókmennta síðustu aldar og
mér finnst hún bera af öllum öðrum bókum
höfundarins, sem ég sá löngu síðar á Bók-
menntahátíð í Reykjavík.
Praxis eft ir Fay Weldon
BÓKIN SEM
BREYTTI
LÍFI MÍNU
Þórdís
Gísladóttir,
rithöfundur
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓRA RAGNARSDÓTTIRH Á R S N Y R T I & F Ö R Ð U N A R S T O F A
Hef hafið störf á
hársnyrtistofunni
LaBella, Furugerði 3,
sími 517 3322.
Verið velkomin.
AF ENGU TILEFNI ÆTLA 3 KARLAKÓRAR HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS AÐ
LEIÐA SAMAN RADDIR SÍNAR OG GLEÐJAST SAMAN Í SÖNG.
KÓRARNIR FLYTJA SÉR OG SAMAN, NÝ OG GÖMUL LÖG ÚTSETT FYRIR
KARLAKÓRA.
KARLAKÓR KÓPAVOGS
50 SÖNGMENN
STJÓRNANDI GARÐAR CORTES
WWW.KARLAKOR.COM
KARLAKÓR KJALNESINGA
50 SÖNGMENN
STJÓRNANDI ÖRLYGUR ATLI GUÐMUNDSSON
WWW.KARLAKOR.IS
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
70 SÖNGMENN
STJÓRNANDI FRIÐRIK S. KRISTINSSON
WWW.KKOR.IS
LANGHOLTSKIRKJA
23. FEBRÚAR 2013, KL. 17.00
MIÐAVERÐ 3.000,-
MIÐAR ERU SELDIR Í GEGNUM HEIMASÍÐUR
KÓRANNA OG VIÐ INNGANGINN.
„Ég kalla tónleikana Á leið til
Barselóna því við erum með nokk-
ur spænsk verk í tilefni þess að
kórinn er á leið til Barselóna í
júní. Það ríkir mikil eftirvænting
og dagskráin annað kvöld tekur
mið af því,“ segir Jón Stefánsson,
stjórnandi Gradualekórs Lang-
holtskirkju. Hann svarar símanum
úti í móa, nýkominn af hestbaki
og er að fara í maðkaveitu. Hann
ræktar nefnilega hvítmaðk til
að nota í beitu þegar hann veiðir
gegnum ís. Samt er hann með á
nótunum!
„Við verðum með tónleika í
kirkjum á Spáni og því erum við
með mörg Maríuverk. Meðal þeirra
er Nigra sum, eða Svört er ég, sem
Pablo Casals samdi fyrir drengja-
kórinn í Montserrat-klaustrinu, í
nágrenni Barselóna, þar sem kór-
inn mun syngja en þar er hin fræga
mynd af svörtu Maríu. En eins og
alltaf þegar við förum til útlanda
er meirihluti verkanna íslenskur,
svo sem Maríuverk eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur, Atla Heimi
og Báru Grímsdóttur og svo bara
klassík sem verður alltaf að vera
með, eins og Maístjarnan, sem fólk
fellur alltaf í stafi yfir því það er
svo flott lag.“
Þess má geta að undirleikari á
orgel og píanó í Langholtskirkju á
morgun verður Tómas Guðni Egg-
ertsson. Aðgangseyrir er 2.000
kr en 1.500 fyrir eldri borgara,
öryrkja og námsmenn og ókeypis
fyrir börn. - gun
Á leið til Barselóna
Gradualekór Langholtskirkju heldur tónleika í Lang-
holtskirkju á morgun, 17. febrúar klukkan 20.
FERÐAGLAÐUR GRADUALEKÓR Hér er kórinn staddur við minnismerkið um stóra
Skeiðarárhlaupið 1996.
MENNING