Fréttablaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 44
FÓLK|
HÆFILEIKARÍK
„Tónlistarhæfileikinn
kemur ekki frá pabba en
mamma hefur rödd þótt
hún vilji ekki gangast
við því. Amma sagðist
hafa sungið og frændi
minn samdi dægurlagið
Fiskinn minn. Því eru
smávegis tónlistarhæfi-
leikar í ættinni.“
MYND/VALLI
„Ég hef samið eigin tónlist síðan ég
var smástelpa en er enn svo ung að ég
vil þróast áfram sem tónlistarmaður
áður en ég læt lögin mín heyrast,“
segir Sylvía sem æfir sig heima í bíl-
skúr.
„Pabbi byggði bílskúr fyrir bílana
sína en var svo góður að eftirláta mér
skúrinn fyrir söngaðstöðu. Ég hef
alltaf verið óhrædd við að koma fram
og veit ekki hvaðan það sjálfstraust
og hugrekki kemur. Þetta snýst um að
trúa á sjálfan sig. Þá getur maður allt.“
Sylvía hefur háleit markmið þegar
hún lítur til framtíðar sinnar sem
listamanns.
„Ég vil nota rödd mína til að bæta
heiminn og að fólk muni eftir mér
fyrir að hafa látið gott af mér leiða.
Ég verð oft brjáluð yfir því óréttlæti
og eymd sem ég sé í fréttum og hefur
alltaf langað að hjálpa til í heiminum
því svo fáir gera það. Ég vil feta í fót-
spor Michaels Jackson og Bítlanna
sem sungu um frið og lít upp til fólks
sem axlar ábyrgð,“ segir Sylvía sem
ætlar einnig að stofna sjóð fyrir les-
blind börn á Íslandi.
„Ég er lesblind og veit að það
skiptir sköpum fyrir lesblind börn að
geta sótt aukatíma. Ég er líka með-
vituð um að það eru ekki öll börn jafn
heppin og ég að eiga þess kost. Því vil
ég að lesblind börn geti sótt í sjóðinn
því skólinn dugar þeim ekki einn til að
vinna á lesblindunni.“
ÁST VIÐ FYRSTU SÝN
Sylvía verður sautján þann 27. febrúar.
„Þann daginn fæ ég bílpróf og get ekki
beðið. Ég hlakka mikið til frelsisins og
að þurfa ekki lengur í strætó eða biðja
um skutl,“ segir Sylvía sem hefur
augastað á nýrri Volkswagen-bjöllu
sem fyrsta bíl.
„Mamma er svo forsjál. Frá því ég
var lítil hefur hún lagt allan pening
sem ég hef fengið í gjafir inn á banka-
bók. Því á ég nú orðið fyrir nýjum bíl
en reikna með að vinna baki brotnu í
ár til viðbótar vegna þess að bjallan
er svo dýr. Í millitíðinni fæ ég kannski
lánaðan bíl hjá mömmu og pabba,“
segir Sylvía brosmild.
Um helgina eru tvö ár síðan Sylvía
og kærastinn, Róbert Freyr Saman-
iego, byrjuðu saman og upp á það
ætla þau að halda.
„Ég elska Róbert meira en allt og
við ætlum alltaf að eiga hvort annað.
Það var ást við fyrstu sýn þegar ég
sá hann fyrst. Okkur þykir skemmti-
legast að fara í bíó, út að borða og að
spila í hópi góðra vina.“
Um helgina ætlar Sylvía líka að lesa
undir próf.
„Ég læri mikið vegna lesblindunnar.
Það á eftir að koma sér vel í fram-
tíðinni því þá kann ég betur að leggja
hart að mér. Lesblindan kom í ljós
í níunda bekk. Þá fékk ég yfir átta í
meðaleinkunn en sá fram á að komast
ekki í Versló því þar er krafist níu í
meðaleinkunn,“ segir Sylvía sem tók
ákvörðun um að taka sig verulega á til
að ná takmarki sínu.
„Mig hafði dreymt um að komast
í Versló síðan ég var sex ára og
barnapían okkar var í Versló. Les-
blindan hafði aldrei háð mér en þegar
ég hugsaði til baka átti ég oft erfitt
með að muna hvað ég las og muna
hvað við mig var sagt í fyrirmælum.
Lesblinda er miklu erfiðari en fólk
gæti grunað en með mikilli vinnu eru
allir vegir færir.“
■ thordis@365.is
10.000 dúnsængur
Settu nafnið þitt í pott í
verslun og þú getur unnið
sæng fyrir alla fjölskylduna
Við fögnum 10.000 ánægðum viðskiptavinum og bjóðum
fleiri í hópinn með risatilboði á öllum dúnsængum.
GUNNAR NELSON
Í BEINNI
GUNNAR NELSON
TILBOÐ Á BJÓR
GREIFARNIR Í KVÖLD
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir