Fréttablaðið - 16.02.2013, Síða 8
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Félagsfundur í Samtökum félaga
í velferðarþjónustu (SFV) hvatti
í gær aðildarfélög sín til að skoða
það alvarlega að hætta að greiða
áfallnar lífeyrisgreiðslur til Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins
(LSR). Þess utan telja samtökin að
ríkinu beri að endurgreiða þeim
1,5 milljarða króna vegna þeirra
greiðslna sem aðildarfélögin hafa
þegar greitt. Þetta kemur fram
í ályktun sem samþykkt var á
félagsfundi SFV í gær.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að Hrafnista, eitt aðildar-
félaganna, hefði ákveðið að hætta
að greiða hinar áföllnu lífeyris-
skuldbindingar síðastliðinn þriðju-
dag. Bréf þess efnis var sent
Guðbjarti Hannessyni velferðar-
ráðherra og Katrínu Júlíusdóttur,
fjármála- og efnahagsráðherra,
samdægurs. Gísli Páll Pálsson,
formaður SFV, segir engin við-
brögð hafa borist frá ráðuneytun-
um síðan bréfið var sent.
Vilja 1,5 milljarða
Málið snýst um að aðildarfélög
SFV hafa ekki greitt áfallin líf-
eyrisréttindi þeirra starfsmanna
sinna sem eru annaðhvort í B-deild
LSR eða í Lífeyrissjóði hjúkrunar-
fræðinga árum saman. Félögin fá
samt sem áður rukkanir í hverjum
mánuði vegna hinna vangoldnu
iðgjalda. Ógreiddar lífeyrisskuld-
bindingar eru fimm til sex millj-
arðar króna hið minnsta.
Ríkið hefur talið þau gjöld sem
aðildarfélögin greiða mánaðar-
lega sem sína greiðslu vegna
þess að þau séu hluti af svoköll-
uðum daggjöldum. Daggjöld eru
föst krónutala sem greidd er fyrir
hvert hjúkrunarrými stofnana sem
ekki eru á föstum fjárlögum. Sam-
kvæmt reglugerð er þeim ætlað að
mæta eðlilegum rekstrarkostnaði
án viðhalds húsnæðis. Afstaða SFV
og aðildarfyrirtækja þess er sú að
daggjöldin, eins og þau eru í dag,
eigi ekki að ná yfir lífeyrisskuld-
bindingar. Því eigi ríkið að endur-
greiða þeim 1,5 milljarða króna
vegna ofgreiddra greiðslna. Sam-
tökin hafa kallað eftir því að ríkið
upplýsi um samsetningu daggjalda
en þær upplýsingar hafa ekki feng-
ist frá hinu opinbera.
Staðfest í bréfi
Þá telja SFV að ríkinu beri að
semja um þær greiðslur sem eiga
að koma til greiðslu á næstu ára-
tugum. Óformlegar viðræður um
málið hófust árið 2004 og hafa
staðið yfir með einhverjum hætti
alla tíð síðan. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins ríkti mikil
jákvæðni um að lausn myndi finn-
ast innan SFV. Greindu þau vilja
hjá ríkinu til að leysa málið. Því til
stuðnings vísa samtökin í bréf sem
Berglind Ásgeirsdóttir, þáverandi
ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu, sendi Indriða Þorlákssyni,
þáverandi ráðuneytis stjóra í fjár-
málaráðuneytinu. Í bréfinu segir
meðal annars að „í for sendum
þeim sem liggja til grundvallar
ákvörðun daggjalda er ekki tekið
tillit til skyldu stofnana og aðildar-
fyrirtækja í SFH [nú SFV] að greiða
hækkanir á lífeyrisskuldbinding-
um […] Samkvæmt upplýsingum frá
SFH [nú SFV] eru þessar greiðslur
farnar að hafa veruleg áhrif á
fjárhagslegan rekstur fyrir tækja
þeirra og geta þær ekki borið hann
til lengdar“. Í þessu bréfi segir
Berglind mjög skýrt að ekki eigi að
nota daggjöld til að greiða lífeyris-
skuldbindingar.
Kúvending á afstöðu
Á undanförnum árum hefur hins
vegar orðið kúvending á afstöðu
ríkisins. Í febrúar 2012 sendu lög-
fræðingar hjá fjármálaráðuneytinu
síðan bréf til SFV þar sem því er
hafnað að semja um málið og full-
yrt að áfallnar lífeyrisskuldbind-
ingar hafi verið greiddar með þeim
daggjöldum sem ríkið hafi greitt
aðildarfélögum þeirra ár hvert.
Síðan þá hefur ekkert gerst í
málinu þar til í þessari viku þegar
Hrafnista ákvað að hætta að greiða.
Þess í stað munu öll innheimtubréf
frá LSR verða send áfram til vel-
ferðarráðuneytisins.
Skuld íslenska ríkisins vegna B-
deildar LSR er eitt stærsta fjár-
hagslega vandamál sem íslenska
ríkið glímir við. Í lok árs 2011 var
áfallin tryggingafræðileg skuld
hennar 543 milljarðar króna og
óuppgerð áfallin skuldbinding
461 milljarður króna. Stærstur
hluti hennar lendir á íslenska rík-
inu, eða um 400 milljarðar króna.
Ef fleiri aðilar sem hafa greitt
áfallnar lífeyris greiðslur hætta
að greiða, líkt og Hrafnista, mun
hlutdeild ríkisins aukast.
Ef byrjað hefði verið að greiða
niður þessa skuld á síðasta ári
myndu opinberir aðilar þurfa að
greiða um átta milljarða króna
á ári. Þær greiðslur myndu ná
hámarki árið 2024, þegar þær
yrðu um átján milljarðar á ári,
en þær síðan lækka jafnt og þétt
eftir það.
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Úrvalið er í Útilíf
Láttu hart
mæta hörðu
Nú eru hjálmadagar í Útilíf,
20% afsláttur af öllum
skíða- og brettahjálmum.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
UMHVERFISMÁL Ríkisstjórnin
samþykkti í gær að starfshópur
ráðuneyta vegna síldardauðans
í Kolgrafafirði ynni tillögur til
ríkis stjórnar um útgjöld vegna
þeirra verkefna sem ráðast þarf í.
„Ljóst er […] að síldardauðinn í
Kolgrafafirði hefur óhjákvæmi-
leg útgjöld í för með sér umfram
þær fjárveitingar sem ríkisstjórn
hefur þegar samþykkt til vöktunar
og eftirlits,“ segir í tilkynningu.
Róbert A. Stefánsson, for-
stöðumaður Náttúrustofu Vestur-
lands (NV), var í Kolgrafafirði á
fimmtudag ásamt samstarfsfólki.
Sást til yfir 20 arna sem virtust
lausir við grútarbleytu, að mestu.
„Þetta eru góðar fréttir og létta
áhyggjunum örlítið í bili,“ segir
Róbert en bætir við að hættan á
að ernir lendi í grútnum sé áfram
fyrir hendi.
Áfram er gríðarlegt líf á svæð-
inu. „Þarna voru á milli 400 og 500
súlur, líklega 20-25 þúsund máfar
og fýlar og tugir háhyrninga,“
nefnir Róbert sem dæmi. „Ábend-
ingar um erni og aðra fugla sem
grunur leikur á að séu grútar-
blautir eru þegnar með þökkum“,
segir Róbert. - shá
Hreinsunarstarfi í Kolgrafafirði miðar vel:
Setjast yfir kostnað
vegna síldardauðans
Til stendur að færa öldrunarþjónustu frá ríki til sveitarfélaga um næstu
áramót. Sú deila sem er uppi á milli SFV og ríkisins vegna áfallinna líf-
eyrisskuldbindinga gæti stefnt þeirri yfirfærslu í hættu. Í bókun frá stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem dagsett er 7. september 2012 og
var send Velferðarráðuneytinu í bréfi fimm dögum síðar, segir að hún telji
„mikilvægt að sem allra fyrst verði gengið frá uppgjöri lífeyrisskuldbind-
inga vegna starfsfólks öldrunarheimila, en slíkt uppgjör er forsenda þess
að unnt verði að halda áfram viðræðum um flutning á þjónustu við aldrað
fólk frá ríki til sveitarfélaga“.
Gæti stefnt tilfærslu á öldrunarþjónustu
til sveitarfélaga í hættu
„Fjölmennur félagsfundur SFV skorar á velferðar- og fjármálaráðherra að
beita sér nú þegar fyrir lausn þess vanda sem aðildarfélögin glíma nú við
vegna áfallinna lífeyrisskuldbindinga sem ríkinu ber að greiða. Þessi skuld
ríkisins við aðildarfélög SVF nemur nú um 1,5 milljörðum króna. Fundur-
inn hvetur aðildarfélögin til að skoða það alvarlega, hvert fyrir sig, að fara
þá leið sem Hrafnista hefur kosið og stöðva greiðslur áfallinna lífeyris-
skuldbindinga og vísa þeim þar með til ráðherra velferðar og fjármála.“
Ályktun SFV frá 15. febrúar 2013
Hvetja aðildarfélög
til að hætta að borga
Samtök félaga í velferðarþjónustu hvetja aðildarfélög sín til að skoða að hætta að
borga áfallnar lífeyrisskuldbindingar. Telja ríkið skulda sér 1,5 milljarða króna og
að ógreiddar áfallnar skuldbindingar séu um fimm til sex milljarðar hið minnsta.
FLUTNINGUR Til stendur að flytja öldrunarþjónustu frá ríki til sveitarfélaga um
næstu áramót. Deila SFV og ríkisins stefnir þeim flutningi í hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í KOLGRAFAFIRÐI Hreinsunarstarfi
miðar vel. Vinna við að grafa dauða síld
í fjörunni er langt komin og flutningur á
grút úr fjörunni er hafinn.
MYND/BJARNI SIGURBJÖRNSSON
FRÉTTASKÝRING
ÓSAMKOMULAG UM LÍFEYRISSKULDBINDINGAR