Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 24

Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 24
HELGIN 16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR Tölvuframleiðandinn Apple í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur undanfarið verið á milli tannanna á fólki fyrir gríðar- lega auðsöfnun fyrirtækisins. Í lok síðasta árs átti Apple 137 milljarða dollara af óráðstöfuðu handbæru fé, jafngildi 17.640 milljarða íslenskra króna. Vanalega safna fyrirtæki ekki peningum eins og Apple gerir, eiga heldur fyrir rekstri nánustu framtíðar og setja rest- ina af reiðufé sínu í fjárfesting- ar eða greiða arð. Ef það vant- ar meira fjármagn í reksturinn fæst það að láni. Apple hefur aldrei gefið aðrar skýringar á því hvers vegna það situr á svo stórri hrúgu af peningum en að það bíði eftir réttu tækifæri til að eyða þeim í eitthvað þarft. Til þess að setja þessa fárán- legu upphæð í einhvers konar samhengi gæti Apple keypt alla þekktustu samfélagsmiðla í heimi og átt tvo milljarða dollara í afgang, gefið öllum starfsmönnum sínum 1,7 millj- óna dollara bónusgreiðslu eða gefið hverri íslenskri konu tæp- lega 110 milljónir króna að gjöf. - bþh Apple situr á óráðstafaðri peningahrúgu Bandaríski tölvurisinn Apple á ótrúlegt magn óráðstafaðs fj ármagns sem enginn veit hvað gera á við. Ég bjóst alls ekki við því að vinna en ég stefndi auðvitað að því,“ segir Gunn-ar Helgi Guðjóns-son, myndlistar- maður og kaffibarþjónn, sem er sá fyrsti sem fagnar sigri í Masterchef á Íslandi. Gunn- ar Helgi hefur lengi verið áhugakokkur eins og þeir vita sem fylgdust með þátt- unum sem sýndir voru á Stöð 2 en úrslitaþátturinn var í gær. „Ég hef alltaf haft rosa- lega gaman af því að elda og baka. En ég fór reyndar mjög leynt með það á unglings- árunum. Fannst það held ég svo homma legt,“ segir Gunn- ar Helgi, sem er samkyn- hneigður og löngu kominn út úr skápnum þótt það hafi tekið „allt of langan tíma“, eins og hann segir sjálfur. „Ég kom út úr skápnum þegar ég var að byrja í Listaháskólanum, þá var ég í mikilli sjálfskoðun og sá að það var ekki hægt að fara í felur með kynhneigðina. Og því var bara mjög vel tekið í kringum mig. Ég verð líka að segja að mér þykir frá- bært hversu mikið fordómar gegn samkynhneigðum eru á undanhaldi, mér þykir margt hafa breyst til batnaðar í þeim efnum bara undanfarin ár,“ segir Gunnar Helgi sem starfar í dag sem kaffibar- þjónn á Kaffismiðjunni, en kaffiheimurinn hefur átt hug hans allan undanfarið ár. Þar áður vann hann í nokkur ár hjá Listasafni Mosfellsbæjar. Langaði aldrei í kokkinn „Ég átti þátt í því að búa til sýningaraðstöðu og kom að öllum hliðum þess verkefnis, sýningarstjórn og skipulagi, að semja fréttatilkynningar og þar fram eftir götunum. Það var mjög skemmtilegt en svo fékk ég allt í einu nóg af því. Ég komst líka að því að ég fengi hærri laun sem bar- þjónn en sem opinber starfs- maður,“ segir Gunnar Helgi og brosir. „Ég gerðist bar- þjónn á Trúnó og þar kvikn- aði mikill kaffiáhugi hjá mér. Þaðan lá svo leiðin á Kaffi- smiðjuna, þar sem ég vinn núna.“ Þrátt fyrir mikinn áhuga á eldamennsku á unga aldri hvarflaði aldrei að Gunnari að gerast kokkur. „Nei það kom ekki til greina, elda- mennska og bakstur voru og eru fyrst og fremst áhuga- mál. Eftir að hafa verið fjögur ár frekar utanveltu á náttúrufræðibraut í Mennta- skólanum við Sund fór ég í Myndlistarskólann í Reykja- vík og undirbjó mig þar fyrir inntökupróf í Listaháskólann og þaðan lauk ég námi 2006.“ Sjónvarpið heillar Gunnar Helgi segir að það hafi verið mjög gaman að elda fyrir framan myndavélarn- ar þó að það hafi verið mjög stressandi líka, sérstaklega fyrst. „Ég var mjög stressað- ur í fyrsta sinn sem ég mætti og átti bara að elda eitthvað. Ég vissi ekkert hvað hinir voru að gera og var alveg að fara á taugum. Það er kannski skýringin á því að ekkert var sýnt af mér frá þeirri upp- töku,“ segir Gunnar og hlær. En frammistaða hans heill- aði þáttastjórnendur og í þátt- unum sem fylgdu í kjölfar- ið hefur hann náð að heilla áhorfendur upp úr skónum, hvort sem er með frum- lega samsettum réttum eða Donnu Summer-bollakökum. „Mér leið vel á tökustað og fannst orkan sem myndaðist þar mjög skemmtileg. Ég gæti alveg hugsað mér að vinna á þessum vettvangi, sjónvarp- ið er mjög heillandi heimur,“ segir Gunnar Helgi að lokum. Eldaði í laumi á unglingsárum Gunnar Helgi Guðjónsson fór með sigur af hólmi í Masterchef-keppninni á Stöð 2 sem lauk í gærkvöldi. HEFUR LENGI VERIÐ MASTERCHEF-AÐDÁANDI Gunnar Helgi Guðjónsson hefur lengi fylgst með erlendum Masterchef-þáttum og greip því tækifærið og skráði sig til leiks í haust og sér ekki eftir því. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is HVAÐ GETUR APPLE GERT FYRIR 17.640.000.000.000 KRÓNA? 213.000.000 Apple gæti keypt Apple gæti keypt 100.000 lúxusíbúðir á Manhattan í New York. Kristín Tómasdóttir rithöfundur Sveit, skíði og syst- kinabarnapartí „Ég verð á hestbaki og dekri á Torfastöðum með vinkonu minni og sonum okkar í dag. Svo fer ég í systkinabarna- partí í kvöld og á morgun ætla ég með skíðasnillingn- um syni mínum í Bláfjöll.“ Eiríkur Ingi Jóhannsson sjómaður Sonurinn á afmæli „Ég er að fara í fertugsaf- mæli þar sem bardaginn með Gunnari Nelson verður á stórum skjá. Svo er ég að fara að halda upp á sjö ára afmæli sonar míns.“ Sara Dögg Ásgeirsdóttir leikkona Nýbökuð móðir „Ég var bara að eignast lítinn strák svo ég verð í því að sinna honum um helgina og ég mun horfa á Edduverð- launahátíðina úr fjarska í ár.“ Gísli Einarsson sjónvarpsmaður Þorrablót og Eddan sama kvöld „Ég verð að undirbúa þorra- blót í Borgarnesi í dag sem ég ætla að skemmta mér á eftir Edduna í kvöld. Svo fer ég á fjöll að taka upp efni fyrir Landann á morgun.“ 14.880 km út í geim Ef að upphæðinni yrði staflað í aðeins eins doll- ara seðlum myndi staflinn ná 14.880 kílómetra hæð eða 38 sinnum lengra en hæð alþjóðlegu geimstöðv- arinnar. iPhone-síma á markaðsvirði og gefið öllum Bandaríkjamönnum sem búa austan Mississippi-ár og í Texas.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.