Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 26

Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 26
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Við lásum Íslendinga-sögurnar í skóla í Sviss og ég heillaðist af land-inu. Ég hafði sérstaka mynd af Íslandi í huga mér og þegar ég kom hingað í fyrsta sinn komst ég að því að landið var nákvæmlega eins og ég hafði ímyndað mér það.“ Þetta segir Svisslendingur- inn Rudolph Walter Lamprecht, sem hefur undanfarin ár keypt jarðir á Íslandi. Hann á nú sex jarðir að fullu og þá sjöundu að hluta. Nokkur styr hefur staðið um kaup erlendra auðmanna á íslenskum jörðum. Lamprecht segist vel skilja varfærni Íslend- inga í þessum efnum. Það þurfi hins vegar ekki að vera slæmt að útlendingar eigi jarðir á Íslandi. Sjálfur sé hann rekinn áfram af áhuga sínum á náttúruvernd. „Náttúruvernd réði fyrst og fremst jarðakaupum mínum. Auðvitað vil ég skapa verðmæti, en ég tel að það þurfi að gera mun meira í náttúruvernd á Íslandi en gert er. Hér er nægt landrými en það skortir reglur um landnotk- un. Það er allt of lítið skipulag á byggingum hérna; menn reisa hús hér, stærra hús þar og hlöðu hérna. Þið hafið svo mikið rými að þið hugið ekki nóg að skipu- laginu. En með þessu áframhaldi mun ekki líða á löngu þar til þið áttið ykkur á því að rýmið er tak- markað. Fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um náttúruvernd. Ísland virðist svo grænt og náttúrulegt en það má ekki gleyma því að stór landsvæði eru merkt jarðvegs- eyðingu. Fyrir þúsund árum var allt hér viði vaxið, en skógurinn hefur verið höggvinn niður og mikil jarðvegseyðing myndast.“ Milljónatuga skógrækt Lamprecht hefur ekki látið sitt eftir liggja þegar kemur að skóg- rækt. Hann plantaði um 320 þús- und plöntum í Heiðardal og öll vinnan við það kostaði hann yfir 400 þúsund dollara, vel yfir 50 milljónir íslenkra króna. „Ég plantaði bara íslenskum trjám, birki og víði. Svo lét ég girða fyrir ágangi sauðfjár og vona að komandi kynslóðir muni njóta lítils birkiskógar þarna. Náttúruvernd er mín helsta driffjöður. ég held líka að með breyttu gróðurfari muni skor- dýrafánan breytast og það bæti fuglalíf og skilyrði fiska. Það er markmið mitt.“ Lamprecht hyggst því reyna að endurheimta aftur það nátt- úrufar sem hann segir hafa ríkt hér á landi. Auk þess að planta trjám hyggst hann fylla upp í frárennslisskurði í Heiðardal og endurheimta þannig votlendi með tilheyrandi fuglalífi. Þá hyggst hann rífa þær byggingar sem eru í Heiðardalnum, utan sumarhúsið sem hann dvelur í. Þannig verði dalurinn sem náttúrulegastur. „Ég vil rækta skóg, koma í veg fyrir jarðvegseyðingu og minnka ummerki um mannvist eins og hægt er með því að fjarlægja byggingarnar. Ég vil koma land- inu í sem upprunalegast ástand með því að fylla upp í skurðina.“ Ótti við utanaðkomandi L a mprecht seg ist sk i lja umræðuna um útlendinga sem kaupi íslenskt land. Íslendingar séu eyþjóð og hann mundi sýna sömu viðbrögð væri hann Íslend- ingur. „Það sem þarf að gera er að skilgreina hvað kaupandinn má gera á jörðinni. Það þarf að vera skýrt, en það má ekki neyða eig- andann til að stunda hefðbundinn búskap. Í mínu tilfelli tel ég til dæmis að það sé betra að vernda náttúruna en að planta rófum og hafa sauðfé sem étur öll trén mín. Ef einhver segir við mig: Rudy, þú þarft sjálfur að stunda hér hefð- bundinn búskap, þá mun ég segja að hann hafi rangt fyrir sér. Svo stór hluti af Íslandi hefur verið lagður undir landbúnað og ég skil það vel. Þannig lifði fólk af í gegnum aldirnar og ég virði það. Í dag þarf þjóðin ekki svona mikið landflæmi til að lifa af. Það þurfti fyrir hálfri öld, en það er liðin tíð. Ég held að náttúruvernd sé mikilvæg. Sauðfé og skógrækt fara ekki saman, kindurnar éta trén. Ég girði því skógræktina af til að verja trén.“ Lamprecht segir að óttinn við uppkaup útlendinga sé skiljan- legur, hann sé einnig til staðar í Sviss. Þetta séu hins vegar fyrst og fremst tilfinningarök. Eignar- hald sé ekki vandamál ef skýrar reglur gilda um landnot. Verða að vera reglur Þar kemur að leiðarstefinu í hug- myndum Lamprechts varðandi jarðnotkun. Hann telur allt of fáar reglur gilda hér á landi. Séu regl- urnar skýrar skipti engu máli hver eigi jarðirnar. „Ég skil áhyggjurnar varðandi eignarhald útlendinga, en ef skýr- ar reglur gilda um landnotkun af hverju er það þá vandamál? Það mun ekki gerast að útlendingar eigi 30 til 40 prósent af íslensku landi. Þetta eru tilfinningarök, sem eru skiljanleg og er að finna alls staðar í Evrópu. Ég heyrði að ráðherra í ríkis- stjórninni hefði viljað setja regl- ur um að það yrði að yrkja jarðir á hefðbundinn hátt. En af hverju hefur hefðbundinn búskapur dreg- ist svo saman? Af því að það er ekki efnahagslega hagkvæmt að stunda hann. Ég ætla ekki að stunda búskap á landi sem ég vil vernda. Það skortir reglur um landnotkun og þá reglur sem auka verðmætið. Ef ráðherra segir að maður verði að búa á jörðunum þá er það ekki regla heldur hugmynd. Ég mundi vilja segja við hann, með fullri virð- ingu, að þá hugmynd verði að skoða betur. Er það í raun góð regla? Er það besta leiðin til að auka verð- mæti jarðanna? Ég held ekki. Það sem mun gerast er að útlendingar munu ekki kaupa neinar jarðir. Ég setti allt þetta fé í skógrækt af því að ég veit að það eykur gildi landsins. Aðrir útlendingar munu ekki gera slíkt hið sama ef krafan er uppi um að þeir búi hérna.“ Lamprecht segir að skipta eigi landinu upp í svæði. Stunda land- búnað á ákveðnum svæðum, reisa sumarhús á öðrum, vera með iðnað á sérstökum svæðum og afmarka ákveðin svæði fyrir verndun.“ „Ef reglur eru skýrar, hvert er þá vandamálið? Landið verður ekki svart þó útlendingar eigi það. Gras- ið deyr ekki. Þessi rök snúast fyrst og fremst um tilfinningar.“ Framhald á síðu 28 Ég skil áhygjurnar varðandi eignarhald útlendinga, en ef skýrar reglur gilda um land- notkun af hverju er það þá vandamál? Það mun ekki gerast að útlendingar eigi 30 til 40 prósent af ís- lenskum löndum. Þetta eru tilfinningarök, sem eru skiljanleg... Reglur vantar um jarðnot á Íslandi Svisslendingurinn Rudolph Walter Lamprecht á nú allan Heiðardal við Mýrdal og jarðir í Álftafirði. Hann hefur staðið fyrir umfangs- mikilli skógrækt í Heiðardal og vill endurheimta votlendi. Hann segir náttúruvernd hafa rekið hann til að eyða stórfé í íslenskt land. 1 2 3 4 5 6HVER Á ÍSLAND? Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Páll Hilmarsson pallih@gogn.in Lamprecht segir þær kjaftasögur hafa komist á kreik að hann vildi loka landsvæðum sínum fyrir umferð og banna veiði í Heiðarvatni. Það sé algjör firra, hann hafi ekki sett upp eina einustu keðju eða hlið á landareignum sínum. Allir geti keypt sér veiðileyfi í vatninu, en þar fór veiðileyfasala fram áður en hann keypti jörðina, og farið um jarðir hans. „En menn verða þá að virða reglur og aka á vegunum. Ég sætti mig ekki við það þegar fólk ekur utan vega. Það er ekki ég sem það geri, heldur Íslendingarnir á ofurjeppunum sínum. Þeir eru að eltast við hreindýr og aka þar sem þeim sýnist. Virði menn umgengni við landið eru þeir velkomnir á mínar jarðir.“ Allir velkomnir á jarðirnar mínar LANDEIGANDI Lamprecht á átta jarðir á Íslandi, þar af sjö lögbýli. Hann á allan Heiðardal og hefur fest kaup á jörðum í Geithellnadal í Álftafirði. Hann segir það vaka fyrir sér að vernda náttúruna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.