Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 30
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Sænski ljósmyndarinn Paul Hansen hreppti verðlaun fyrir bestu frétta-ljósmynd ársins 2012. Verðlaunin fékk hann fyrir mynd frá jarðarför á Gasa-strönd.Á myndinni sjást lík tveggja ungra
barna borin til grafar af hópi reiðra og sorg-
mæddra karlmanna. Myndin er tekin 20.
nóvember í Gasaborg, en börnin létu lífið í loft-
árás ísraelska hersins á borgina.
„Styrkur myndarinnar liggur í því hvernig
hún sýnir reiði og sorg hinna fullorðnu and-
spænis sakleysi barnanna,“ segir Mayu Moh-
anna frá Perú, ein úr dómnefnd World Press
Photo-verðlaunanna. „Þetta er mynd sem ég
mun ekki gleyma.“
Alls eru veitt verðlaun í níu flokkum, sem
þetta árið komu í hlut 54 ljósmyndara frá 32
löndum. Alls sendu 5.666 ljósmyndarar frá 124
löndum 103.481 ljósmynd til þátttöku í keppn-
inni. Verðlaunin eru með þeim virtustu í heimi
fréttaljósmyndara.
Mynd Hansens þótti best í flokki stakra
fréttaljósmynda og hlaut jafnframt verðlaun
sem fréttaljósmynd ársins.
„Ég er mjög ánægður en líka mjög dapur.
Fjölskyldan missti tvö börn og móðirin er með-
vitundarlaus á sjúkrahúsi,“ sagði Hansen.
Myndir frá átökunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs voru áberandi í flokkum fréttaljósmynda
þetta árið.
Bestu
myndirnar
verðlaunaðar
Meira en 50 ljósmyndarar hlutu verðlaun í hinni
árlegu myndakeppni World Press Photo þetta
árið. Ljósmynd frá útför tveggja ungra barna á
Gasa þótti besta fréttaljósmynd ársins 2012.
LESIÐ Á
HAUGUNUM
Bandaríski
ljós-
myndarinn
Micah Albert
hlaut fyrstu
verðlaun í
flokki mynda
samtíma-
málefna fyrir
mynd af konu
sem fann
sér lesefni á
ruslahaugum
í Naíróbí,
þar sem
hún vinnur
við að hirða
nýtilega hluti.
NORDICPHOTOS/
AFP
SIGUR-
VEGARI
Þessi mynd
af nauta-
kappreiðum
á Indónesíu
hlaut fyrstu
verðlaun í
flokki stakra
íþrótta-
ljósmynda.
Ljós-
myndarinn
heitir Wei
Seng Chen.
NORDICPHOTOS/AFP
ÚTFÖR Á GASA Sigurmynd sænska ljósmyndarans Pauls Hansen sýnir tvö börn borin til grafar eftir loftárásir ísraelska hersins. NORDICPHOTOS/AFP
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is