Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 34
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
➜ Ómar braut
styttuna
Ómar Ragnarsson hefur oftar
en einu sinni tekið við Eddunni,
nánar tiltekið fjórum sinnum:
tvisvar sinnum sem sjónvarps-
fréttamaður ársins og tvisvar
sem sjónvarpsmaður ársins.
Árið 2001, þegar Ómar tók á
móti verðlaununum sem sjón-
varpsmaður ársins, vildi svo
óheppilega til að hann braut
styttuna.
➜ María Heba lætur
dæluna ganga
Verðlaunahöfum á Eddunni er
jafnan uppálagt að stoppa stutt
við á sviðinu og vera gagn-
orðir í þakkarræðum sínum,
ellegar er hækkað í tónlistinni.
María Heba Þorkelsdóttir lét
slíkt um eyru þjóta þegar hún
hlaut verðlaunin í fyrir leik í
aukahlutverki í myndinni Okkar
eigin Osló. „Nei, ég er ekki
búin,“ sagði María Heba þegar
tónlistin byrjaði að óma og lét
dæluna ganga langt á þriðju
mínútu þar til hún hafði þakkað
öllum sem þakka þurfti.
➜ Logi Gervais
Logi Bergmann Eiðsson var
kynnir á Edduverðlaununum
í fyrra eins og í ár. Logi fór að
dæmi breska grínistans Ricky
Gervais á Golden Globe-há-
tíðinni um árið og reytti af sér
brandara á kostnað þeirra sem
í salnum sátum. Glensið fór
misvel í fólk. Myndavélinni var
til dæmis ósjaldan beint að
Rúnari Rúnarssyni, leikstjóra
verðlaunamyndarinnar Eldfjalls,
sem sat stjarfur undir gaman-
málum Loga og stökk ekki bros.
➜ Auglýsti eftir
vinnu
Fréttaskýringaþátturinn harð-
svíraði Kompás, sem var á
dagskrá hinnar skammlífu
sjónvarpsstöðvar NFS, var
valinn frétta- og viðtalsþáttur
ársins 2006. Verðlaunin voru
verðskulduð enda höfðu
umsjónarmenn þáttarins,
Jóhannes Kr. Kristjánsson og
Marteinn Þórisson, komið upp
um umfangsmikil sakamál á
borð við Byrgismálið. Stuttu
fyrir verðlaunahátíðina hafði
NFS hins vegar verið lögð
niður og var Marteini sagt upp
í niðurskurðinum. Stemningin á
sviðinu var óneitanlega dálítið
þvinguð þegar þeir félagar
tóku við verðlaununum
en Marteinn sló á létta
strengi og nota þakkar-
ræðuna til að auglýsa
eftir vinnu og gaf upp
símanúmerið sitt.
➜ Hlébarðagallinn
Fáir hafa vakið meiri eftir-
tekt á Edduverðlaununum og
Bjarnheiður Hannesdóttir,
sem tók við verðlaununum árið
2011 fyrir hönd aðstandenda
heimildarmyndarinnar Feat-
hered Cocaine, íklædd flegnum,
aðsniðnum samfestingi með
hlébarðamynstri. „Ég vissi á
fimmtudeginum fyrir Edduverð-
launahátíðina að ég myndi
mæta og hugsaði að ef ég þyrfti
að fara upp á svið yrði ég hvort
sem er allt öðruvísi en aðrir í
salnum, svo ég ákvað að gera
þetta bara á minn hátt,“ segir
Bjarnheiður, sem
hannaði sam-
festinginn sjálf.
Árið eftir vakti
það mikla
lukku þegar
Pétur Jóhann
Sigfússon
mætti á sviðið
á hátíðinni í sama
samfestingi.
➜ Sveppi og
netkosningin
Sverrir Þór Sverrisson– Sveppi
– kom mörgum í opna skjöldu
þegar hann gerði sér lítið fyrir
og vann titilinn sjónvarpsmaður
ársins á Edduverðlaununum
2002. Sveppi var á þeim tíma
ekki nærri jafn þekktur og
hann átti eftir að verða; hann
var einn af stjórnendum 70
mínútna á Popptíví og hafði
aðallega vakið athygli fyrir
ærslalæti og sprell. Hann var
hins vegar geysivinsæll meðal
unglinga og naut góðs af því í
netkosningu um titilinn sjón-
varpsmaður ársins. Í þakkarræð-
unni beit Sveppi höfuðið af
skömminni með því að
lýsa hvernig ætti að
svindla í netkosn-
ingu til að geta
kosið oftar en einu
sinni; maður færi
bara í „Tools“ og
síðan „Internet
options“ og
afhakaði
við
„ cookies“.
➜ Eddukóngurinn
Ingvar E. Sigurðsson er sá leikari sem
oftast hefur unnið til Edduverðlauna.
Ingvar hefur verið tilnefndur
til verðlaunanna fimm
sinnum og hreppt þau jafn-
oft, ávallt fyrir aðalhlutverk.
Ingvar hefur hlotið Edd-
una fyrir Slurpinn
og Co. (1999), Engla
alheimsins (2000),
Kaldaljós (2004),
Mýrina (2006) og
Foreldra (2007).
➜ Eddudrottningin
Engin leikkona hefur hreppt Edduna
oftar en Kristbjörg Kjeld. Kristbjörg hefur
fimm sinnum verið tilnefnd til Eddu-
verðlauna og hreppt
þau þrisvar. Kristbjörg
hlaut Edduna fyrir
leik í aukahlutverki
í Mávahlátri (2001)
og Kaldaljósi (2004)
og fyrir aðalhlutverk í
Mömmu Gógó (2010).
Auk þess hlaut Krist-
björg heiðursverð-
laun Eddunnar
ásamt Gunnari
Eyjólfssyni árið
2001.
➜ Dagur Eddunnar
Dagur Kári Pétursson er farsælasti
leikstjóri Edduverðlaunahátíðarinnar.
Hann hefur þrisvar verið tilnefndur til
Eddunnar fyrir leikstjórn og staðið með
pálmann í höndunum jafn oft. Dagur
hefur hlotið verðlaunin fyrir Nóa albinóa
(2003), Voksne Mennesker (2005) og
The Good Heart (2011). Tveir
aðrir leikstjórar hafa hlotið
verðlaunin tvisvar; Ragnar
Bragason fyrir Foreldra
(2007) og Bjarnfreðarson og
Fangavaktina (2010) og Balt-
asar Kormákur fyrir Hafið
(2002) og Mýrina (2006).
➜ Eini kvenleikstjórinn
Guðný Halldórsdóttir er eina konan sem
hefur unnið Edduna fyrir leikstjórn.
Hana hlaut hún fyrir Ungfrúna góðu
og húsið (1999). Guðný var
tilnefnd aftur fyrir leikstjórn
fyrir Veðramót (2007) en
fyrir utan hana er Erla B.
Skúladóttir eina konan
sem hlotið hefur til-
nefningu til leikstjóra-
verðlauna Eddunnar,
fyrir myndina Bjarg-
vættur (2004).
➜ Vænlegt til vinnings
Af þeim þrettán myndum sem hlotið
hafa Edduna í flokknum bíómynd ársins
eru átta byggðar á skáldsögum eða leik-
ritum: Ungfrúin góða og húsið, Englar
alheimsins, Mávahlátur, Hafið, Kaldaljós,
Mýrin, Brúðguminn og Brim.
➜ Feðgar tilnefndir fyrir
að leika sömu persónu
Einu sinni hefur það gerst að tveir
leikarar hafa verið tilnefndir fyrir túlkun
á sömu persónunni í sömu myndinni.
Ingvar E. Sigurðsson og sonur hans
Áslákur léku Grím í Kaldaljósi á mis-
munandi æviskeiðum og uppskáru báðir
tilnefningu fyrir. Aðeins tvisvar í sögu
Óskarsverðlaunanna hafa tvær leikkonur
verið tilnefndar fyrir að leika sömu
manneskju í sömu mynd. Kate Winslet
og Gloria Stuart voru báðar tilnefndar
fyrir túlkun sína á Rose í Titanic (1997)
og Winslet var aftur tilnefnd ásamt Judi
Dench fyrir túlkun þeirra á Iris Murdoch
í myndinni Iris (2001).
➜ Elsti verðlaunahafinn
Fyrir utan heiðursverðlaunahafa
er Herdís Þorvaldsdóttir elsti
handhafi Eddunnar. Herdís
fékk verðlaunin fyrir leik
í aukahlutverki í Hafinu
(2002), þegar hún var 79 ára
gömul.
➜ Brosir í gegnum sminkið
Ragna Fossberg sminka hefur
fjórum sinnum unnið til
Edduverðlaunanna fyrir
förðun: fyrir myndirnar
Dómsdag og Ungfrúin
góða og húsið (1999), fyrir
Spaugstofuna (2008) og
í tvígang fyrir Áramóta-
skaupið (2009 og 2012).
➜ Handritshöfðingjarnir
Ragnar Bragason og Dagur Kári hafa oft-
ast unnið til Edduverðlauna fyrir handrit
ársins. Ragnar fékk verð-
launin ásamt leikhópnum
í myndunum Börn (2006)
og Foreldrum (2007) og
fyrir Bjarnfreðarson (2010),
ásamt Jóhanni Ævari Gríms-
syni og aðalleikurum
Vaktabálksins.
Dagur Kári hlaut
handritsverðlaunin
fyrir Nóa albinóa
(2003), Voksne
Mennesker
(2005) og The
Good Heart
(2011).
➜ Farsæl Egils saga
Enginn sjónvarpsmaður hefur notið
meiri velgengni á Edduverðlaunahá-
tíðinni en Egill Helgason, sem hefur
sankað að sér verðlaunum í gegnum
tíðina. Þáttur hans Silfur Egils var valinn
sjónvarpsþáttur ársins 2000. Nokkrum
árum síðar, þegar verðlaunaflokkum
hafði fjölgað, var Silfrið valið frétta-
og viðtalsþáttur ársins 2008 og 2010.
Bókaþátturinn Kiljan var hins vegar
valinn menningar- og/eða lífsstílsþáttur
ársins 2007, 2008 og
2010. Sjálfur var Egill
valinn sjónvarps-
maður árins 2007
og 2008. Alls hafa
Egill og þættir
hans því hlotið
átta Edduverðlaun.
Yfirburðir á Eddunni
Edduverðlaunin verða afhent í fjórtánda sinn í Hörpu í kvöld. Fréttablaðið fór á stúfana og skoð-
aði hverjir hafa verið sigursælastir í sögu verðlaunanna, sem voru fyrst veitt 1999.
EFTIRMINNILEG ATVIK Á EDDUNNI