Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 38

Fréttablaðið - 16.02.2013, Side 38
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 Það var mikil hamingja að komast aftur þangað sem ég á heima, á hestbaki, en auð-vitað var líka erfitt að geta ekki stokkið á bak, full af orku með frískan og heilbrigðan líkama,“ segir Anna Rebecka Einars- dóttir tamningakona eftir fyrsta reið- túrinn frá því hún slasaðist alvarlega fyrir rúmum fimm mánuðum. Í þetta sinn var hún teymd á hesti af Berglindi Árnadóttur, sem heldur námskeið fyrir fatlaða á vegum Hestamenntar. „Þetta var góð þjálfun fyrir mig líkamlega, bæði liðkandi og styrkjandi,“ segir Anna Rebecka. „Fyrir utan hvað það gaf mér mikið að finna lyktina af hestinum og hlýjuna.“ Eins og bókahilla sem fer á hvolf Hún bar eftirnafnið Wohlert þar til fyrir skemmstu að hún fékk íslenskan ríkisborgararétt. „Það var nýtt upphaf,“ segir hún brosandi. Nú er hún skrifuð Einarsdóttir, því Einar Öder Magnús- son, reiðkennari í Halakoti í Flóa, léði hanni nafnið sitt. Eftir slysið kveðst Anna Rebecka hafa orðið að endurskoða eigið líf. „Ég er svolítið eins og bókahilla sem fer á hvolf og þarf að sortéra í aftur hvaða bækur eigi að vera þar og hvernig eigi raða þeim,“ segir hún þar sem hún dvelur á Reykjalundi í endurhæfingu. Sú vinna er að skila árangri. Á tímabili gat hún ekki sent SMS en nú situr hún og prjónar. Hún lenti í alvarlegu slysi í september síðastliðnum og lamaðist eftir það frá toppi til táar en lömunin kom í köflum. „Þegar ég var verst gat ég varla gert stút á varirnar til að drekka með röri og átti erfitt með að AÐ VERA KIPPT ÚT ÚR LÍFINU Í KEPPNISBRAUT Á SAUÐÁRKRÓKI Á Dalrós frá Miðgerði sem hún keppti á í fjórgangi í 1. flokki í maí 2012. Á LEIÐ Í ÚTREIÐARTÚR Anna Rebecka og hin bleikálótta Dirfska frá Þúfum. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI kyngja, varð að biðja fólk að hreyfa á mér höfuðið ef ég vildi horfa til hliðar og gat ekki notað fingurna. Síðan hvarf öll hreyfigeta og tilfinning í fótum. Nú er mátturinn að koma hægt og rólega til baka í efri hluta líkamans og ég hef orðið tilfinningu í fótunum. Ég er að æfa mig í að sitja í lágum stól sem er ekki með hnakkastykki og hálsinn er alltaf að styrkjast. Samt get ég ekki enn alveg haldið haus.“ Hún segir ekki um mænuskaða að ræða heldur truflanir í taugabrautum. „Það má líkja þessu við sinfóníuhljóm- sveit sem nær engum samhljómi því stjórnandinn stýrir sveitinni ekki rétt þó að spilarar og hljóðfæri séu til stað- ar,“ segir Anna Rebecka, sem fær af og til sára taugakippi í líkamann og tekur þá smá andköf, jafnvel í miðjum setn- ingum. „Þetta er líkast því að fá straum frá rafmagnsgirðingu,“ útskýrir hún. Ástfangin af hestunum Anna Rebecka er 26 ára, sænsk að upp- runa og ólst upp í Gautaborg. Þar byrj- aði hún níu ára gömul að umgangast hesta og keppti meðal annars í hindr- unarstökki. Íslenskum hestum kynntist hún fimmtán ára því menntaskólinn Draumur Önnu Rebecku frá unga aldri var að starfa við hesta. Sá draumur rættist en í september 2012 var henni kippt út úr sínu daglega lífi er hún lenti í alvarlegu hestaslysi. Hún hefur verið í endurhæfingu á Reykjalundi siðan í október og nýlega fór hún á bak í fyrsta skipti eftir slysið. ALLTAF MEÐ EITTHVAÐ Á PRJÓNUNUM Fyrir utan að vera ómetanleg dægradvöl á kvöldin hefur prjónaskapurinn hjálpað Önnu Rebecku með samhæfingu hreyfinga eftir að hún komst upp á lagið. Hér er hún að búa til krúttlegt krakkaponsjó með hettu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Þegar ég var verst gat ég varla gert stút á varirnar til að drekka með röri og átti erfitt með að kyngja, varð að biðja fólk að hreyfa á mér höfuðið ef ég vildi horfa til hliðar og gat ekki notað fingurna. Síðan hvarf öll hreyfi- geta og tilfinn- ing í fótum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.