Fréttablaðið - 16.02.2013, Síða 47
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Það er þinn hagur að fylla út almenna umsókn á vefsíðunni
okkar, www.hagvangur.is.
Þannig getum við komið þér á framfæri við viðskiptavini sem kjósa
að auglýsa ekki laus störf. Við erum stöðugt að leita að góðu fólki til
spennandi starfa hjá traustum fyrirtækjum.
Starfsfólk Hagvangs leggur sig fram við að samþætta hag einstaklinga
og velgengni fyrirtækja og það er því engin tilviljun að Hagvangur
er nú eitt öflugasta ráðgjafar- og ráðningarfyrirtæki á íslenskum
vinnumarkaði.
Vitum við af þér?
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns Hornafjarðarsafna. Starfið heyrir undir bæjarstjóra
Hornafjarðar. Leitað er að áhugasömum einstaklingi um þróun og uppbyggingu almenningsbóka-
safns og almenns safnastarfs, varðveislu, rannsóknir og miðlun þess sem til vitnis er um manninn,
sögu hans og menningu, náttúru og umhverfi.
Upplýsingar veita:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og gæðastjóri
sími 470-8000
bryndis@hornafjordur.is
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 4. mars nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is með
upplýsingum um náms- og
starfsferil ásamt kynningarbréfi.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Stýrir daglegum rekstri stofnunarinnar
• Hefur yfirumsjón með starfsmannamálum á stofnuninni
• Yfirumsjón með héraðsskjalasafni
• Yfirumsjón með byggða- og náttúrugripasafni
• Yfirumsjón með starfsemi bókasafns, sem þjónar bæði almenningi
og Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu
• Ber ábyrgð á þróun safnamála í samræmi við gildandi lög
• Starfar með atvinnu- og menningarmálanaefnd að stefnumótun í
safnamálum
• Situr fundi bæjarráðs Hornafjarðar sé þess óskað
• Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Góð þekking á safnamálum
• Skipulagshæfileikar, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð
í mannlegum samskiptum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslenskukunnátta og færni í að koma frá sér
efni í rituðu og töluðu máli
• Reynsla af stjórnun nauðsynleg
Forstöðumaður Hornafjarðarsafna
Hornafjörður er blómstrandi 2200 manna samfélag. Höfn, stærsti þéttbýlisstaðurinn er öflugur útgerðarbær.
Í sveitarfélaginu eru tveir leik- og grunnskólar ásamt tónskóla. Framhaldsskóli og rannsóknasetur Háskóla
Íslands eru í Nýheimum Menningamiðstöð Hornafjarðar, ásamt almenningsbókasafni, starfstöðvum SASS, Matís,
Nýsköpunarmiðstöð, Austurbrú framhaldsfræðslu og Búnaðarsambandi Suðurlands. Fjölbreytt félagsstarf er í
sveitarfélaginu, ný almenningssundlaug, íþróttahús, líkamsræktarstöð og knatthús. Samgöngur eru greiðar, beint
flug er til Hafnar og Strætó gengur til Hafnar frá Reykjavík.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
viðkomandi stéttarfélags.