Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 76

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 76
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 Mánudaginn 18. febrúar kl. 12:00-13:00 í Lögbergi, L-101 Fyrirlestur í boði Hagfræðideildar Háskóla Íslands og Evrópustofu. Sixten Korkman mun í fyrirlestri sínum lýsa kreppunni á evrusvæðinu nú og spyrja: Hvað fór úrskeiðis? Hvað er verið að gera til að rétta kúrsinn af? Hverjar eru framtíðarhorfur evrunnar og evrusvæðisins? Dr. Sixten Korkman stýrði Research Institute of the Finnish Economy (ETLA) og Finnish Business and Policy Forum (EVA). Hann var áður skrifstofustjóri Seðlabanka Finnlands, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis Finnlands og framkvæmda- stjóri ráðherraráðs ESB. Hann hefur birt greinar og bækur um hagstjórn, þar á meðal bók um efnahagsstefnu ESB. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Evran: Mynt án ríkis. Hver er vandinn? Hverjar eru horfurnar? Hagfræðideild FÉLAGSVÍSINDASVIÐ Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is Hollywood-leikarinn Paul Rudd fer með annað aðalhlutverk-anna í Prince Aval-anche, endurgerð Á annan veg sem kom út hér á landi 2011. Rudd er þekktur fyrir gaman- leik sinn í myndum á borð við Clueless, Anchorman: The Legend of Ron Burgundy, The 40-Year Old Virgin, Forgetting Sarah Marshall og I Love You Man. Einnig lék hann Mike Hannigan, kærasta og síðar eiginmann Phoebe, í síðustu tveimur þáttaröðunum af Friends. Rudd leikur iðulega viðkunn- anlega náunga og kom það blaða- manni því ekki á óvart hversu þægilegur hann var í tilsvörum er hann var spurður út í Prince Aval- anche og kvikmyndaferil sinn. Góð viðbrögð í Þýskalandi Prince Avalanche var frumsýnd á miðvikudag á kvikmyndahátíðinni í Berlín, þar sem Rudd var stadd- ur á meðan á símaviðtalinu stóð. Aðspurður segir hann myndina hafa fengið góð viðbrögð. „Blöð- in virtust vera jákvæð en ég get því miður ekki sagt í smáatriðum hvað þau sögðu því þau voru öll á þýsku,“ segir hann og hlær. „Við- brögðin í bíóinu voru mjög jákvæð. Fólkið hló á stöðum þar sem ég átti ekki alveg von á að það myndi hlæja. Það virtist kunna að meta þessa sögu.“ Þetta var í annað sinn sem hann sá myndina sjálfur en fyrst sá hann hana á Sundance-hátíðinni í Utah. „Viðbrögðin voru góð á báðum stöðum en voru aðeins lág- stemmdari hér, kannski vegna þess að húmorinn í henni liggur dálítið undir niðri. Margt náði í gegn hjá áhorfendum en sumt kannski ekki eins vel.“ Hreifst af Á annan veg Prince Avalanche gerist árið 1988 og fjallar um tvo vegavinnumenn. Þeir ákveða að yfirgefa borgina og eyða sumrinu fjarri öllum ys og þys við að mála umferðarlínur á þjóðveginum. Tökur fóru fram í Texas og stóðu yfir í aðeins sex tán daga. Leikstjórinn David Gordon Green, sem er þekktastur fyrir hasargrínmyndina Pineapple Express, ákvað að drífa í tökunum til að fanga þá eyðileggingu sem skógareldarnir í Bastrop State Park ullu árið 2011. Af hverju ætli Rudd, sem er vanur að leika í stórum Hollywood- myndum, hafi ákveðið að leika í þessari ódýru og óvenjulegu mynd? „Ég hef verið vinur leikstjórans í mörg ár og mig hafði alltaf lang- að til að vinna með honum. Hann hringdi í mig og spurði: „Hvern- ig líst þér á að fara til Texas í nokkrar vikur? Þar er skógur sem hefur brunnið og við ætlum að fara með nokkrar myndavélar þangað og taka upp þessa mynd“,“ segir Rudd. „Ég var mjög spenntur fyrir þessari hugmynd. Mér fannst þetta skemmtileg tilraun því þetta var algjör andstæða við það sem ég hef verið að gera síðustu tvö ár í stórum upptökuverum með fjöl- mennu tökuliði. Þetta leit út fyrir að vera listrænt verkefni. Ég vissi ekki hvernig þetta yrði en var viss um að þetta yrði skemmtileg reynsla. Svo sendi hann [Green] mér DVD af Á annan veg. Ég horfði á hana og fannst það virki- lega góð mynd og fannst spennandi að prófa þetta.“ Öðruvísi hlutverk Rudd hafði gaman af að leika vega- vinnumanninn Alvin en á móti honum lék Emile Hirch, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Into the Wild. „Þetta er öðruvísi pers- óna en ég hef leikið. Hann lítur öðruvísi út en ég geri venjulega og það var áhugavert að setja sig inn í aðstæður persónunnar og það sem hún gekk í gegnum. Ég hafði mjög gaman af því að vinna við myndina og þarna voru skemmtileg, drama- tísk atriði sem ég hef ekki komið mikið nálægt í síðustu myndum mínum.“ Spurður hvort hann vilji leika í fleiri myndum í þessum dúr í fram- tíðinni segist hann vera til í prófa alls kyns hluti. „Mig langar að leika dramatísk og fyndin hlutverk af mismunandi stærðargráðum. Ég væri alveg til að leika í svona lítilli mynd með fámennu tökuliði. Þarna er öðruvísi sköpunarferli í gangi og ekki eins mikið í húfi og í stúdíó- mynd.“ Langar að heimsækja Ísland Þegar Prince Avalanche var frum- sýnd á Sundance, kveiðst þú fyrir viðbrögðum íslensku kvikmynda- gerðarmannanna sem þar voru? „Sem betur fer vissi ég ekki að þeir væru þar fyrr en myndin var búin. Við hefðum orðið mjög stressaðir ef við hefðum vitað það. Ég hefði allan tímann hugsað hvað þeim fyndist eiginlega um hitt og þetta. Svo hitti ég þá eftir sýninguna og þeir voru mjög vingjarn legir og sögðust hafa haft gaman af mynd- inni og að það hefði líka verið skrít- ið að sjá hana en á góðan hátt,“ segir hann. „Ég hitti þá í gær- kvöldi [á miðvikudagskvöld] hérna í Berlín og spjallaði við þá og ég held að þeir séu ánægðir með hana. Ég held að myndin sé trú íslensku útgáfunni því andi hennar svífur yfir vötnum.“ Myndir þú koma til Íslands til að vera viðstaddur frum sýningu Prince Avalanche? „Ég hefði gaman af því,“ segir Rudd og hlær. „Það færi eftir því hvenær það verður og hvort ég kemst en ég held að það yrði alveg frábært.“ Sleppur við stærðfræðina Hin 43 ára Paul Rudd fæddist í New Jersey í Bandaríkjunum en þegar hann var tíu ára flutti hann til Kansas og gekk þar síðar meir í háskóla. Spurður hvers vegna hann valdi leiklistina segist hann ekki vita það fyrir víst. „Líklega vegna athyglinnar, gerast ekki flestir leikarar vegna hennar? Ég man að á mismunandi tímabilum í lífi mínu reyndi ég að átta mig á því hvort það væri í raun og veru hægt að vinna við þetta. Ég hlustaði á plötur með Steve Martin og hugs- aði með mér: „Þessi náungi lifir á því að tala. Hversu svalt er það? Þegar ég var um sautján ára lang- aði mig að prófa að leika og hugsaði að þetta væri eitthvað sem ég gæti haft gaman af. Svo fór ég út í þetta af fullri alvöru.“ Hvað er skemmtilegast við að vera leikari? „Það er ekki mikið af stærðfræði sem maður þarf að glíma við og svo þarf ég ekki að lyfta neinu sem er sérstaklega þungt,“ segir hann hress. Gott að sleppa við stærðfræði Hollywood-leikarinn Paul Rudd leikur í Prince Avalanche, endurgerð Á annan veg. Hann getur vel hugsað sér að fljúga til Íslands þegar hún verður frumsýnd. PAUL RUDD Hollywood-leikarinn í Berlín þar sem Prince Avalanche var sýnd á dögunum. NORDICPHOTOS/GETTY Paul Rudd er orðinn einn af vinsælustu gamanleikurum í Hollywood. Hann vakti fyrst verulega athygli í myndinni Clueless sem kom út 1995 en undanfarin ár hefur hann verið fastagestur í hinum vinsælu myndum leikstjórans og framleiðandans Judds Apatow. Þar hafa mótleikarar hans oft verið þeir sömu, þar á meðal Seth Rogen, Jonah Hill, Kristen Wiig, Jason Segel, Steve Carrell, Elizabeth Banks og Joe Lo Truglio. Auk Prince Avalanche eru sjö myndir með Rudd væntan- legar á hvíta tjaldið og segir það ýmislegt um vinsældir hans. Ein þeirra er hin langþráða framhaldsmynd Anchor- man: The Legend Continues, þar sem hann leikur Brian Fantana. Önnur er gamanmyndin This Is 40, hálfgert fram- hald Knocked Up, þar sem hann leikur á móti Leslie Mann. Einn sá vinsælasti í Hollywood
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.