Fréttablaðið - 05.03.2013, Side 34

Fréttablaðið - 05.03.2013, Side 34
5. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26 FRJÁLSAR Sveinbjörg Zophonías- dóttir úr FH sigraði um helgina á fjölþrautamóti sem fór fram í Joenssun í Finnlandi. Hún keppti í flokki 22 ára og yngri og hlaut alls 3.927 stig, sem er hennar næstbesti árangur í fimmtar- þraut innanhúss. Íslandsmetið í greininni er 4.298 stig, en Helga Margrét Þorsteinsdóttir setti það á móti í Tallinn í fyrra. Sveinbjörg hefur nú undirbún- ing sinn fyrir Evrópumeistara- mót 22 ára og yngri sem fer fram í Finnlandi í sumar. - esá Sigraði á móti í Finnlandi SPORT FÓTBOLTI Katrín Jónsdóttir, fyrir- liði íslenska kvennalandsliðs- ins, fer fyrir íslenska landsliðinu í Algarve-bikarnum sem hefst í Portúgal á morgun. Katrín stendur á tímamótum því hún er flutt frá Stokkhólmi norður til Umeå þar sem hún spilar með heimaliðinu í sænsku úrvalsdeildinni í ár. Það var ljóst að hún yrði ekki áfram hjá Djurgården sem féll í fyrra. „Síðasta tímabil var rosalega erfitt og það er frábært fyrir mig að fá tækifæri til að spila áfram í þessari deild og þá með svona góðu liði,“ segir Katrín. Langelst í liðinu „Gengi liðsins í fyrra var undir væntingum og fólk var svekkt yfir því. Núna í ár er sett stefnan á það að berjast í efri hluta deildar- innar,“ segir Katrín, sem er lang- elst í liðinu. „Þetta er mjög ungt lið. Það eru nokkrar fæddar 1988 og þá eru þær nú allavega orðnar 25 ára,“ segir Katrín létt, en hún verður 36 ára í lok maí. Katrín er nýflutt norður til Umeå en fram að því átti hún góða að í Stokkhólmi. „Ég er búin að vera að æfa með kvennaliði Djurgården og 17 ára strákaliði Brommapojkarna. Djurgården var almennilegt að leyfa mér að æfa með þeim til að byrja með og svo var það Magni Fanndal, sem er að þjálfa 19 ára karla- liðið hjá Brommapojkarna, sem kom mér í samband við sautján ára þjálfarann,“ segir Katrín en hvernig er að æfa með strákunum? „Það var mjög fínt og ég hefði viljað æfa oftar með þeim. Það var rosagott að geta fengið smá tempó- æfingar og nauðsynlegt fyrir mig. Það var ekkert mál að halda sér í formi í ræktinni og byggja þar upp styrk og hlaupaform. Hlaupa- formið var orðið mjög fínt en til þess að halda fótboltaforminu verður maður að vera í fótbolta. Það er gott að prófa eitthvað nýtt því það þýðir ekki bara að hlaupa eða lyfta. Það þarf að sparka í bolta líka,“ segir Katrín. Augu, háls, nef og eyru Katrín er læknir en notar nú tæki- færið til að bæta við sig menntun á meðan hún klárar fótbolta ferilinn. „Ég mun halda áfram sérnámi mínu í heimilislækningum. Hér er það þannig að helmingurinn af sérnáminu fer inn á spítala og maður þarf að redda sér plássi inni á spítala. Ég ákvað að taka augn- og háls-, nef- og eyrnalækningar meðan ég er hér,“ segir Katrín. „Ég mun bara vera í fimmtíu prósenta stöðu þannig að þetta verður miklu minna álag en á síð- asta ári. Það þarf samt að vera eitthvað. Fyrsta árið mitt í Djur- gården var ég ekki að vinna. Það er ekkert mál í smá tíma en eftir smá tíma er það bara mannskemm- andi að vera bara í fótbolta. Maður þarf að vera í einhverju öðru til að örva heilann,“ segir Katrín. Algarve -bikarinn skiptir íslenska landsliðið miklu máli enda mikilvægur fyrir Evrópu- mótið næsta sumar. Katrín þekkir þetta mót vel enda mætt til Portú- gal í níunda skiptið á ferlinum. Fáum virkilega að reyna á okkur „Þetta er frábært mót fyrir okkur. Þetta eru margir leikir og það eru margir leikmenn sem fara með. Margir leikmenn fá tækifærið og ná sér í reynslu. Við fáum virki- lega að reyna á okkur og sjá hvar við stöndum, sem er gríðarlega mikilvægt og þá sérstaklega á EM- ári. Það munu verða gerð mistök á þessu móti og við munum reyna að laga það og vera búnar að bæta það þegar við komum á EM. Það uppgötvar maður ekki með því að spila við lélegan mótherja,“ sagði Katrín að lokum. ooj@frettabladid.is Fékk að æfa með strákaliði Katrín Jónsdóttir er á leiðinni á sitt níunda Algarve-mót, en íslensku stelpurnar mæta Bandaríkjunum í fyrsta leik á morgun. Katrín er á fyrsta ári með Umeå auk þess að vera í sérnámi í heimilislækningum. 32 LEIKIR Í ALGARVE-BIKARNUM Katrín Jónsdóttir segir árlegt æfingamót í Portúgal skipta íslenska kvennalandsliðið miklu máli. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Ein af stórviðureignum ársins í knattspyrnuheiminum fer fram í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Real Madrid í síðari viðureign liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þeirri fyrri lauk með 1-1 jafntefli á Spáni. Augu flestra munu beinast að Cristiano Ronaldo, leikmanni Real Madrid, sem lék með Manchester United í sex ár við góðan orðstír. Hann fór til Madrídar árið 2009 og hefur ekki spilað á Old Trafford síðan. „Helstu áhyggjur mínar snúast um hvernig hann muni standa sig,“ sagði Alex Ferguson, stjóri United, en Ronaldo skoraði mark Madríd- inga í fyrri viðureign liðanna. „En við eigum ekki að óttast hann. Ef við höfum of miklar áhyggjur af honum gleymum við hvað við erum sjálfir færir um að gera.“ Ferguson hefur staðfest að Ryan Giggs muni koma við sögu í kvöld og því ljóst að kappinn mun spila sinn þúsundasta leik á ferlinum. Langflestir leikjanna hafa verið í búningi Manchester United en aðrir fyrir landslið Wales og Ólympíulið Bretlands. „Ég er stoltur af því að hafa spil- að svo marga leiki,“ sagði Giggs. „Maður setur sér ýmis markmið en þau fyrstu snúast um að koma sér í liðið og svo vill maður halda sæti sínu þar. En maður stefnir aldrei á að spila þúsund leiki á ferl- inum.“ - esá Ronaldo snýr aft ur á Old Traff ord í kvöld Ryan Giggs spilar sinn þúsundasta leik á ferlinum. MÆTTUR TIL MANCHESTER Real Madrid æfði á Etihad-leikvanginum í Manchester í gær, en þar spilar Manchester City heimaleiki sína. NORDICPHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Gunnar Sverrisson var í gær rekinn úr starfi aðstoðar þjálfara körfuboltaliðs KR. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari kvennaliðsins, tekur við starfinu. Helgi Magnússon er spilandi þjálfari KR og mun stýra æfing- um í samstarfi við Finn, sem mun alfarið sjá um að stýra leikjum liðsins. „Helgi þarf að einbeita sér 100 prósent að því að vera leik- maður í leikjunum,“ sagði Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiks deildar KR. Þetta væri nauðsynlegt í ljósi árangurs liðsins, en KR er í sjötta sæti Domino‘s-deildar karla. „Félagið er stærra en einstak- lingurinn og stundum þarf að taka svona ákvarðanir, þótt það sé erf- itt,“ sagði Böðvar. - esá Skipt um að- stoðarþjálfara Miðvikudaginn 6. mars kl. 12.00–14.00 Laugardalsvöllur í sal KSÍ 3. hæð Aðgangur ókeypis. Skráning á phs@getspa.is BARÁTTAN GEGN HAGRÆÐINGU ÚRSLITA Í ÍÞRÓTTUM – MÁLÞING ÍSÍ og Íslenskar getraunir efna til málþings um baráttu gegn hagræðingu úrslita í íþróttum DAGSKRÁ 12:00 Setning – Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Getspár/Getrauna 12:10 Heildstætt yfirlit – Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ og FIBA Europe 12:45 Hagræðing úrslita, hættumerki á Íslandi – Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ 13:00 Kaffi 13:10 Hagræðing úrslita í íþróttum sem viðfangsefni lögreglu og réttar- kerfisins – Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari höfuðborgarlögreglu 13:25 Umfang og eðli vandamálsins – Pétur Hrafn Sigurðsson, deildarstjóri getraunadeildar 13:45 Umræður og niðurstöður – Sigurður Elvar Þórólfsson, fundarstjóri og formaður Samtaka íþróttafréttamanna 14:00 Ráðstefnulok

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.