Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 4
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 NEYTENDUR Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði nýlega athugasemdir við merkingar á meira en sex- tíu vörum í verslun Iceland. Eigendur verslunarinnar fengu frest til að gera úrbætur en sumar vörur voru teknar strax úr umferð. Aðgerðin er hluti af reglu- bundnu eftirliti stofnunarinnar á merkingum matvæla. Óskar Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóri Heilbrigðis- eftirlits Reykjavíkur, segir að þrátt fyrir þennan mikla fjölda vara sé ógerlegt fyrir eftirlitsstofnanir að finna allar þær vörur sem séu vitlaust merktar á markaðn- um. „Ég ætla mér ekki að heilbrigðiseftirlitin nái utan um allt, það væri voðalega erfitt,“ segir hann. „Ég hefði gjarnan viljað auka eftirlit en það er pólitísk spurning hvort það sé hægt þar sem eftirlitið kostar peninga.“ Ábendingar um matvörur berast til heilbrigðiseftir- litanna frá neytendum, samkeppnisaðilum og fyrir- tækjunum sjálfum, en langstærsti hluti þeirra er reglu- bundið eftirlit með vörum í verslunum og á markaði. Að sögn Óskars eru ekki haldnar tölur yfir heildarfjölda þeirra vara sem skoðaðar eru, heldur einungis þær sem gerðar eru athugasemdir við. Hann bendir á að ekki eigi þó að beita innköllunum nema þegar vara er ekki örugg á markaði eða innihald ólöglegt. „Þó eru matvæli hér á landi yfir höfuð mjög örugg en við gætum auðvitað gert miklu betur ef fengist fjár- magn til þess,“ segir hann. Herdís M. Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Mat- vælastofnun (MAST), tekur undir orð Óskars og segir öruggt að áætla að heilbrigðiseftirlitin nái einungis utan um brot af þeim vörum sem séu vitlaust merktar. „Það er engin leið að vita hversu stórum hluta þau ná,“ segir hún. „En það er engin leið til að ná yfir þetta allt saman.“ Eftirlit með matvælum á landinu er tvíþætt. Annars vegar annast heilbrigðiseftirlitssvæðin tíu skoðanir á vörum á markaði og hins vegar annast MAST fram- leiðslu á vörum. Samþætting með innköllunum og eftir- liti stofnananna beggja er þó töluverð og er MAST iðu- lega höfð með í ráðum ef ákveðið er að innkalla vörur af markaði. Ekki náðist í forsvarsmenn Iceland við vinnslu frétt- arinnar. sunna@frettabladid.is Meira en sextíu matvörur í Iceland vitlaust merktar Heilbrigðiseftirlitið gerði nýlega athugasemdir við meira en sextíu vörur í einni verslun Iceland. Ógerlegt að ná að hafa eftirlit með öllum vörum, segja eftirlitið og MAST. Ritstjóri Neytendablaðsins segir eftirliti ábótavant. Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins, segir eftirlit með merkingum matvæla ekki nægilegt. „Eftirlitið er engan veginn að ná utan um allar þær vörur sem eru vit- laust merktar. Það þyrfti vissulega að vera meira, en það kostar auðvitað,“ segir hún. „Sýnatakan sem er nú í gangi er í raun afleiðing hrossakjöts- hneykslisins í Evrópu og ekkert víst að það hefði komið upp hér ef það hefði ekki gerst. En þetta borga skattgreiðendur og það er rangt.“ Brynhildur segir brýnt að sekta þau fyrirtæki sem ekki standa sig í merkingum. Ósanngjarnt sé að leggja alfarið kostnað við sýnatöku og eftirlit á almenning og þau fyrirtæki sem standi sig vel. Ósanngjarnt að rukka skattgreiðendur VITLAUSAR MERKINGAR? Langstærsti hluti eftirlits með matvælum er reglubundnar skoðanir heil- brigðiseftirlits í verslunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 222,6837 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,09 125,69 187,5 188,42 162,85 163,77 21,842 21,97 21,936 22,066 19,624 19,738 1,3278 1,3356 188,25 189,37 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 07.03.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is breyta lífsstíl? - - Heilsulausnir Henta einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki. eilsulausnir hefjast mánudaginn 18. mars ða á mottaka@heilsuborg.is H e Kynningarfundur mánudaginn 11. mars kl. 17:30 – Allir velkomnir! Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur Strekkingur allra syðst annars fremur hægur vindur. DREGUR ÚR VINDI um helgina en þó stormur allra syðst fram á morgundaginn. Dálítil úrkoma í dag og þá einkum suðaustanlands. Heldur kólnandi og bjart eða bjart með köflum víða um land um helgina. 1° 10 m/s 2° 12 m/s 4° 12 m/s 5° 23 m/s Á morgun Strekkingur S-lands og stormur allra syðst, fremur hægur vindur N-lands. Gildistími korta er um hádegi 0° -1° -1° -5° -5° Alicante Aþena Basel 19° 17° 11° Berlín Billund Frankfurt 2° 3° 16° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 14° 2° 2° Las Palmas London Mallorca 23° 11° 18° New York Orlando Ósló 5° 22° -1° París San Francisco Stokkhólmur 13° 13° -3° 3° 10 m/s 2° 12 m/s 1° 10 m/s 0° 13 m/s 0° 8 m/s 2° 10 m/s -2° 10 m/s 2° 0° 1° -1° -1° VIÐSKIPTI Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur komist að þeirri niðurstöðu að bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti standist ekki EES- samninginn. Málið gæti endað fyrir dómstól- um, en Íslendingar hafa frest til loka maí til að gera betur grein fyrir afstöðu sinni. Ríkisútvarpið skýrði frá þessu í kvöldfrétt- um sínum í gær. Deilan snýst um íslensk lög um innleiðingu á reglugerðum Evrópusambandsins um matvæli og fóður, sem skuldbinda Íslendinga til þess að leyfa innflutning á hráu kjöti. Jón Bjarna- son, þáverandi landbúnaðarráðherra, felldi þessa skuldbindingu út úr frumvarpinu áður en það varð að lögum. Árið 2011 sendu Samtök verslunar og þjónustu kvörtun til bæði Eftir- litsstofnunar EFTA og Umboðsmanns Alþing- is vegna málsins. Umboðsmaður Alþingis taldi ekki ástæðu til að fjalla um málið fyrr en hugsanlega eftir að Eftirlitsstofnun EFTA hefði komist að niðurstöðu. Eftirlitsstofnunin hefur tvisvar áður krafið íslensk stjórnvöld um skýringar á því hvers vegna bannið er svo afdráttarlaust í íslenskum lögum, í stað þess að gera ráð fyrir vægari tak- mörkunum á innflutningi. - gb Eftirlitsstofnun EFTA segir skýringar Íslendinga á innflutningsbanni á hráu kjöti ófullnægjandi: ESA vill Íslendingar leyfi kjötinnflutning HRÁTT KJÖT Skýringar íslenskra stjórnvalda á inn- flutningsbanni þykja ófullnægjandi. VIÐSKIPTI Rekstrarhagnaður Landsbankans eftir skatta nam 25,5 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikn- ingi bankans en í samanburði var rekstrarhagnaðurinn árið 2011 sautján milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall bankans eykst líka á milli ára og stendur nú í rúmum 25 prósentum í sam- anburði við 21,4% í lok árs 2011. Heildareignir Landsbankans námu 1.084 milljörðum í árslok, sem er um 50 milljarða sam- dráttur milli ára. Rekstrarkostn- aður bankans jókst á árinu 2012 meðal annars vegna aukinnar skattlagningar á laun. - þj Ársuppgjör Landsbankans: 25,5 milljarðar í rekstrarhagnað PÁFAGARÐUR, AP Allir kardinál- arnir 115, sem enn eru á kosninga- aldri, eru nú komnir til Rómar. Sá síðasti kom í gær frá Víetnam og þar með er þeim ekkert að van- búnaði að hefja páfakjör. „Vonandi verður þetta stuttur kjörfundur sem hefst mjög fljót- lega,“ sagði þýski kardinálinn Paul Josef Codes, einn þeirra sem tekur þátt í kjörinu. „Ég myndi líkja þessu við það að fara til tann- læknis – maður vill að þetta taki enda sem allra fyrst.“ - gb Óðum styttist í páfakjör: Allir kardinálar komnir til Róm KARDINÁLAR Einungis þeir sem ekki eru orðnir áttræðir hafa kosningarétt - og eru kjörgengir. nordicphotos/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.