Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 34
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Yfirheyrslan og helgarmaturinn. HELGAR MATURINN Hvern faðmaðir þú síð- ast? Þegar þetta er skrifað þá var það dóttir mín sem gaf mér knús þegar ég setti hana í leik- skólann í morgun. En kysstir? Stefanie Esther Egilsdóttur, kærustuna mína. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Kærast- an mín laumaði litlum miða með orðsendingu í kortaveskið mitt þegar ég sá ekki til og svo næst þegar ég notaði kortið þá blasti miðinn við mér. Mjög krúttlegt. Svo kom Keli vinur minn hjá Ölgerðinni með bjór til mín á bjórdaginn, sem kom hressilega á óvart. Hvaða galla í eigin fari ertu búinn að umbera allt of lengi? Ég á það til að gleyma mér og syngja í sturtu og þegar ég geri það er ég alltaf mismunandi karakter. Stundum er það kántrísöngv- arinn sem verður fyrir valinu, stundum syng ég með pólskum hreim (eða eins og ég held að pólskur hreimur sé) og stundum eins og teiknimyndapersóna. Hljómar oft eins og við séum margir í sturtunni. Dansarðu þegar enginn sér til? Já, það geri ég svo sannarlega. Söngur og dans er ein mesta og besta útrásin fyrir tilfinningar og svo hef ég líka gaman af því að dansa. Við Eva Björk, þriggja ára dóttir mín, hækkum oft helling í tón- list og dönsum saman bara tvö ein. Hún er samt töluvert betri dansari en ég. Hvenær gerðirðu þig síð- ast að fífli og hvernig? Ég reyndar sá ekki um það sjálfur. Kærastan mín tók upp mynd- band af mér þegar ég var að syngja í sturtu og póstaði því á Facebook án þess að ég vissi af því. Reyndar geri ég mig reglulega að fífli. Hringirðu stundum í vælubílinn? Verandi stuðn- ingsmaður Liverpool þá hef ég og margir aðrir stuðningsmenn hringt oft og mörgum sinnum í Vælubílinn. Vonandi fer þeim símtölum samt fækkandi, ann- ars þurfum við bara að kaupa okkar eigin Vælubíl. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Ég nota svitalyktar- sprey undir hendurnar sem er ætlað konum en mér er alveg sama af því að lyktin er svo fá- ránlega góð. Svo er ég líka óeðlilega loðinn á tánum og á báðum ristum. Skrítið að ég hafi ekki fengið hlutverk í Hob- bitanum. en minn tími hlýtur að koma. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ég ætla alls ekki að ganga á fjöll, þar sem ég er lítið í því. Heiðar Austmann Dagskrárstjóri fm957 ALDUR 36 ÁRA Alma Hrönn Káradóttir snyrtipinni og ástríðukokkur deilir hér afar einfaldri uppskrift að einstaklega hollum og bragð- góðum rétti. ...spjörunum úr laxaflök salt og pipar ferskur ananas teriyaki kúskús Kryddið laxinn með maldon- salti og pipar. Skerið ferskan ananasinn í sneiðar og legg- ið ofan á og því næst örlitla teriyaki-sósu yfir. Pakkið lax- inum inn í álpappír og setjið inn í ofn. Sjóðið kúskús eftir leiðbein- ingum – mér finnst best að nota Zesty Lemon, fæst í Bónus. Blandið svo saman kúskús, spínati, kirsuberjatómötum, avókadósneiðum, döðlu- bitum, kasjúhnetum og paprikubitum. Berið fram með grískri jógúrt með skvettu af agavesírópi. Fljótlegt, ferskt og gott.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.