Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 25
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 8. MARS 2013 • 3 Lytess-fatnaðurinn kemur í staðinn fyrir krem og aðrar grenningarlausnir sem lofa við- skiptavinum ummálsminnkun. Krem þarf að bera á kvölds og morgna og þarf oft nokkrar túbur til að árangur sjáist. Snyrtistofur sem bjóða grenningarmeðferðir þarf að heim- sækja reglulega og aðrar lausnir þarf að taka inn. Lytess-fatnaðinum þarf að klæðast í minnst átta klukkutíma á dag en ekki þarf að leiða hugann að því neitt frekar. Mælt er með því að meðferð standi í sex mánuði. „Kosturinn sem Lytess hefur umfram aðrar grenningarvörur er að meðferðin virkar allan daginn og þegar fatnaðurinn er í notkun er stöðug dreifing á formúlunni á þeim svæðum sem fatnaðurinn hylur. Snyrtimeðferð þarf að endurtaka nokkrum sinnum og stendur mun skemur yfir í einu. Kostnaðurinn er sömu- leiðis mun minni enda hægt að nota flíkurnar aftur og aftur,” segir Margrét Helgadóttir, markaðsstjóri hjá heildsölunni Cu2 sem flytur vörurnar inn. Lytess-fatnaðurinn er saumlaus, án para- bena og þolir þvott. Hann inniheldur meðal annars koffín, forskolín, sishuan, piparkjarna og bókhveiti en þessi efni auka brennslu og losa um fitufrumur. Þá er í honum ruscus, rauðir þörungar, japanskt pagoda og ginkgo biloba sem allt er þekkt fyrir að vera vatns- losandi. Að endingu er í þeim mangósmjör, shea butter og sætar möndlur sem eru nær- andi og rakagefandi. „Framtíðarplön Lytess eru að framleiða fatnað sem tekur á ýmsum líkamskvillum, svo sem þurri húð, exemi, húðsliti, æðahnútum, bakverkjum og liðverkj- um svo dæmi séu nefnd. Möguleikarnir eru óþrjótandi en fyrirtækið setur mikið fjármagn í rannsóknir og þróun,“ segir Margét. Hér á landi verður til að byrja með boðið upp á Slim express sem er tíu daga með- ferð og fæst hún í þremur gerðum. Í Slim ex- press-fatnaðinum eru efni sem leiða til sýni- legs munar á útlínum líkamans á aðeins tíu dögum, þó mælt sé með að fatnaðurinn sé notaður í að minnsta kosti mánuð til að ná fram hámarksárangri. Í Slim express eru öflug efni sem brenna fitu og virka vatns- losandi og hreinsandi. Þau fyrirbyggja upp- söfnun fitufrumna, grenna og slétta húðina. Fatnaðurinn er auk þess þægilegur og sést ekki undir öðrum fötum. Þá verður boðið upp á Sculpt & slim sem er átján daga meðferð. Hún endur mótar vöxtinn, grennir og nærir húðina og gefur gott aðhald. Árangurinn sést eftir átján daga en mælt er með því að fatnaðurinn sé not- aður í að minnsta kosti mánuð. Fatnaðurinn styður við maga og bak án þess að þrengja að, en útkoman er sléttari magi. Sculpt & slim fæst í tveimur gerðum. Annars vegar er um að ræða aðhaldsbuxur þar sem áhersla er lögð á mitti, bak og maga. Hin gerðin er fyrir bak, mitti, mjaðmir, rass og læri. Sculpt & lift er svo tuttugu daga meðferð. Um er að ræða brjóstahaldara sem lag- færir, styrkir, mótar og nærir brjóstin. Sjáan- legur árangur kemur fram eftir tuttugu daga. Haldarinn inniheldur elemi, sem herðir vef- ina og styrkir húðina. Vefnaðurinn endur- mótar brjóstin og styrkir bakið. „Samkvæmt markaðsrannsóknum íhuga flestar konur að minnsta kosti einu sinni á ári að fara í megrun. Nýlegar kannanir sýna að því miður eru flestar konur óánægðar með einhvern hluta líkama síns og telja að þeim myndi líða betur ef þær myndu grenn- ast. Margar konur eru stöðugt að leita leiða til þess að grennast, vilja losna við appels- ínuhúð eða fá stinnari líkama. Flestar kann- ast við að byrja í einhverju prógrammi eða meðferð en oft fjarar átakið út. Margar bera fyrir sig tímaskorti en það vandamál er úr sögunni með Lytess.” GRENNANDI AÐHALDSFATNAÐUR Snyrtivörufatnaður frá Lytess hefur verið á markaði frá árinu 2003 en hann er búinn grenningarformúlu sem er ofin inn í fatnaðinn og verður formúlan virk við snertingu og núning við húð. Lytess er leiðandi á markaði og er með einkaleyfi á þessari tegund fatnaðar en 180 prósenta aukning hefur verið í sölu á vörum fyrirtækisins undanfarin fimm ár. AUGLÝSING: LYTESS KYNNIR Sculpt & slim Sculpt & slim er átján daga meðferð. Hún endurmótar vöxt- inn, grennir og nærir húðina og gefur gott aðhald. Fatnaður- inn styður við bak og maga án þess að þrengja að en útkom- an er sléttari magi. Sculpt & slim fæst í tveimur gerðum. Ann- ars vegar er um að ræða aðhalds buxur þar sem áhersla er lögð á mitti, bak og maga. Hin gerð- in (til hægri) er fyrir bak, mitti, mjaðmir, rass og læri. Slim express Í Slim express- fatnaðinum eru efni sem leiða til sýnilegs munar á útlínum líkam- ans á aðeins tíu dögum. Í fatnað- inum eru öflug efni sem brenna fitu og virka vatnslosandi og hreinsandi. Þau fyrir- byggja upp söfnun fitufrumna, grenna og slétta húðina. Fatn- aðurinn er auk þess þægilegur og sést ekki undir öðrum fötum. Fatnaður og snyrtivara í senn Fatnaðurinn inniheldur meðal annars koffín, piparkjarna, bók- hveiti, rauða þörunga og shea butter en innihaldsefnin eru vatnslosandi, auka brennslu og næra húðina. Fatnaðurinn er án parabena. Sjá nánar á visir.is/lifid Fæst í eftirfarandi verslunum: Lyfjum og heilsu í Firði, Kringlunni, Austurveri, Domus Medica, JL Húsinu, Glerártorgi Akureyri, Keflavík og Selfossi. Apóteki Ólafsvíkur og Árbæjarapóteki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.