Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 29
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 8. MARS 2013 • 7
Uppáhalds
MATUR: Hnetusteik með öllu til-
heyrandi. DRYKKUR: Vatn. VEIT-
INGAHÚS: Elska alla „græna
staði“. TÍMARIT: Gør det selv.
VEFSÍÐA: HomeExchange.com og
tannstra.is. VERSLUN: Spaksmanns-
spjarir og Rauði krossinn. HÖNN-
UÐUR: Systir mín Björg Ingadótt-
ir hjá Spaksmannsspjörum. HREYF-
ING: Göngutúrar um götur Akureyrar
með góðum konum. DEKUR: Nudd
frá eiginmanninum. GULLKORN: Ef
það er vilji þá er vegur.
fór oft út þegar ég var yngri og
klippti niður strá sem við not-
uðum sem tannstöngla á mínu
æskuheimili. Ég kynnti hug-
myndina á atvinnu- og nýsköp-
unarhelgi fyrir ári hér fyrir
norðan og þar var henni mjög
vel tekið, sem hvatti mig til að
fylgja henni eftir.
Það má sjá mynd af föður
þínum, Inga Ragnari, aftan á
pökkum Tannstráanna, er hann
ekki stoltur af verkefninu?
Hann hefur lúmskt gaman af
þessu öllu saman.
Þú hlaust nýsköpunarstyrk frá
Landsbankanum í byrjun árs –
hversu mikilvægt er það að fá
slíkan styrk í svona framleiðslu-
ferli? Svona styrkveiting hefur
mikla þýðingu fyrir verkefni í
startholunum og gefur manni
hvatningu til þess að halda
áfam. Það kom sér auðvitað vel
að fá þessa peninga til að eiga
fyrir útlögðum kostnaði.
Hvar munu tannstráin fást?
Eins og er fást þau í Eymunds-
son, ATMO, Viking og Islandia-
verslunum.
Íslenska konan
Þú hefur skrifað þrjár bækur
fyrir erlenda ferðamenn; 50
crazy things to do in Iceland, 50
crazy things to taste in Iceland og
svo 50 crazy romantic things to
do in Iceland – er sú nýjasta sem
kemur út í vor líka hugsuð fyrir
ferðamenn? Já, en ég held reynd-
ar að Íslendingar hafi ekki síður
gaman af henni. Þema bókarinn-
ar er „íslenska konan“ og er hún
full af fróðleik og upplýsingum
um íslensku konuna. Tæpt er á
sögulegum staðreyndum, athygli
vakin á konum sem allir verða að
kannast við, íslensk fegrunarráð
tíunduð o.s.frv. Ég vinn þetta
með Þorvaldi Erni Kristmunds-
syni ljósmyndara, en við erum
orðin sjóuð í samstarfi því þetta
er fi mmta bókin sem við vinnum
að saman.
Þú ert með mörg járn í eld-
inum og brátt fjölgar í fjölskyld-
unni. Hvernig gengur þér að
sameina móðurhlutverkið og allt
hitt sem þú ert að vinna að? Það
hefur hingað til gengið ágætlega
og ég reikna með því að það verði
eins með þriðja barnið. Börn hafa
ótrúlega aðlögunarhæfni og það
virðist alveg sama hvað ég er að
brasa, stelpurnar taka því alltaf
sem sjálfsögðum hlut.
Megum við eiga von á fl eiri
skemmtilegum verkefnum frá
þér í nánustu framtíð? Já, alveg
pottþétt, ég hef lært það með
aldrinum að láta leiðinleg verk-
efni eiga sig.
Gerir jóga með dótturinni
Hvernig er þér búið að líða á
þessari meðgöngu miðað við þær
fyrri? Þetta er í grunninn svipað,
nema þá helst hvað líkaminn
bregst fljótt við í þriðja sinn.
Ég var viss um að ég gengi með
tvíbura, svo ört stækkaði kúlan
í byrjun.
Hvað gerirðu helst til að hugsa
um heilsuna á meðgöngunni?
Ég geri jógaæfingar með eldri
dótturinni á hverjum morgni.
Eitthvað að lokum? Ég hvet
alla til að prófa tannstráin. Þau
nýtast ekki bara vel sem tann-
stönglar heldur er ótrúlega gott
að vera með strá í munnvikunum
þar sem þau gefa bragð af ís-
lensku sumri.
Pabbi átti hugmyndina
Snæfríður ásamt hugmyndasmiðnum föður sínum og við vinnslu á tannstönglunum.
50%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM SKÓM
ÁÐUR
14.800
NÚ
7.400