Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 48
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32 „Þetta hefur verið talsverð vinna við að kortleggja svæðin og slíkt, en það starf hefur verið unnið í góðu samstarfi við fulltrúa menn- ingarráða um allt land,“ segir Þ. Tjörvi Þórsson, verkefnastjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands ætlar íslenskt kvikmyndagerðarfólk, í samstarfi við Kvikmyndamið- stöðina, að bjóða landsmönnum í bíó helgina 22. til 24. mars næst- komandi. Sýndar verða íslenskar kvik- myndir á tuttugu stöðum víðs vegar um landið og segir Tjörvi stefnuna vera að hafa úrvalið sem fjölbreyttast. „Að sjálfsögðu höfum við úr mjög djúpum potti að velja, enda mun úrvalið spanna megnið af íslenskri kvikmynda- sögu, en myndirnar verða valdar í samráði við staðarhaldara á hverjum stað fyrir sig. Þannig verður mismunandi dagskrá, sem ræðst meðal annars af aðstöð- unni, í hverjum bæ. Upphaflega hugmyndin var að dreifa þessu yfir nokkrar helgar en við ákváð- um frekar að gera þetta að einni stórri sprengju,“ útskýrir Tjörvi og bætir við að hann hafi fundið fyrir miklum áhuga á framtakinu, ekki síst úti á landi þar sem bíó- sýningar eru fátíðar og eins frá fólki innan kvikmyndabransans. Enn hefur ekki verið neglt niður hvaða myndir verða sýnd- ar um þessa helgi, en ljóst er að í einhverjum tilfellum verða leik- stjórar eða aðrir aðstandend- ur viðstaddir sýningar og svara spurningum að þeim loknum. Bjóða fólki um allt land í bíó Íslensk kvikmyndahelgi með fj ölbreyttu úrvali verður haldin síðar í mánuðinum. VERKEFNASTJÓRI Þ. Tjörvi Þórsson hjá Kvikmyndamiðstöð segist hafa fundið fyrir miklum áhuga á framtakinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Reykjavík (Bíó Para- dís og Háskólabíó) Akranes Ólafsvík Hvammstangi Sauðárkrókur Blönduós Ísafjörður Patreksfjörður Ólafsfjörður Akureyri Laugar Raufarhöfn Vopnafjörður Egilsstaðir Seyðisfjörður Höfn í Hornafirði Kirkjubæjarklaustur Hvolsvöllur Vestmannaeyjar Sýningarstaðir á íslenskri kvikmyndahelgi: ÓSKARSVERÐLAUN M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS DANIEL DAY-LEWIS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS -EMPIRE IDENTITY THIEF KL. 5.40 - 8 - 10 12 21 AND OVER KL. 10.10 14 THIS IS 40 KL. 5.40 12 / JAGTEN KL. 8 16 IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 IDENTITY THIEF LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.40 L THIS IS 40 KL. 6 12 DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16 DJANGO KL. 9 16 HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L - H.S.S., MBL IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 THIS IS 40 KL. 8 - 10.40 12 LINCOLN KL. 6 - 9 14 LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10 EGILSHÖLLÁLFABAKKA V I P KRINGLUNNI KEFLAVÍK AKUREYRI R.EBERT ENTERTAINMENT WEEKLY K.N. EMPIRE MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTABLAÐIÐ MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miða- sala: 412 7711 Hverfi sgata 54 Rvík www.bioparadis.is Hluti af Europa Cinemas NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! ****- Rás 2 ****- Fréttablaðið BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinnHVELLUR *****-Morgunblaðið HITCHCOCK HÁTÍÐ! 8.-10. MARS THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 20:00, 22:10 BEYOND THE HILLS (16) 21:30 KON-TIKI (12) 22:10 HVELLUR (L) 19:00 ST. SIG: STRIGI OG FLAUEL (L) 17:45, 20:15 HITCHCOCK: REAR WINDOW (L) 20:00ST. SIG: STRIGI OG FLAUEL OZ GREAT AND POWERFUL 5, 8 IDENTITY THIEF 8, 10.20 21 AND OVER 10.40 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D 4, 6 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D 4 VESALINGARNIR 6, 9 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. ÍSL TAL! 5% Eins og flestir vita ber Kim Kard- ashian barn þeirra Kanye West undir belti. Hún slapp með skrekk- inn í vikunni þegar hún var flutt á spítala í skyndi, vegna gruns um fósturlát. Kim var nýlent aftur í Los Angeles eftir að hafa sótt tískuvikuna í París ásamt barnsföður sínum þegar hún fór að finna fyrir miklum verkjum. Heimildarmaður The New York Post sagði því til stuðnings að stjarnan stundaði líkamsrækt sjö daga vikunar og hefði miklar áhyggjur af breyttu vaxtarlagi sínu. Læknar hafa þó skipað henni að taka því rólega það sem eftir lifi meðgöngunar. Flutt á spítala MIKIÐ AÐ GERA Kim hefur verið ski- pað að taka því rólega á meðgöngunni. NORDICPHOTOS/GETTY Söng- og leikkonan Miley Cyrus úr Hannah Montana-þáttunum bar á dögunum til baka þann orð- róm að hún og unnusti hennar, leikarinn Liam Hemsworth úr Hungurleikunum, hefðu skilið að skiptum. Parið hefur gefið út að brúðkaup sé á næsta leiti, en sama dag og Cyrus neitaði téðum sögusögnum á Twitter sást hún úti á lífinu í Los Angeles án trú- lofunarhringsins. Hefur uppá- tækið vakið mikla furðu slúður- þyrstra, eins og gefur að skilja. Verður ekkert brúðkaup? HÆTT SAMAN Miley Cyrus neitar sögusögnum. David Bowie hefur bannað Morr- issey að nota gamla ljósmynd af tónlistarmönnunum tveimur saman framan á nýja smáskífu hins síðarnefnda. Morrissey endur útgefur lagið The Last of the Famous International Play- boys í næsta mánuði og hafði hugsað sér að nota áður óbirta ljósmynd af þeim Bowie, sem var tekin í New York árið 1992, framan á umslagið. Bowie skipaði útgáfufyrirtæk- inu EMI, sem hefur útgáfu- rétt á flestum verkum hans, að neita fyrir- spurninni. Fyrrverandi söngvari The Smiths hefur því ákveðið að skipta Bowie út fyrir eitís-hetjuna Rick Ast- ley, en þeir tveir voru myndaðir saman við upptökur á þættinum Top of the Pops árið 1989. Bowie neitar Morrissey MORRISSEY Skiptir Bowie út fyrir Rick Astley.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.