Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 46
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30 Velsk hjúkrunarkona hefur verið ákærð fyrir að brjóta reglur breska heilbrigðiskerfisins með því að vinna nítján klukkustunda vinnudaga í tólf ár. Með þessu framferði sínu er konan talin hafa stofnað sjúklingum sínum í hættu. Hjúkrunarkonan, Diane Davies, sinnti tveimur störfum samhliða í þessi tólf ár. Hún vann nætur- vaktir í stálverksmiðju frá tíu á kvöldin til sjö á morgnana og þaðan hélt hún í dagvinnuna sína sem hjúkrunarkona á Morriston- spítalanum í Swansea. Vinnuvika Davies var því á bilinu 77 til 82 klukkustundir. Þannig jukust laun hennar um rúmar fimm milljónir á ári ofan á launin fyrir dagvinn- una á spítalanum. Davies lét yfirmenn sína á spítalanum ekki vita af nætur- vinnunni sinni en heldur því fram að hún hafi haldið að þeir vissu af henni. Davies vinnur ekki lengur á spítalanum og réttarhöld yfir henni standa yfir í Swansea. Hjúkrunarkona vann 19 tíma á dag í 12 ár Talin hafa stefnt sjúklingum sínum í hættu. Á SPÍTALA Vinnustundafjöldi hinnar velsku Diane Davies var ekki til eftirbreytni. Yfirnáttúrulegar hrollvekjur þar sem andsetið fólk, draugar og djöflar hræða líftóruna úr bíó- gestum njóta síaukinna vinsælda í Hollywood. Margar slíkar myndir eru væntanlegar í bíó vestanhafs á næstu mánuðum og má þar nefna The Last Exorcism Part II, The Conjuring og endurgerðina Evil Dead. Fyrr á árinu komu út Dark Skies og Mama en sú síðarnefnda náði óvænt efsta sætinu yfir aðsóknar- mestu myndirnar. Hún fjallar um konu sem neyðist ásamt manni sínum til að taka að sér tvær mun- aðarlausar frænkur sínar sem hafa búið einar og yfirgefnar í kofa úti í skógi. Góðar hrollvekjur ala á ótta áhorfenda við myrkrið og hið ókunna. Þær byggja upp spennu, láta þeim bregða og reyna almennt séð að draga þá út úr þæginda- hringnum. Ekki skemmir fyrir ef hryllingurinn er byggður á sann- sögulegum atburðum. Hægt er að notast við gamaldags aðferða- fræði til að ná réttu áhrifunum fram, þó svo að tæknibrellur fái oftast vænan sess í nútímahroll- vekjum. Yfirleitt eru þetta ódýrar myndir á mælikvarða Hollywood og þar krossleggja menn fingur í þeirri von að úr verði ábatasöm hryllingsmyndasería sem getur lifað áfram um ókomin ár. Til að mynda eru miklar vonir bundnar við Mama og nú þegar er fram- hald hennar í undirbúningi. Dæmi um vel heppnaða seríu eru Paranormal Activity-mynd- irnar. Sú fyrsta kom út 2007 og fjallaði um fjölskyldu sem flyt- ur í hús í úthverfi þar sem yfir- skilvitlegir atburðir eiga sér stað. Hún kostaði aðeins fimmtán þús- und dollara en sló rækilega í gegn um heim allan. Tekjurnar í miða- sölunni námu hátt í 200 milljón- um dollara og að sjálfsögðu var strax ráðist í gerð framhalds- mynda. Sú fimmta í röðinni er einmitt væntanleg í bíó í haust. Hver framhaldsmyndanna um sig hefur kostað fimm milljónir dollara en tekjurnar hafa allar verið á bilinu 140 til 200 milljónir dollara á heimsvísu. Sannarlega mikil mjólkurkýr, sem verður án efa mjólkuð áfram svo lengi sem áhorfendur láta sjá sig í bíó. Önnur vinsæl hrollvekjusería er The Grudge en þrjár slíkar mynd- ir hafa verið framleiddar. Saman- lagður kostnaður hingað til er 35 milljónir dollara en miðasölutekj- urnar nema um 260 milljónum dollara. Þetta er meira en sjöfald- ur hagnaður. Hvort Mama, The Conjuring, Evil Dead, The Last Exorcism, eða jafnvel Paranormal Activity halda áfram að hrella bíógesti um ókom- in ár í hverri framhaldsmyndinni á fætur annarri á eftir að koma í ljós. Allt snýst þetta auðvitað um gæði myndanna og vilja áhorfenda til að láta „sömu“ myndirnar kalla fram gæsahúðina. freyr@frettabladid.is Draugar og djöfl ar draga til sín bíógesti Yfi rnáttúrulegar hrollvekjur hafa aldrei verið vinsælli í Hollywood. MAMA Náði efsta sætinu. PARANORMAL ACTIVITY Fimmta myndin er væntanleg í haust. THE GRUDGE Framleiðendur The Grudge græddu sjöfalt á myndinni. Ein frægasta hrollvekja allra tíma er The Exorcist í leikstjórn Williams Friedkin frá árinu 1973. Hún er byggð á sam- nefndri skáldsögu eftir William Peter Blatty frá árinu 1971. Myndin fjallar um unga stúlku sem er andsetin og tilraunir móður hennar til að láta særa djöfulinn úr henni með hjálp presta. Myndin kostaði 15 milljónir dollara en náði inn rúmum 440 milljónum dollara í miðasöl- unni. The Exorcist hefur iðulega komist á lista yfir bestu hrollvekjur allra tíma. Hún var tilnefnd til tíu Óskarsverðlauna og hlaut tvenn. Hún var fyrsta hryllings- myndin sem var tilnefnd til Óskarsins sem besta myndin. Ein frægasta hrollvekja allra tíma Körfuboltastjarnan LeBron James, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, og unnusta hans, Savannah Brinson, hafa ákveðið stað og stund fyrir brúðkaupið sitt og sent út boðskort þar að lútandi. Það gæti komið gyðingum í vinahópi parsins óþægilega á óvart að brúðkaupið fer fram helgina 13. til 15. september í borginni San Diego í Kaliforníu- ríki, en 13. september er einmitt upphafs- dagur Yom Kippur, helgustu hátíðar gyðinga. Meðan Yom Kippur stend- ur yfir fasta gyðingar í stað þess að raða í sig brúð- kaups- kræs- ingum. Brúðkaup Le- Bron ákveðið LEBRON JAMES Kvænist unnustu sinni meðan Yom Kippur-hátíðin stendur yfir. E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 9 5 9 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a ks tu r BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 Sölumenn okkar eru komnir í páskagírinn og bjóða margar gerðir af sparneytnum fjórhjóladrifnum bílum á spennandi páskatilboði Verið velkomin í reynsluakstur og látið sölumenn okkar gera ykkur spennandi tilboð í nýjan fjórhjóladrifinn bíl – fyrir páska. SPENNANDI TILBOÐ SHIFT_ SKYNSAMLEG KAUP Hrikalega gott verð SKEMMTILEGASTI KOST URINN Ef þú vilt góðan jepplin g með öllu DACIA DUSTER – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. NISSAN X-TRAIL – 4x4 Dísil, sjálfskiptur. Verð 6.690 þús. kr. Eyðsla: 5,1 l/100 km* Eyðsla: 7,1 l/100 km* SHIFT_ VINSÆLASTI SPORTJEPPINNSamkvæmt Umferðarstofu 2012 NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla: 4,6 l/100 km* SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn bensínsparna ður SUBARU XV – 4x4 Bensín, beinskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla: 6,6 l/100 km*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.