Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 25
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 8. MARS 2013 • 3
Lytess-fatnaðurinn kemur í staðinn fyrir krem
og aðrar grenningarlausnir sem lofa við-
skiptavinum ummálsminnkun. Krem þarf að
bera á kvölds og morgna og þarf oft nokkrar
túbur til að árangur sjáist. Snyrtistofur sem
bjóða grenningarmeðferðir þarf að heim-
sækja reglulega og aðrar lausnir þarf að taka
inn. Lytess-fatnaðinum þarf að klæðast í
minnst átta klukkutíma á dag en ekki þarf að
leiða hugann að því neitt frekar. Mælt er með
því að meðferð standi í sex mánuði.
„Kosturinn sem Lytess hefur umfram aðrar
grenningarvörur er að meðferðin virkar allan
daginn og þegar fatnaðurinn er í notkun er
stöðug dreifing á formúlunni á þeim svæðum
sem fatnaðurinn hylur. Snyrtimeðferð þarf að
endurtaka nokkrum sinnum og stendur mun
skemur yfir í einu. Kostnaðurinn er sömu-
leiðis mun minni enda hægt að nota flíkurnar
aftur og aftur,” segir Margrét Helgadóttir,
markaðsstjóri hjá heildsölunni Cu2 sem flytur
vörurnar inn.
Lytess-fatnaðurinn er saumlaus, án para-
bena og þolir þvott. Hann inniheldur meðal
annars koffín, forskolín, sishuan, piparkjarna
og bókhveiti en þessi efni auka brennslu og
losa um fitufrumur. Þá er í honum ruscus,
rauðir þörungar, japanskt pagoda og ginkgo
biloba sem allt er þekkt fyrir að vera vatns-
losandi. Að endingu er í þeim mangósmjör,
shea butter og sætar möndlur sem eru nær-
andi og rakagefandi. „Framtíðarplön Lytess
eru að framleiða fatnað sem tekur á ýmsum
líkamskvillum, svo sem þurri húð, exemi,
húðsliti, æðahnútum, bakverkjum og liðverkj-
um svo dæmi séu nefnd. Möguleikarnir eru
óþrjótandi en fyrirtækið setur mikið fjármagn
í rannsóknir og þróun,“ segir Margét.
Hér á landi verður til að byrja með boðið
upp á Slim express sem er tíu daga með-
ferð og fæst hún í þremur gerðum. Í Slim ex-
press-fatnaðinum eru efni sem leiða til sýni-
legs munar á útlínum líkamans á aðeins tíu
dögum, þó mælt sé með að fatnaðurinn sé
notaður í að minnsta kosti mánuð til að ná
fram hámarksárangri. Í Slim express eru
öflug efni sem brenna fitu og virka vatns-
losandi og hreinsandi. Þau fyrirbyggja upp-
söfnun fitufrumna, grenna og slétta húðina.
Fatnaðurinn er auk þess þægilegur og sést
ekki undir öðrum fötum.
Þá verður boðið upp á Sculpt & slim sem
er átján daga meðferð. Hún endur mótar
vöxtinn, grennir og nærir húðina og gefur
gott aðhald. Árangurinn sést eftir átján daga
en mælt er með því að fatnaðurinn sé not-
aður í að minnsta kosti mánuð. Fatnaðurinn
styður við maga og bak án þess að þrengja
að, en útkoman er sléttari magi. Sculpt &
slim fæst í tveimur gerðum. Annars vegar er
um að ræða aðhaldsbuxur þar sem áhersla
er lögð á mitti, bak og maga. Hin gerðin er
fyrir bak, mitti, mjaðmir, rass og læri.
Sculpt & lift er svo tuttugu daga meðferð.
Um er að ræða brjóstahaldara sem lag-
færir, styrkir, mótar og nærir brjóstin. Sjáan-
legur árangur kemur fram eftir tuttugu daga.
Haldarinn inniheldur elemi, sem herðir vef-
ina og styrkir húðina. Vefnaðurinn endur-
mótar brjóstin og styrkir bakið.
„Samkvæmt markaðsrannsóknum íhuga
flestar konur að minnsta kosti einu sinni á
ári að fara í megrun. Nýlegar kannanir sýna
að því miður eru flestar konur óánægðar
með einhvern hluta líkama síns og telja að
þeim myndi líða betur ef þær myndu grenn-
ast. Margar konur eru stöðugt að leita leiða
til þess að grennast, vilja losna við appels-
ínuhúð eða fá stinnari líkama. Flestar kann-
ast við að byrja í einhverju prógrammi eða
meðferð en oft fjarar átakið út. Margar bera
fyrir sig tímaskorti en það vandamál er úr
sögunni með Lytess.”
GRENNANDI AÐHALDSFATNAÐUR
Snyrtivörufatnaður frá Lytess hefur verið á markaði frá árinu 2003 en hann er búinn grenningarformúlu sem er ofin inn í fatnaðinn og
verður formúlan virk við snertingu og núning við húð. Lytess er leiðandi á markaði og er með einkaleyfi á þessari tegund fatnaðar en 180
prósenta aukning hefur verið í sölu á vörum fyrirtækisins undanfarin fimm ár.
AUGLÝSING: LYTESS KYNNIR
Sculpt & slim
Sculpt & slim er átján
daga meðferð. Hún
endurmótar vöxt-
inn, grennir og nærir
húðina og gefur gott
aðhald. Fatnaður-
inn styður við bak
og maga án þess að
þrengja að en útkom-
an er sléttari magi.
Sculpt & slim fæst í
tveimur gerðum. Ann-
ars vegar er um að ræða
aðhalds buxur þar sem
áhersla er lögð á mitti,
bak og maga. Hin gerð-
in (til hægri) er fyrir bak,
mitti, mjaðmir, rass og læri.
Slim express
Í Slim express-
fatnaðinum eru
efni sem leiða til
sýnilegs munar
á útlínum líkam-
ans á aðeins tíu
dögum. Í fatnað-
inum eru öflug efni
sem brenna fitu og
virka vatnslosandi og
hreinsandi. Þau fyrir-
byggja upp söfnun
fitufrumna, grenna og
slétta húðina. Fatn-
aðurinn er auk þess
þægilegur og sést
ekki undir öðrum
fötum.
Fatnaður og
snyrtivara í senn
Fatnaðurinn inniheldur meðal
annars koffín, piparkjarna, bók-
hveiti, rauða þörunga og shea
butter en innihaldsefnin eru
vatnslosandi, auka brennslu og
næra húðina. Fatnaðurinn er
án parabena.
Sjá nánar á visir.is/lifid
Fæst í eftirfarandi verslunum:
Lyfjum og heilsu í Firði, Kringlunni,
Austurveri, Domus Medica, JL Húsinu,
Glerártorgi Akureyri, Keflavík og Selfossi.
Apóteki Ólafsvíkur og Árbæjarapóteki.