Fréttablaðið - 08.03.2013, Síða 8
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
NÁM Í
DANMÖRKU
EÐA SVÍÞJÓÐ
Námskynning verður í Sunnusal á
Hótel Sögu laugardaginn 9. mars
frá kl. 12–16.
Eftirfarandi háskólar munu kynna:
- Syddansk Universitet, www.sdu.dk
- Högskolan í Skövde, www.his.se
- Luleå Tekniska Universitet, www.ltu.se
Ennfremur munu eftirfarandi danskir háskólar, sem eru með lengri
og styttri nám á háskólastigi kynna sína skóla:
- Erhvervsakademi Kolding, www.eakolding.dk
- Erhvervsakademi Lillebælt, www.eal.dk
- Erhvervsakademi Sydvest, www.easv.dk
- Københavns Erhvervsakademi, www.kea.dk
- University College Sjælland, www.ucsj.dk
- VIA University College, www.via.dk
Margir skólanna kenna á ensku. University College Sjælland mun
kynna alþjóðlegt kennaranám á ensku, sem er nýjung hjá þeim,
sjá nánar á www.ucsj.dk/ite
Save the Children á Íslandi
ATVINNULÍF Stóru flutningafyrir-
tækin tvö, Samskip og Eimskip,
hafa á innan við tveimur vikum
kynnt nýjar strandsiglingaleið-
ir með tengingu við Bretland og
megin land Evrópu. Stjórnvöld
boða á sama tíma útboð ríkis-
styrktra strand-
siglinga. For-
stjóri Eimskips
telur útboðið
óþarft enda hafi
markaðurinn
leyst málið og
hugmyndir rík-
isins um strand-
siglingar til-
heyri fortíðinni.
Eimskip kynntu á miðvikudag
breytingar á siglingakerfi félags-
ins, sem hafa verið í undirbún-
ingi allt síðasta ár. Hluti þess er
ný vikuleg strandsiglingaleið sem
tengir Ísland við Færeyjar, Bret-
land og meginland Evrópu. Skip
félagsins munu koma vikulega við
í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri
og Reyðarfirði.
Samskip urðu fyrri til og kynntu
nýja hringleið í flutningum þegar
vika lifði af febrúarmánuði. Flutn-
ingaskip á vegum félagsins fer frá
Reykjavík til sömu hafna á lands-
byggðinni og þaðan til Bretlands
og Evrópu með viðkomu í Fær-
eyjum. Bæði félögin útiloka ekki
að viðkomustöðum verði fjölgað í
framtíðinni.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim-
skips, segir ekki um strandsigl-
ingar að ræða eins og tíðkuðust
á árum áður. Til sé komin teng-
ing við erlendar hafnir sem geri
siglingarnar mögulegar. „Ég spyr
mig hvort sé þörf á því að ríkið sé
að vasast í því að bjóða út strand-
siglingar. Tvö félög ætla að sinna
þessu. Það er ekkert pláss fyrir
meira og oft gott þegar markað-
urinn tekur þetta hlutverk að sér.
Við vonum að það sé að gerast
þannig að ríkið þurfi ekki að nið-
urgreiða flutninga út á land. Þetta
sé eðlilegur hlutur í okkar við-
skiptum,“ segir Gylfi, sem segir
að fari útboðið fram muni Eimskip
taka þátt í því. Hann telur að sú
tegund strandsiglinga sem ríkið
boði að boðin verði út tilheyri for-
tíðinni. Hringkeyrsla innanlands,
eins og ríkið áætli, sé gengin sér
til húðar.
Spurður hvort markaðurinn
beri tvö stór félög í siglingum
segir Gylfi að það hefði aldrei
gengið ef aðeins væri um að ræða
að fara hringinn í kringum landið.
Hins vegar sé um allt annan hlut
að ræða þegar hringurinn nái til
hafna erlendis, og þetta tvennt í
raun ósamanburðarhæft.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam-
skipa, segir mjög líklegt að félagið
taki þátt í útboði en á sama tíma sé
það dapurleg tilhugsun að hugað
sé að niðurgreiddum siglingum á
þessum markaði.
svavar@frettabladid.is
Útboð ríkisstyrktra
strandsiglinga óþarfi
Forstjóri Eimskips telur ástæðulaust að ríkið bjóði út ríkisstyrktar strandsiglingar.
Markaðurinn hafi þegar leyst málið og hugmyndafræði ríkisins tilheyri fortíðinni.
Ný hugsun í siglingum myndar svigrúm fyrir tvö fyrirtæki í strandsiglingum.
Ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti á dögunum tillögu Ögmundar Jónas-
sonar innanríkisráðherra um að hefja útboð fyrir strandsiglingar. Um til-
raunaverkefni er að ræða til sex ára þar sem siglt yrði vikulega á allt að sjö
hafnir og er gert ráð fyrir að fastbinda fjórar hafnir sérstaklega í útboðinu;
Reykjavík, Ísafjörð, Akureyri og Reyðarfjörð, eða þær sömu og Samskip
og Eimskip einbeita sér að. Fleiri hafnir kæmu til greina sem fastir við-
komustaðir, en aðrar hafnir eftir atvikum samkvæmt upplýsingum frá
stjórnvöldum.
Ríkið býður út siglingar fyrir kosningar
SUNDAHÖFN Á hálfum mánuði hafa Eimskip, Samskip og ríkið kynnt áætlanir er varða strandsiglingar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GYLFI SIGFÚSSON
REYKJAVÍK Allt útlit er fyrir að gler-
veggurinn á húsi Menntaskólans í
Reykjavík fái að standa, en um hann
hafa staðið nokkrar deilur. Veggurinn
var byggður síðasta sumar, en húsið
hafði þá látið verulega á sjá.
Eftir að hann reis gerðu nágrann-
ar hins vegar athugasemdir við að
speglun af húsunum í glerveggnum
gerði það að verkum að friðhelgi
einkalífs þeirra yrði fyrir „óþolandi
inngripi“.
Byggingarleyfi fyrir framkvæmd-
unum var fellt úr gildi í september
með ákvörðun úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála. Ástæðan
var að grenndaráhrifin væru slík að
yfirvöldum hefði borið að grenndar-
kynna framkvæmdirnar.
Málið var því sett í ferli á ný og
bárust umsagnir frá íbúum og skipu-
lagsfulltrúa og byggingarfulltrúa. Sjö
íbúar sem búa gegnt veggnum sendu
inn mótmæli í umsagnarferlinu en
eigendur tveggja fasteigna lýstu yfir
ánægju með niðurstöðuna.
Í sameiginlegri umsögn skipulags-
fulltrúa og byggingarfulltrúa kemur
fram að vissulega sé speglun í veggn-
um og athugað hafi verið hvernig
draga megi úr henni. Ýmsar hug-
myndir hafi verið reifaðar en engin
þeirra sé talin ásættanleg eða raun-
hæf.
Umsóknin um leyfi var tekin fyrir
á fundi umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjavíkur í síðustu viku, þar
sem engar athugasemdir voru gerð-
ar. Henni var vísað til fullnaðaraf-
greiðslu byggingarfulltrúa og verður
líklega afgreidd endanlega á fundi
næstkomandi þriðjudag. - þj
Deilurnar um glerklæðningu á Þingholtsstræti 18 í Reykjavík:
Speglaveggurinn líklega áfram
SPEGILMYND Íbúar gegnt glerklæðningunni á Þingholtsstræti voru
ósáttir við speglun sem af henni varð. Málið var tekið fyrir á ný en
veggurinn fær líklega að halda sér. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Ég spyr mig hvort sé
þörf á því að ríkið sé að
vasast í að bjóða út strand-
siglingar. Tvö félög ætla að
sinna þessu. Það er ekkert
pláss fyrir meira.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips