Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 12
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
„Ef Barnahúsið hefði ekki verið til staðar hefði ekk-
ert gerst. Engin meðferð hefði hafist,“ segir tvítugur
strákur úr sérfræðihópnum. Hann var misnotaður
af frænda sínum þegar hann var níu ára gamall en
sagði frá því ári seinna. „Það var smokkaauglýsing
í sjónvarpinu og ég man að ég hélt að ég væri með
alnæmi þegar mamma útskýrði fyrir mér hvað
smokkur væri. Ég sagði frá út af hræðslu.
Svo var ég þar í tvö ár og það var ekki fyrr en
mörgum árum seinna að mamma ýjaði að því við
mig að fara í Barnahúsið aftur. Ég fór aftur, þá sautj-
án ára, og það er áhrifamesta meðferðin. Þess vegna
ítrekaði ég við ráðherrana áðan að Barnahúsið er
besti meðferðarvettvangur sem til er á Íslandi, þar er
ótrúlegur stuðningur og það fylgir öllum þolendum
eftir alla ævi. Þess vegna vorum við að ítreka við þau
að það þarf að stækka þetta öryggisnet, starfsemi
Barnahússins. Besta meðferðin sem ég hlaut var
þarna.“ Hann segir merkilegt að ferlið sé ofboðslega
langt, mörg ár, og þegar hann kom aftur inn í Barna-
húsið sem unglingur hafi sálfræðingur útskýrt fyrir
honum að hann hafi verið svo ungur þegar hann hóf
meðferð að það hafi verið erfitt að ná markvissum
árangri. „Börn verða fyrir ofbeldi og þetta gerist allt
í þrepum, fyrst einhvers konar grunnmeðferð. Þau í
Barnahúsi krossleggja fingurna og vona að þau nái
að innræta einhver skilaboð svo krakkar leiti þangað
aftur. Í mínu tilfelli var mamma mín á tánum og ég
er ótrúlega þakklátur fyrir að fjölskyldan mín er búin
að standa við bakið á mér.“
Hann segir alveg ljóst að í framtíðinni muni hann
áfram leita til Barnahúss. „Ég veit ekki hvert annað
ég á að leita, þetta er svo einfalt. Þau eru með mitt
mál, upplýsingar og skýrslur og svo framvegis sem
getur hjálpað. Minn sálfræðingur þekkir foreldra
mína og svo framvegis. Ég veit að ég er velkominn
þar og það skiptir máli. Ég fer þangað og sæki mér
meiri hjálp því ég veit að ég þarf á henni að halda.“
Á fundinum kom einnig fram að mikil bið er eftir
þjónustu Barnahúss og um fjörutíu börn bíða eftir
meðferð. Hann segir að þeir sem fái hjálp endi eins
og þau, á sama reit, sem sé mjög jákvætt, og hann
vonast til þess að öll börn komist að hjá Barnahúsi.
„Þetta er endalaus meðferð og eftir því sem
tíminn líður nær maður alltaf meiri árangri
og líður betur. Mér líður mjög vel og ég get
tjáð mig þokkalega um þetta,“ segir hann.
Hann segir að unnið hafi verið með
hans mál innan fjölskyldunnar og hann sé
því mjög feginn. Honum þótti mjög erfitt
að heyra sögur félaga sinna úr sérfræði-
hópnum, sem sumir hafa gert mál sín
opinber með kærum eða öðru. „Mitt mál
er búið að vera bara út af fyrir mig og að
heyra það sem þau voru búin að ganga í
gegnum fannst mér erfiðast, mér fannst
þau hafa gengið í gegnum helvíti. Við
höfum öll gert það en þetta var allt of
mikið. Það finnst mér hvað sárast.
Allt sem tengist þessum opinbera
vettvangi, þetta er bara viðbjóður,
ég myndi aldrei vilja standa í þessu, bara
ekki að ræða það. Það þarf ekki að gefa
mér eina einustu krónu og það þarf ekki
að refsa neinum. Þetta er mjög hrottaleg
meðferð sem þetta opinbera kerfi er að
veita þessum einstaklingum sem verða fyrir
ofbeldi. Það var mjög lærdómsríkt.“
VIÐBJÓÐUR Á
OPINBERUM VETTVANGI
„Þetta er það sem ég á að gera. Ég upplifði ekki
þessa reynslu til einskis heldur til þess að geta lært
af því og hjálpað öðrum. Allavega trúi ég því. Það var
tilgangur með þessu,“ segir átján ára gömul stúlka
sem Fréttablaðið ræddi við í gær. Hún varð fyrir
kynferðislegu ofbeldi af hendi frænda síns fyrir um
tveimur og hálfu ári en það tók hana hálft ár að átta
sig á því sem gerðist og segja frá því.
En hvernig fannst henni að segja ráðherrum sína
sögu? „Mér fannst þetta frábært. Það lætur manni
líða eins og þetta skipti máli, sem það gerir. Mér
finnst gott að þetta sé orðið svo stórt í umræðunni
að það veki svona mikla vitund og eftirtekt. Þetta
var merkilegt bæði fyrir okkur og ráðherrana,“ segir
hún. Hópurinn er sammála um að þau hafi komið
ráðherrunum í opna skjöldu, og sáu það vel á þeim á
lokuðum fundi sínum með þeim.
„Mér finnst svolítið gott að við höfum komið
þeim í opna skjöldu af því að það er það sem þarf.
Það þarf að fá þetta svona beint framan í sig til að
átta sig á raunveruleikanum. Af því að þetta er stórt,
þetta er erfitt og þetta er ljótt en það þýðir ekkert
að hundsa það. Þau sjá okkur, fólk sem hefur lent í
þessu, og þau sjá alveg hvað við erum vel stödd með
framtíðina fyrir okkur af því að við höfum fengið
þá hjálp sem þarf. Og það segir manni að fólk sem
lendir í kynferðisbroti þarf ekkert að lifa í skugg-
anum af því alla sína ævi. Það getur endurheimt líf
sitt ef það fær réttu hjálpina.“
Henni finnst algjörlega vanta viðurkenningu
á vandamálinu í samfélaginu. „Viðurkenningu á
ofbeldinu sem á sér stað. Ég fékk til dæmis ekki
viðurkenningu frá neinum nema minni nánustu fjöl-
skyldu. Það var sem sagt frændi minn sem misnotaði
mig. Það var rosalega erfitt fyrir fjölskylduna, klauf
hana svolítið í tvennt, en flestir stóðu algjörlega við
bakið á mér. En af því að við vorum í sama vinahópi
líka, og hann var fyrri til að segja sínar fjölmörgu
upplognu útgáfur af því sem gerðist, þá trúði mér
enginn. Þeir sem ég taldi vini mína viðurkenndu
kynferðisbrotið engan veginn og ég var útskúfuð
algjörlega úr vinahópnum. Það var gríðarlega erfitt.“
Hún segist ekki hafa áttað sig á því fyrr en með
hjálp sálfræðings í Barnahúsi hvers vegna frændinn
dreifði um hana sögum. „Ég skildi bara ekkert hvers
vegna hann lagði sig svona fram við að dreifa um
mig lygum, fyrr en sálfræðingurinn minn útskýrði
fyrir mér að hann var að fela spor sín og vissi
nákvæmlega hvað hann var að gera. Hann var að
koma í veg fyrir að mér yrði trúað þegar ég loksins
áttaði mig á því hvað hafði gerst og þyrði að segja
frá því. Það leið alveg upp undir hálft ár, bæði vegna
þess að ég gerði mér ekki grein fyrir því að þetta
var glæpur, þetta var bara eitthvað skammarlegt og
ógeðslegt sem ég vildi ekki einu sinni viðurkenna
fyrir sjálfri mér, hvað þá öðrum.“
Hún segist hafa verið miður sín frá því að hún
varð fyrir ofbeldinu og þangað til hún áttaði sig á
það hvað gerðist. „Það skánaði nú svo sem ekkert
við það að átta mig og segja frá. Það var ofsalega
erfitt að gera sér grein fyrir og samþykkja að frændi
minn og vinur væri svona innrættur. En svo fór ég
að fá hjálp og það var bara ofboðslega fljótt að fara
upp á við. Maður veit alveg að þetta er ekki manni
sjálfum að kenna. En það er eitt að vita og annað
að skilja.“ Hún segir mömmu sína alltaf hafa sagt
henni að til væri fólk sem gerði svona hluti. „En ég
velti því aldrei neitt nánar fyrir mér. Ég vissi svo sem
að ofbeldi væri aldrei þolandanum að kenna. En
einhvern veginn fannst mér það ekki eiga við mig,
sem er alveg týpísk viðbrögð hjá þolanda
kynferðisofbeldis, því sjálfsáfellingin er
svo gríðarleg. Þegar manneskja lendir í
kynferðisbroti þá er allt tekið frá henni,
öll völd hrifsuð burt og mörkin virt að
vettugi. Ég skrifaði einhvern tímann niður
hjá mér: Nauðgarar eru eins og vitsugur,
úr Harry Potter, þeir sjúga alla gleðina
úr þér, nærast á henni og þér finnst
eins og þú munir aldrei verða glaður
aftur. Á þær er notaður verndargaldur,
Expecto patronum, sem er í þessari
líkingu Barnahús, og kennir manni að
hjálpa sér sjálfur.“
Hún sló strax til þegar henni
bauðst að taka þátt í verkefninu.
„Þetta er það besta sem ég hef gert
í lífi mínu. Ég er átján ára og er búin
að afreka þetta mikið. Ég er búin að,
ég leyfi mér að taka svona stórt til orða,
breyta heiminum aðeins. Til hins betra.
Það eru ekki allir átján ára sem geta sagt
það og ég er rosalega stolt af því og ég er
óendanlega stolt af krökkunum sem ég er
að vinna með.“
STÓRT, ERFITT OG LJÓTT EN ÞÝÐIR
EKKERT AÐ HUNDSA ÞAÐ
„Búin að breyta
heiminum aðeins“
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi kynnti í gær skýrslu um ofbeldi gegn
börnum og tillögur að úrbótum. Sex ungmenni sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi mynduðu sérfræðihóp barna og skiluðu eigin tillögum. Þau sögðu fjórum
ráðherrum sögu sína í gær og tvö þeirra ræddu við Fréttablaðið að því loknu.
thorunn@frettabladid.is
➜ Þetta var bara eitthvað skammar-
legt og ógeðslegt, sem ég vildi ekki einu
sinni viðurkenna fyrir sjálfri mér.
➜ Ef Barnahúsið hefði ekki verið til
staðar hefði ekkert gerst. Engin með-
ferð hefði hafist.