Fréttablaðið - 08.03.2013, Qupperneq 50
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
SPORT
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason
hefur skipað sér í sérstöðu
meðal leikmanna hollensku
úrvalsdeildarinnar í fótbolta, en
Heerenveen-liðið treystir mikið
á íslenska landsliðsframherjann,
sem er nú annar markahæsti
maður deildarinnar með 19 mörk
í 23 leikjum. Marco van Basten,
þjálfari hollenska liðsins, getur
þakkað Alfreð fyrir að liðið
hefur fjarlægst fallbaráttuna í
undanförnum leikjum.
Alfreð hefur skorað 19 af 36
mörkum SC Heerenveen í deildinni
á þessu tímabili, sem gerir 53
prósent marka liðsins. Hann er
eini leikmaður deildarinnar sem
hefur skorað meira en helming
marka síns liðs og Alfreð er
jafnframt búinn að eiga þátt í 61
prósenti markanna, annaðhvort
með því að skora eða leggja upp
fyrir félaga sína í liðinu.
Alfreð skoraði enn fremur fjögur
af sex bikarmörkum Heerenveen-
liðsins á þessu tímabili og er
því alls með 23 af 42 mörkum
Heerenveen í deild og bikar á
tímabilinu, sem gera 55 prósent
markanna.
Sá sem kemst næst Alfreð er Jozy
Altidore hjá AZ Alkmaar, en hann
hefur skorað 17 af 35 mörkum
AZ í deildinni, sem gera 48,6
prósent marka liðsins. Wilfried
Bony, markahæsti leikmaður
deildarinnar, er síðan í þriðja
sætinu, en hann hefur skorað 46
prósent marka Vitesse-liðsins, eða
23 af 50.
Mikilvægi marka Alfreðs í undan-
förnum tveimur leikjum Heeren-
veen er óumdeilanlegt, en sigur-
mörk hans í tveimur leikjum í röð
hafa séð til þess að Heerenveen
hækkaði sig um heil fimm sæti
með þessum tveimur sigurleikjum,
frá 14. sæti upp í það níunda. Það
er reyndar langt upp í áttunda sæti
(6 stig), sem er síðasta sætið sem
gefur þátttökurétt í umspili fyrir
Evrópudeildina.
Alfreð hefur nú aðeins mistek-
ist að skora í tveimur af síðustu
ellefu leikjum sínum í hollensku
deildinni og í öðrum þeirra spil-
aði hann aðeins fyrri hálfleikinn
eftir að liðið missti mann af velli
fyrir hlé.
Heerenveen fær topplið PSV
í heimsókn um helgina og þar
verður róðurinn þungur enda
tapaði Heerenveen fyrri leiknum
1-5. Alfreð er búinn að skora í
fjórum heimaleikjum í röð og alls
í 8 af 10 heimaleikjum tímabilsins.
hann er því alltaf líklegur á Abe
Lenstra vellinum í Heerenveen.
- óój
Sá eini með yfi r helming marka síns liðs
Alfreð Finnbogason hefur skorað 19 af 36 mörkum Heerenveen í hollensku deildinni á þessu tímabili.
MARK Á 100 MÍNÚTNA FRESTI Alfreð
Finnbogason hefur skorað 19 mörk í 22
deildarleikjum. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Hlutfall marka
eftir mánuðum
Ágúst/sept. Alfreð með 3 mörk af 6, 50%
Október 5 af 9, 56%
Nóvember 2 af 4, 50%
Desember 4 af 8, 50%
Janúar/febrúar 3 af 7, 43%
Mars 2 af 2, 100%
Haukar duttu út á móti ÍR (8 liða úrslit)
FH datt út á móti Akureyri (8 liða úrslit)
Fram datt út á móti Stjörnunni (32 liða úrslit)
ÍR mætir Selfossi í undanúrslitunum í kvöld
Akureyri mætir Stjörnunni í undanúrslitunum í kvöld
HK datt út á móti FH (16 liða úrslit)
Afturelding datt út á móti Akureyri (16 liða úrslit)
Valur datt út á móti Selfossi (16 liða úrslit)
Örlög N1 deildar-liðanna í bikarnum í ár
ÚRSLIT
DOMINOS-DEILD KARLA
Keflavík - Þór Þorlákshöfn 106-100 (53-50)
Keflavík: Michael Craion 29/15 fráköst, Magnús
Þór Gunnarsson 27, Darrel Keith Lewis 18/6
fráköst/6 stoðsendingar, Billy Baptist 16/8 fráköst,
Valur Orri Valsson 7, Arnar Freyr Jónsson 5, Snorri
Hrafnkelsson 4.
Þór Þ.: Benjamin Curtis Smith 30/8 stoðsendingar,
David Bernard Jackson 26/13 fráköst, Þorsteinn
Már Ragnarsson 16/3 varin skot, Darrell Flake
14/4 fráköst, Guðmundur Jónsson 14/4 fráköst,
Grétar Ingi Erlendsson 0/7 fráköst.
Tindastóll - Njarðvík 98-103 (51-46, 82-82)
Tindastóll: Drew Gibson 25/16 stoðsendingar,
George Valentine 22/16 fráköst, Svavar Atli
Birgisson 14/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson
11/7 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 10, Hreinn
Gunnar Birgisson 7/7 fráköst, Pétur Rúnar Birgis-
son 6, Þröstur Leó Jóhannsson 3.
Njarðvík: Nigel Moore 32/11 fráköst/6 stolnir,
Elvar Már Friðriksson 22/6 fráköst/5 stoðsending-
ar, Ágúst Orrason 13, Marcus Van 12/13 fráköst,
Ólafur Helgi Jónsson 8/4 fráköst, Maciej Stanislav
Baginski 7, Friðrik E. Stefánsson 4, Hjörtur Hrafn
Einarsson 3, Óli Ragnar Alexandersson 2.
KR - Stjarnan 75-87 (39-54)
KR: Brynjar Þór Björnsson 18/5 fráköst/6
stoðsendingar, Martin Hermannsson 13, Brandon
Richardson 13/5 fráköst/8 stoðsendingar, Kristófer
Acox 10/10 fráköst, Helgi Már Magnússon 8, Jón
Orri Kristjánsson 5, Darshawn McClellan 5/4
fráköst, Finnur Atli Magnusson 3.
Stjarnan: Jarrid Frye 32/12 fráköst, Justin Shouse
21/5 fráköst/6 stoðsendingar, Jovan Zdravevski
17/8 fráköst, Brian Mills 8/7 fráköst, Fannar Freyr
Helgason 4, Kjartan Atli Kjartansson 3/5 fráköst,
Dagur Kár Jónsson 2.
Skallagrímur - Snæfell 78-85 (39-34)
Skallagrímur: Carlos Medlock 31/8 fráköst/9
stoðsendingar, Páll Axel Vilbergsson 21, Sigmar
Egilsson 7, Davíð Ásgeirsson 6, Trausti Eiríksson
5/6 fráköst, Birgir Þór Sverrisson 3, Orri Jónsson
3/5 fráköst, Hörður Helgi Hreiðarsson 2/9 fráköst.
Snæfell: Ryan Amaroso 27/15 fráköst, Jay Threatt
21/5 fráköst/7 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson
17/7 fráköst/6 stoðsendingar, Sigurður Á. Þorvalds-
son 9/5 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 4, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 4, Sveinn Arnar Davíðsson
2, Stefán Karel Torfason 1, Ólafur Torfason 0/5
fráköst.
KFÍ - Grindavík frestað
STAÐAN Í DEILDINNI:
Grindavík 19 15 4 1849-1650 30
Snæfell 20 15 5 1930-1738 30
Þór Þorl. 20 14 6 1852-1715 28
Stjarnan 20 13 7 1886-1766 26
Keflavík 20 13 7 1840-1762 26
Njarðvík 20 11 9 1803-1721 22
KR 20 10 10 1718-1726 20
Skallagrímur 20 7 13 1610-1751 14
Tindastóll 20 6 14 1618-1729 12
ÍR 19 5 14 1590-1729 10
KFÍ 19 5 14 1682-1879 10
Fjölnir 19 4 15 1582-1794 8
EVRÓPUDEILDIN Í FÓTBOLTA
16-LIÐA ÚRSLIT, FYRRI LEIKIR
Tottenham - Internazionale 3-0
1-0 Gareth Bale (6.), 2-0 Gylfi Þór Sigurðsson (18.),
3-0 Jan Vertonghen (53.).
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham
og spilaði fyrstu 70. mínútur. Hann átti frábæran
leik, lagði upp fyrsta mark liðsins fyrir Gareth Bale
og skoraði svo sjálfur stuttu síðar er hann fylgdi
eftir skot Jermain Defoe sem var varið.
Steaua Búkarest - Chelsea 1-0
0-1 Raul Rusescu, víti (34.).
Anzhi - Newcastle United 0-0
Viktoria Plzen - Fenerbahce 0-1
Stuttgart - Lazio 0-2
Benfica - Bordeaux 1-0
Levante - Rubin Kazan 0-0
Basel - Zenit 2-0
HANDBOLTI Bikarúrslitahelgi HSÍ
hefst í dag þegar undanúrslit
karla fara fram í Laugardalshöll-
inni. Í fyrsta skipti fara undanúr-
slit og úrslit fram sömu helgina og
allir leikir í Laugardalshöllinni.
Úrslitaleikir yngri flokka fara líka
fram þessa helgi.
Það eru karlarnir sem ríða á
vaðið í dag og undanúrslit kvenna
fara svo fram á morgun. Úrslita-
leikirnir verða svo spilaðir á
sunnudag.
Tvö 1. deildarlið eru í undan-
úrslitum í karlakeppninni, sem
kemur nokkuð á óvart. Fréttablað-
ið fékk Ágúst Jóhannsson, þjálf-
ara 1. deildarliðs Gróttu, til þess
að spá í spilin fyrir leiki dagsins.
„Ég held að þetta verði ansi
strembið fyrir 1. deildarliðin. Þó
svo að 1. deild sé alltaf að styrkj-
ast er enn stigsmunur á gæðunum
þar og í efstu deild. Ég held að ÍR
og Akureyri fari nokkuð þægilega
í gegnum þetta,“ sagði Ágúst en
hvað þarf að gerast til að 1. deild-
arliðin komi á óvart?
„Þau þurfa að eiga algjöran
toppleik. Það þarf líka að vera
vanmat hjá úrvalsdeildarliðun-
um en ég sé það ekki gerast þegar
svona langt er liðið á keppnina.
Ég hefði haft gaman af því að fá
1. deildarlið í úrslitin en ég sé
það ekki gerast,“ sagði Ágúst, en
hann stýrði Gróttu alla leið í úrslit
á sínum tíma þegar liðið var í 1.
deild. Er það í eina skiptið sem 1.
deildarlið hefur komist í úrslit.
Ef spá þjálfarans gengur eftir
verða það ÍR og Akureyri sem
spila á sunnudaginn. Hvernig
leggst sá leikur í hann?
„Ég held að það verði hörku-
leikur. Akureyri er með ungt og
efnilegt lið í bland við reynslu-
meiri menn eins og Bjarna og
Heimi sem þjálfa líka liðið. ÍR er
með gríðarlega sterkt varnarlið og
mikil stemning í kringum félagið.
Það er líka stemning í kringum
Akureyringa og ég held að þetta
verði flottur úrslitaleikur,“ segir
Ágúst en hvort liðið vinnur leik-
inn?
„Ég hallast að sigri ÍR-inga en
það verður ekki auðvelt. Varnar-
leikur ÍR-inga mun gera gæfu-
muninn.“
Það er almenn jákvæðni í
handboltahreyfingunni með
þetta nýja fyrirkomulag á
úrslitahelginni. Ágúst er á meðal
þeirra jákvæðu.
„Mér líst mjög vel á þetta. Það
er gaman að prófa þetta. Svona
fyrir komulag hefur heppnast
mjög vel erlendis. Það er flott
umgjörð í kringum keppnina
og nú snýst þetta um hvernig
félögin standa að sínum málum
og hversu margt fólk mætir á
svæðið. Þetta er flott framtak og
til fyrirmyndar hvernig er staðið
að þessu.“
henry@frettabladid.is
Erfi tt fyrir neðrideildarliðin
1. deildarliðin Selfoss og Stjarnan verða bæði í eldlínunni þegar undanúrslit Símabikars karla fara fram í
dag. Þau fá að reyna sig gegn úrvalsdeildarliðunum ÍR og Akureyri. Ágúst Jóhannsson, þjálfari 1. deildarliðs
Gróttu, gerir ekki ráð fyrir því að neðrideildarliðin komi á óvart og fari alla leið í úrslitaleikinn í ár.
HVER HREPPIR BIKARINN? Fyrirliðar liðanna fjögurra sem berjast um bikarinn takast hér á. Hreinn Þór Hauksson frá Akureyri,
Hörður Bjarnarson frá Selfossi, Víglundur Jarl Þórsson frá Stjörnunni og Björgvin Þór Hólmgeirsson frá ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Þýska B-deildarliðið Emsdetten
hefur gefið mikið eftir í síðustu leikjum eftir
frábært gengi framan af tímabili. Emsdetten
hefur tapað tveimur síðustu leikjum sínum
en er þrátt fyrir það enn á toppi deildarinnar
með fjögurra stiga forystu á næstu lið.
Fyrst kom tap fyrir botnliði Ferndorf um
helgina og svo steinlá liðið fyrir Eintracht
Hildesheim á miðvikudagskvöldið,
31-23. Ólafur Bjarki Ragnarsson og
Ernir Hrafn Arnarson spila báðir
með liðinu.
„Þetta byrjaði reyndar fyrir
þremur leikjum, en þá vorum við
bara heppnir að vinna því við vorum
sex mörkum undir þegar rúmar tíu mín-
útur voru eftir,“ sagði Ólafur Bjarki
við Fréttablaðið í gær. Hann sagði engar
sérstakar skýringar á þessum viðsnúningi
– ekki meiðsli lykilmanna eða neitt slíkt.
„Það væri fínt að geta falið sig á bak við
það en það er ekki svo. Vörnin hefur verið
okkar helsti styrkleiki en hefur verið að gefa
eftir. Þá hefur markvarslan dottið niður og
þau 5-10 hraðaupphlaupsmörk sem við erum
með að öllu jöfnu hafa ekki verið að skila
sér,“ segir Ólafur Bjarki enn fremur.
„Við erum sjálfir hálfgáttaðir á þessu. Það
þýðir samt ekkert annað en að reyna að
finna vandamálið og laga það. Von-
andi náum við að koma okkur á réttu
brautina sem allra fyrst.“ - esá
Sjálfi r hálfgáttaðir á viðsnúningnum
KÖRFUBOLTI Fjölnir tekur á móti ÍR í nágranna-
slag í Grafarvoginum í kvöld, en þetta er
gríðarlega mikilvægur leikur í fallbaráttu
Domino‘s-deildar karla í körfubolta.
Fjölnir situr í neðsta sæti deildarinnar
og hefur tapað tíu leikjum í röð en
verður bara að vinna til að eiga mögu-
leika á að bjarga sér. ÍR komst upp úr
fallsæti með sigri á KFÍ í síðustu umferð
og getur unnið tvo leiki í röð í fyrsta sinn
á tímabilinu.
Jón Sverrisson tryggði Fjölni 88-86 sigur
í fyrri leik liðanna í desember með körfu rétt
áður en flautan gall en það var síðasti sigur-
leikur Grafarvogsliðsins í vetur. Það stefnir því í
mikinn spennuleik. - óój
Leikur upp á líf og dauða