Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 54
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38
„Ég er nú bara að vinna alla helgina
en stefni á að fá mér bjór niðri í bæ
eftir vinnu.“
Páll Valdimar Guðmundsson Kolka
jójómeistari
HELGIN
„Ég hugsa nú að mávurinn góði verði bara
eftir heima. Ég býst við svo miklu stuði þarna
og hann er með svo beitta vængi að það gæti
endað illa,“ segir söngkonan Hera Björk Þór-
hallsdóttir.
Eins og flestum er kunnugt stóð Hera Björk
uppi sem sigurvegari í Viña Del Mar-söngva-
keppninni í síðustu viku og fékk í verðlaun
forláta mávastyttu og rúmar fjórar milljónir
íslenskra króna. Hera Björk er nú komin aftur
heim á klakann og vegna fjölda áskorana hefur
verið ákveðið að slá upp heimkomupartíi fyrir
hana á Spot í Kópavogi í kvöld. Hera mun sjálf
sjá um að skemmta gestum en henni til aðstoð-
ar verður Haffi Haff. Að tónleikum loknum
þeyta umboðsmenn hennar og vinir, Valli Sport
og Örlygur Smári, svo skífum fram eftir kvöldi.
„Ég ætla að taka mín bestu lög og að sjálfsögðu
verður Because You Can þar á lista,“ segir hún.
„Það er aldrei að vita nema ég splæsi í eitt eða
tvö erindi á spænsku,“ bætir hún við, en Viña
Del Mar-keppnin er með stærri keppnum hins
spænskumælandi heims.
Hera Björk segist ekki vera búin að ákveða í
hverju hún ætli að vera á tónleikunum, en rauði
kjóllinn sem hún klæddist á sviðinu í Síle verði
þó ekki fyrir valinu. „Hann er kominn í hreins-
un greyið, enda alveg búinn að vinna fyrir því
að fá smá hvíld,“ segir hún og hlær.
- trs
Mávurinn skilinn eft ir heima
Söngkonan Hera Björk fagnar góðu gengi í Síle með partíi á Spot í kvöld
HAFÐI BETUR Hera er hér með keppinauti sínum úr
Viña Del Mar-söngvakeppninni, Francisco Leon. Hún
hafði betur en hann í keppninni og kom heim með
Mávastyttuna en hann fór tómhentur heim.
MYND/VALGEIR MAGNÚSSON
„Við vildum breyta til og leggja
meiri áherslu á viðskiptahliðina,
þess vegna kusum við að hafa
sýningarnar fyrr um daginn,“
segir Þórey Eva Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri RFF. Hátíðin
fer fram með öðru sniði í ár en
fyrri ár og fara allar tískusýning-
arnar fram á laugardeginum.
Alls taka sjö hönnuðir þátt í
RFF í ár og hefst fyrsta sýning-
in klukkan 11.30 og sú síðasta
klukkan 17 sama dag. „Við litum
til erlendu tískuviknanna þegar
kom að skipulaginu. Úti byrja
fyrstu sýningarnar mjög snemma
á morgnana. Tískuiðnaðurinn er
mjög ungur hérna heima, RFF er
lifandi verkefni og við erum enn
að reyna að finna okkar takt.“
Önnur breyting sem á sér stað
er sú að í fyrsta sinn gefst gest-
um færi á að kaupa miða inn á
stakar sýningar eða passa á allar
sjö sýningarnar. „Við viljum fá
sem flesta á sýningarnar og þess
vegna ákváðum við að prófa að
selja inn á stakar sýningar. Miða-
salan hefur farið ótrúlega vel af
stað og það er þegar uppselt á
nokkrar sýningar,“ segir Þórey
Eva og nefnir sýningu tískumerk-
isins Ellu í því samhengi.
Í ár er RFF haldin í tengslum
við Hönnunarmars og því fá gest-
ir hátíðarinnar að upplifa fleira
en bara tísku þennan laugar-
dag. „Það verður fullt að gerast
í Hörpunni á sama tíma, meðal
annars húsgagnasýning, vídeó-
verk og sýning útskriftarnema
úr fatahönnunardeild LHÍ,“ segir
Þórey Eva að lokum.
- sm
RFF haldin með öðru sniði í ár
Þórey Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri RFF, segir hátíðina í stöðugri þróun.
MEÐ BREYTTU SNIÐI RFF fer fram
með öðru sniði í ár en fyrri ár. Þórey
Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri RFF,
segir RFF í stöðugri þróun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta var mjög krefjandi en
skemmtilegt verkefni. Vinnan
gekk nokkuð áfallalaust fyrir
sig þó að smíðarnar hafi stund-
um gengið brösuglega. Við gerð-
um þetta á mjög stuttum tíma og
það var mikið unnið á kvöldin,“
segir Elías Marel Þorsteinsson,
nemandi í hátækniverkfræði við
Háskólann í Reykjavík. Hann,
Axel Bender og Ívar Kristinsson
hönnuðu og smíðuðu vélmenni sem
skýtur frauðkúlum í hvern þann
sem klæðist rauðu fyrir áfangann
Mecha tronics 1.
Elías segir vélmennið fyrst og
fremst hannað með það mark-
mið að sýna fram á hvernig nýta
megi tæknina á ýmsa vegu en þó
mætti nota það við eftirlit, svo
eitthvað sé nefnt. Á vefsíðunni
Youtube má finna kynningar-
myndband sem þremenningarn-
ir gerðu og er ætlað að kynna
vélmennið. Í myndbandinu sést
vélmennið, sem strákarnir hafa
nefnt Tommy, fylgja Elíasi eftir
og skjóta á hann frauðkúlum.
„Þetta var alls ekki vont enda er
byssan keypt í leikfangaverslun
og ekki til þess að meiða,“ segir
Elías og hlær.
Hópurinn verður viðstaddur
Háskóladag HR, sem fer fram í
skólanum á morgun. Þar munu
þeir kynna Tommy fyrir gestum
og gangandi á milli klukkan 12 og
16. „Við verðum í rauðum bolum
og hlaupum þarna um eins og vit-
leysingar. Svo ætlum við að leyfa
fólki að prófa að handstýra vél-
menninu og skjóta á okkur og alla
hina sem mæta í rauðu,“ segir
hann að lokum.
- sm
Vélmennið Tommy
skýtur rauðklætt fólk
Elías Marel Þorsteinsson, Axel Bender og Ívar Kristinsson, nemendur við HR,
hönnuðu vélmennið Tommy sem þeir sýna á Háskóladegi HR á morgun.
HANNA VÉLMENNI Ívar Kristinsson, Axel Bender og Elías Marel Þorsteinsson hönnuðu saman vélmennið Tommy. Þremenn-
ingarnir munu leyfa gestum að prófa að stýra vélmenninu í HR á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
„Það er langt síðan tökum lauk
þannig að gjöfin kom svolítið á
óvart, en mér finnst þetta virð-
ingarvert,“ segir Heimir Sverris-
son, skúlptúristi og leikmynda-
smiður, um þakklætisvott sem
leikstjórinn Darren Aronofsky
sendi öllum þeim sem komu að
gerð kvikmyndarinnar Noah.
Pakkinn innihélt Leatherman-
fjölnotaverkfæri, en tólinu svipar
til svissnesks vasahnífs og á því
má finna töng, sög og skæri, svo
fátt eitt sé nefnt. „Þetta er tæki
sem allir kvikmyndagerðarmenn
verða að eiga,“ útskýrir Heimir.
Pakkanum fygldi einnig kort sem
á stóð: „Takk fyrir vel unnin störf
og þrautseigjuna við gerð Noah“
og var undirritað Darren, Scott,
Mary, Ari, Chris og Amy.
Heimir starfaði sem skúlptúr-
isti við gerð Noah, sem var að
hluta til tekin upp hér á landi.
„Skúlptúristi býr til allt sem
ekki er fáanlegt annars staðar,
við búum til allt frá grjóti og
upp í hvað sem er. Leik-
myndasmiður býr
svo til vopn, bíla
eða hús,“ segir
hann að lokum.
- sm
Fékk fj ölnotaverkfæri
frá Darren Aronofsky
Heimir Sverrisson vann við gerð stórmyndarinnar
Noah. Hann fékk óvænta gjöf frá leikstjóranum.
ÞAKKLÆTISVOTTUR
Heimir Sverrisson var á
meðal þeirra sem fengu
þakklætisvott frá leik-
stjóranum Darren
Aronofsky.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Heimkomuball
Heru Bjarkar á Spot
í kvöld