Fréttablaðið - 19.03.2013, Side 12
19. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | ASKÝRING | 12
FRAMTÍÐARSTAÐSETNING FLUGVALLARINS Í REYKJAVÍK
UPPLIFÐU N JA T MA MEÐ HYUNDAI
Hyundai / BL ehf.
Kauptúni 1 – 210 Garðabæ – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES. TAKMARKAÐUR AKSTUR
N R HYUNDAI i20 D SIL
Eyðsla aðeins 3,8 l/100 km
miðað við blandaðan akstur
E
N
N
E
M
M
S
ÍA
/
SSSSS
/ / / /
6
3
8
N
M
5
6
3
8
N
M
5
22
VERÐ: 2.790.000 kr.
Co2 aðeins 99 g/km – Fr tt b lastæðin miðborginni
Nýr Hyundai i20 með 1,1l dísilvél er einn sparneytnasti millistærðarbíll sem völ er á.
Öllum nýjum Hyundai bílum fylgir 5 ára ábyrgð og ótakmarkaður akstur auk árlegra öryggis- og viðhaldsskoðana sem
eru viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Við bjóðum ykkur velkomin í hóp ánægðra Hyundai eigenda.
Hyundai í Kauptúni 1 er opið frá kl. 07.45–18.00 alla virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
KOSTIR GALLAR
➜ Vatnsmýrarflugvöllur
➜ Nálægð við Landspítal-
ann
➜ Nálægð landsbyggðar við
miðborgina og stjórn-
sýslu
➜ 99 prósenta nýting–
verður 98 prósent ef
þriðju flugbraut verður
lokað
➜ Lægri kostnaður við upp-
byggingu
➜ Verðmætt byggingarland
nýtist ekki
➜ Uppbygging og þétting
borgarinnar verður að
mestu í austurhluta
borgarinnar, með aukinni
umferð.
➜ Ónæði og hljóðmengun
fyrir íbúa í nágrenni
KOSTIR GALLAR
➜ Hólmsheiðarflugvöllur
➜ Losar um dýrmætt bygg-
ingarland í Vatnsmýri
➜ Þjóðhagslegur ábati
➜ Sparnaður í samgöngum
fyrir höfuðborgarsvæðið
➜ Engin hljóðmengun
➜ Nær fjöllum og hærra
yfir sjó
➜ 97 prósenta nýting
➜ Lægri meðalhiti, meiri
meðalvindhraði, meiri
úrkoma
➜ Lengri vegalengd að
Landspítala
➜ Lengra í stjórnsýslu og
miðborg
➜ Mikill kostnaður (15
milljarðar samkvæmt
tölum frá 2007)
Reykjavíkurborg og fjármála-
ráðuneytið skrifuðu í síðustu
viku undir samning um kaup
borgarinnar á landi ríkisins í
Skerjafirði. Landið er 112 þús-
und fermetrar og er áætlað að
um 800 íbúðir geti risið þar. Á
þessu landi er nú hluti af þriðju
flugbraut flugvallarins, sem gert
hefur verið ráð fyrir að verði
lokað allt frá árinu 1999. Árið
2005 var þessi áætlun staðfest
af þáverandi samgönguráðherra,
Sturlu Böðvarssyni, og þá-
verandi borgarstjóra, Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur. Þá var
gert ráð fyrir að brautinni yrði
lokað strax það ár. Lokunin
var svo staðfest á nýjan leik af
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og
Kristjáni L. Möller, þá borgar-
stjóra og samgönguráðherra.
Nú vinna borgin og innan-
ríkisráðuneytið að samkomulagi
um það hvenær brautinni
verður lokað. Verðmæti bygg-
ingarréttar á svæðinu er talið
einn til þrír milljarðar króna.
➜ Gert ráð fyrir lokun
einnar brautar
Umræður um framtíðarstaðsetningu flugvallar í
Reykjavík hafa blossað upp, enn á ný, á undanförnum
vikum. Veðurstofa Íslands hefur lokið sex ára veður-
mælingum á Hólmsheiði og ÍSOR hefur gefið það út að
ekki þurfi að hafa vatnsvernd á svæðinu lengur.
Helstu niðurstöður Veðurstofunnar eru þær að nýt-
ingarhlutfall flugvallarins myndi lækka um á bilinu
eitt til tvö prósent. Þó á eftir að kanna ýmislegt, eins
og ókyrrð í lofti, en Hólmsheiðin liggur mun hærra
yfir sjó en Vatnsmýrin.
Samkvæmt núgildandi skipulagi mun flugvöllurinn
fara úr Vatnsmýrinni árið 2024.
Samráðsnefnd samgönguráðuneytisins og Reykja-
víkurborgar skilaði úttekt á framtíðarstaðsetningu
Reykjavíkurflugvallar árið 2007. Í skýrslunni voru
skoðaðir þrír kostir aðrir en þeir að hafa áfram völl í
Vatnsmýrinni; Löngusker, Hólmsheiði og Keflavíkur-
flugvöllur.
Gera má ráð fyrir því að tölurnar sem fram koma í
henni séu talsvert breyttar. Kostnaður við byggingu
flugvallar á Hólmsheiði hefur ekki verið reiknaður á
ný frá því sem var árið 2007, þegar hann var metinn
um fimmtán milljarðar króna. Þá var markaðsverð
Vatnsmýrarinnar í heild metið á 74,5 milljarða króna.
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, bendir
á að þjóðhagslegur ábati hafi einnig verið reiknaður
af flutningi flugvallarins og það var ekki gert út frá
markaðsverði. Þjóðhagslegur ábati var reiknaður
út frá tímasparnaði, sparnaði við aksturskostnað og
fleira, og var niðurstaðan sú að ábatinn yrði tæplega
2,2 milljarðar króna á ári.
thorunn@frettabladid.is
Áfram karpað
um flugvöll