Fréttablaðið - 19.03.2013, Side 30

Fréttablaðið - 19.03.2013, Side 30
19. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22MENNING TÓNLIST ★★ ★★★ Kammermúsíkklúbburinn Verk eftir Mist Þorkelsdóttur, Weber og Beethoven. NORÐURLJÓSASALUR HÖRPU 17. MARS Strengjakvartett er viðkvæm samsetning. Það er ekkert píanó með pedal til að hjálpa strengja- leikurunum að breiða yfir mis- fellur. Hvað þá söngvari. Eingöngu fjögur nakin, brothætt hljóðfæri sem verða helst að hljóma fullkom- lega. Og ekki bara það, þau verða að virka saman eins og eitt hljóð- færi. Allir helstu kammerhóparnir eru síspilandi. Aðeins slík eljusemi skapar virkilega sannfærandi samhljóm. Nú veit ég ekkert um það hversu mikið þau Sigrún Eðvalds dóttir, Zbigniew Dubik, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir æfðu fyrir tónleika Kammermúsíkklúbbsins á sunnu- dagskvöldið. En ég hef á tilfinn- ingunni að það hafi ekki verið nóg. Flutningurinn á strengja- kvartett í F-dúr op. 59 nr. 1 eftir Beethoven var engan veginn full- nægjandi. Fiðluleikur Sigrúnar var lengi framan af sár og „for- seraður“, eins og hún væri að pína tónana út úr fiðlunni. Það var óþægilegt áheyrnar. Hinir hljóðfæraleikararnir spiluðu af meiri mýkt og þokka. Ég hefði þó viljað heyra betur í þeim, sérstaklega í neðra miðsviðinu, víólunni og efri tónum sellósins. Það vantaði eitthvað í heildar- hljóminn. Hann var ekki í jafn- vægi, of grunnur, nánast eins og hljómflutningskerfi með lé legum bassa, en alltof hvössum toppi. Eins og nærri má geta var túlkunin ekki sannfærandi. Strengjakvartettar Beethovens eru margir hverjir ekki aðgengi- legir. Verkið nú er dæmi um það hvernig tónskáldið hristi upp í við- teknum gildum tónlistarheims- ins. Tónlistin er flóknari og viða- meiri en aðrir strengja kvartettar þess tíma. Atburðarásin er marg- brotnari og ef flutningurinn er ekki nægilega vel ígrundaður og fókuseraður er auðvelt fyrir áheyrandann að missa þráðinn. Því miður gerðist það hvað eftir annað hér. Spilamennskan var fyrst og fremst einhver rembingur í aðalfiðluleikaranum sem þreyt- andi var að hlýða á. Meira var varið í verkin þar sem Einar Jóhannesson klarin- ettuleikari bættist í hópinn. Nýr klarinettu kvintett eftir Mist Þor- kelsdóttur var fallegur. Hann ein- kenndist af seiðmagnaðri upp- byggingu, dálítið framandlegum stefjum, en nægilega einfaldri umgjörð til að þau nytu sín til fulls. Kvintettinn var saminn í minningu föður Mistar, Þorkels Sigurbjörns- sonar, sem lést fyrir skemmstu. Klarinettukvintett í B dúr op. 34 eftir Carl Maria von Weber var líka áheyrilegur, en lítið annað. Klarin- ettuleikur Einars var flæðandi og eðlilegur, ákaflega músíkalskur og ljóðrænn. Strengjaleikurinn var líka góður en dálítið litlaus. Útkoman var áferðarfalleg en kom manni einhvern veginn ekk- ert við. Þetta hefði verið allt í lagi sem dinner tónlist – ekkert meira en það. Óneitanlega var það dapur- legur endir á starfsári Kammer- músíkklúbbsins. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Nýtt verk eftir Mist Þorkelsdóttur var fallegt, kvintett eftir Weber var áheyrilegur en rislítill og Beethoven var ekki góður. Leiðinlegur Beethoven „Tónskáldið hefur alltaf setið fyrir en þegar það gefur leyfi þá fær málarinn aðeins komast að,“ segir Hafliði Hallgrímsson tónskáld, sem opnaði nýlega listsýningu í Studio Stafni. Hún nefnist Litróf og hljómhvörf og er afrakstur hugmyndavinnu Hafliða síðustu fjögur ár, meðal annars í einka- skóla Michaels Chaitow í Skot- landi. Hann kveðst hafa sótt tíma í málaralist jafnt og þétt frá unga aldri, bæði hjá stofnunum og í einka tímum. „Ég var svo mikill kjáni þegar ég kom til borgarinnar frá Akureyri, þá 17 ára, að ég var ekki fyrr búinn að innrita mig í tónlistarskóla og borga fyrsta misserið en ég gekk beint upp í Myndlistarskóla og vildi innrita mig þar líka. Ég var viss um að ég hefði tíma fyrir hvort tveggja. Skólastjóri Myndlistarskólans, Kurt Zier, tók mig heldur betur á beinið. Sagði að ein lífstíð mundi ekki nægja fyrir músíkina. Ég fór að ráði hans og hafði mál verkið bara sem hliðargrein. En það hefur fært mér mikla ánægju, það er ekki hægt að semja tónlist allan daginn.“ Nýlega flutti Hafliði frá Skot- landi til Bath í Englandi og kveðst þá hafa keypt sér lítið málara- stúdíó í garðinn. „Stúdíóið er örlítið og kemur í veg fyrir að ég máli stórar myndir, það skapar mér ákveðinn ramma.“ Hafliði segir í raun stórhættu- legt að vera að fást við tvær list- greinar. „En það er mikil regla á þessu hjá mér,“ fullyrðir hann. „Ég er nú búinn að semja 100 tónverk svo ég get aðeins farið að hægja ferðina og leyfa öðru að komast að. Svo er annar flötur á þessu. Tekjur fyrir þá tegund tónlistar sem ég fæst við eru ekki miklar og þarna er smá von um að fá smá aukapening með því að selja eina og eina mynd.“ segir hann. „Það er nýjung hjá mér að gera tölvu- myndir á flötu, litlu tölvuna, hvað er hún nú kölluð? Ipad er það ekki? Sonur minn gaf mér hana. Ég hef verið að gera hraðar skissur í henni sem eru til sýnis í rekka og ef einhver vill panta eftir þeim þá prenta ég þær út.“ Þetta er ellefta sýning Hafliða á lífsleiðinni. Hún er opin alla daga nema mánudaga. gun@frettabladid.is Tónskáldið og listmálarinn takast á Litróf og hljómhvörf nefnist myndlistarsýning Hafl iða Hallgrímssonar tónskálds í Studio Stafni, Ingólfsstræti 6. Þar sýnir hann meðal annars skissur sem hann hefur gert með Ipad og ef einhver vill panta eft ir þeim þá prentar hann þær út. EIN MYNDA HAFLIÐA Án titils– akrýl á plötu. LISTAMAÐURINN Garðstúdíó Hafliða er örlítið og kemur í veg fyrir að hann máli stórar myndir, að eigin sögn. Það skapar honum ákveðinn ramma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NIÐUR BREKKU FER Á R N A S Y N IR 30-50% 30% af skíðum, skíðabúnaði, brettum og brettabúnaði af skíða- og brettafatnaði Skíði og bretti í glæsibæ – Bretti í kringlunni Á R N A S Y N IR GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.