Fréttablaðið - 19.03.2013, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 19. mars 2013 | MENNING | 25
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Nýlega hóf störf hjá
Táp ehf. sjúkraþjálfun,
Birna Hrund Björnsdóttir
löggiltur sjúkraþjálfari.
Við bjóðum hana
velkomna til starfa.
Birna Hrund
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist verður spiluð hjá
Félagi eldri borgara í Reykjavík,
Stangarhyl 4.
Upplestur
18.00 Bjarni Benediktsson les 44.
Passíusálminn í Grafarvogskirkju í til-
efni föstunnar.
Kvikmyndir
16.00 Konfúsíusarstofnunin Norður-
ljós sýnir kvikmyndina Matur drykkur,
maður kona eftir Óskarsverðlauna-
hafann Ang Lee. Myndin er sýnd í stofu
101 í Odda HÍ, allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.
Tónlist
21.00 Skúli mennski og Leó Snær
syngja og leika á Café Rosenberg.
Fyrirlestrar
12.00 Þór Magnússon, fyrrverandi
þjóðminjavörður, fjallar um íslenska
gullsmiði í Kaupmannahöfn á fyrirlestri
í Þjóðminjasafninu. Fyrirlesturinn er
ókeypis og öllum opinn.
12.00 Fyrirlestur um umhleypinga og
fjöll verður haldinn í M101 í Sólborg v/
Norðurslóð, Háskólanum á Akureyri.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
„Það er aldrei neitt að gerast í Reykjavík
yfir páskana svo ég sá þarna möguleika á að
keyra eitthvað skemmtilegt í gang,“ segir
Davíð Lúther Sigurðsson, tónleikahaldari
og annar eiganda viðburðarfyrirtækisins
Silent.
Davíð Lúther stendur fyrir tónleikunum
Páskagleði 2013 þar sem fram koma Ásgeir
Trausti, Sísí Ey, Þórunn Antonía, DJ Mar-
geir og Daníel Ágúst. „Þetta eru allir mínir
uppáhaldsflytjendur þessa dagana. Ég
ákvað að búa bara til tónleika sem ég myndi
sjálfur vilja fara á og þetta var útkoman.
Þessi tímasetning hentaði líka ótrúlega
vel upp á alla listamennina svo það er bara
frábært. Ásgeir Trausti er til dæmis úti í
Bandaríkjunum núna en kemur heim yfir
páskana og fer svo aftur út,“ segir hann.
Páskagleðin fer fram í Listasafninu við
Tryggvagötu daginn fyrir páskadag, 30.
mars. „Þetta er haldið í tilefni páskanna en
við ætlum samt ekki að vera með páskaunga
hlaupandi um allt eða neitt svoleiðis, þó að
það sé vissulega skemmtileg hugmynd,“
segir hann og hlær. „Viðtökurnar hafa verið
svo svakalega góðar að það er greinilegt að
á þessu var þörf. Mér sýnist á öllu að þetta
gæti vel orðið árlegt héðan af,“ bætir hann
við.
- trs
Hóaði saman sínum uppáhaldsfl ytjendum
Tónleikahaldarinn Davíð Lúther Sigurðsson hleypir fj öri í páskahátíðina með tónleikum.
Í UPPÁHALDI Ásgeir Trausti
og Þórun n Antonía eru á
meðal þeirra sem koma
fram á Páskagleðinni.