Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 1
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, hefur nú hitt for- menn allra flokka sem náðu manni inn á þing. Hann er þó þögull sem gröfin um það við hvaða flokk, eða flokka, hann hyggst hefja form- legar stjórnar- myndunar- viðræður. Líklegt er að hann tilkynni það í dag. Bjarni Benediktsson, for maður Sjálfstæðisflokksins, var síðastur formannanna til að ganga á fund Sigmundar. Guðni Th. Jóhannes- son sagnfræðingur segir ljóst að Sigmundur Davíð ætli að láta stjórnar myndunarviðræður snúast um það hve langt menn séu tilbúnir að koma til móts við Framsóknar flokkinn. - kóp / sjá síðu 4 FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22 GALLIANO MÓTMÆLTTil stendur að John Galliano kenni þriggja daga mast er class- námskeið við Parsons-listaháskólann í New York. Nú gengur undirskriftalisti á netinu þar sem þessu er mótmælt í ljósi þess að Galliano lét niðrandi ummæli falla um gyðinga, en fyrir þau var hann dæmdur til fjársektar. S teinunn Edda Steingrímsdóttir keypti pallíettu-blaser í verslCo keðjum Þar er þ ð POPPAR UPP MEÐ PALLÍETTUM SVART Í GRUNNINN Steinunn Edda Steingrímsdóttir, förðunarfræðingur og verslunarstjóri í Make Up Store, er alltaf í svörtu í vinnunni. Í frítímanum finnst henni því gaman að klæðast litum og er veik fyrir glimmeri og pallíettum. Teg 301048 - létt fylltur í 70-85B, 75-90C á kr. 5.800,- boxer buxur í stíl á kr. 1.995,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Laugardaga frá kl. 10-14 NÝKOMINN AFTUR ! www.visir.is Sími: 512 5000 | Fimmtudagur 2. maí 2013 | 19. tölublað | 9. árgangur F Y R S TA F L O K K S Þ JÓNUSTA Benda ferðalöngum á Amivox Ferðavefurinn HomeExchange.com bendir við-skiptavinum sínum sérstaklega á að nota þjónustu íslenska sprotafyrirtækisins Amivox til að draga úr kostnaði sínum við símanotkun í útlöndum. Eric Figueras Torras, framkvæmdastjóri Amivox, fagn-ar samstarfinu við HomeExchange og kveður það auka til muna sýnileika fyrirtækisins utan land-steinanna. Um sé að ræða viðbót við þjónustu þar sem fólk geti náð miklum sparnaði í símhringing-um milli landa eða þegar ferðast er með farsíma til útlanda. Viðskiptavinir Amivox eru nú um 40 þúsund talsins, en fyrirtækið hefur fengið styrki frá bæði Impru og Tækniþróunarsjóði. - óká Starfsemi Icelandair Group óx mikið á fyrsta ársfjórðungi Icelandair Group tapaði 18 3 illjó Noma velt úr fyrsta sætinu Norræna veitingastaðnum Noma í Kaupmanna-höfn, sem fjöldi Íslendinga hefur snætt á síðustu ár, hefur verið velt úr fyrsta sætinu á listanum yfir 50 bestu veitingahús heims. Breska tímarit-ið Restaurant gefur út listann, sem byggir á mati alþjóðlegs hóps kokka, veitingahúsaeigenda og matar gagnrýnenda. Í 2013-útgáfu listans er Noma, sem hefur verið í fyrsta sæti síðustu þrjú ár, í öðru sæti en í fyrsta sæti er El Celler de Can Roca í Girona í K talóníu á Spáni. - mþl 2 SÉRBLÖÐ Markaður | Fólk Fyrirferð á snjóhengju Uppgjör innlánsstofnana í slitameð- ferð má ekki raska fjármálastöðug- leika. MARKAÐURINN Sími: 512 5000 2. maí 2013 102. tölublað 13. árgangur Engin hlýindi fram undan Eftir einn kaldasta apríl í manna minnum treysta veðurfræðingar sér ekki til að lofa neinu um hlýindi. 6 Læra af fálkamerkingum Nýting nýrra litmerkja skilar merkilegum niðurstöðum um fálka hér á landi. Hægt er að greina fuglana lifandi. 8 400 látnir Minnst 400 manns hafa fundist látnir í fataverksmiðjunni sem hrundi til grunna í Dhaka í Bangladess. 10 Hver vill koma og skoða mold og drullu? Hörður Jónasson, bílstjóri og leið- sögumaður SKOÐUN Við þurfum á jörðinni að halda en hún ekki okkur, skrifar Sóley Kaldal. 25 MENNING Reggísveitin Hjálmar tekur upp nýja plötu með Erlend Öye úr Kings of Convenience. 62 SPORT Teitur Örlygsson verður áfram hjá Stjörnunni en hættir með liðið eftir næsta vetur. 56 VIÐSKIPTI Eftir skráningu Trygginga miðstöðvarinnar (TM) á aðallista Kauphallar Íslands í næstu viku gegnir kona starfi stjórnarformanns í tveimur fyrir- tækja Kauphallarinnar. Elín Jóns- dóttir er stjórnarformaður TM og einnig Regins, sem þegar er skráð í Kauphöll. Í september taka gildi lög sem kveða á um að hlutur hvors kyns í stjórnum fyrirtækja þar sem starfs- menn eru fimmtíu eða fleiri megi ekki fara undir 40%. Eftir skráningu TM verður hlutur kvenna í stjórnum íslenskra fyrir- tækja Kauphallarinnar rétt rúm 46 prósent á móti tæplega 54 pró- senta hlut karla. Fyrir fimm árum voru konur 10% stjórnarmanna. - óká / sjá Markaðinn Viðsnúningur frá 2008: Fleiri konur sitja nú í stjórnum ELÍN JÓNSDÓTTIR SIGMUNDUR D. GUNNLAUGSSON ÞJÓÐGARÐAR Holskefla ferða- manna hefur verið á Þingvöllum það sem af er ári með tilheyrandi álagi. Hörður Jónasson, bílstjóri og leiðsögumaður, segir ástandið sláandi. „Hver vill koma og skoða mold og drullu? Það tekur lyng og mosa hálfa öld að jafna sig ef það þá yfir höfuð gengur,“ segir Hörður Jónasson, bílstjóri og leiðsögumaður, um ástandið á Þingvöllum. Ólafur Örn Hara ldsson þjóðgarðs vörður tekur undir með Herði. „Álagið á Þingvelli, vatn- ið og þinghelgina er ört vaxandi,“ segir Ólafur. „Þetta er skugga- hliðin á átakinu Ísland allt árið; þessi gríðarlegi fjöldi ferða- manna sem kemur og gengur um landið eins og á sumardegi.“ Að sögn Ólafs verða settar allt að sextíu milljónir króna í ýmsar úrbætur, meðal annars í palla við Öxarárfoss og við Drekking- arhyl, auk þess sem settir verða upp kaðlar og girðingar. - gar / sjá síðu 16 Bolungarvík 3° SV 9 Akureyri 1° SV 5 Egilsstaðir 0° SV 3 Kirkjubæjarkl. 2° SV 2 Reykjavík 2° SV 7 HLÝNAR Í dag verða suðvestan 8-13 m/s og þykknar upp V-til en annars hægari og bjart. Hlýnar smám saman í veðri, einkum NV-til. 4 Á KAFI Í SNJÓ Snjódýptin við bæinn Brúnastaði í Fljótum er með ólíkindum og þurftu Kristinn Knörr og Ólafur Ísar Jóhannessynir að grafa sig niður á rúllustæðuna. Veðurstofa Íslands hefur gefið út að veturinn í ár sé sá kaldasti á Norðurlandi frá því árið 1990. Sjá síðu 2 MYND/JÓHANNES RÍKHARÐSSON LÖGREGLUMÁL Bílstjóri hjá Ferða- þjónustu fatlaðra í Kópavogi braut fyrr á þessu ári ítrekað á þroskaskertri konu sem ferðaðist með fyrirtækinu. Konan tilkynnti áreitnina á vinnustað sínum. Málið hefur ekki verið kært til lögreglu. Í bréfi sem sent var frá vinnu- stað konunnar til yfirmanns Ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi segir að maðurinn hafi ítrekað haldið utan um hana, sagst elska hana og kysst hana á munninn. Sú háttsemi hafi varað í einhverjar vikur. Þá hafi hann sagst hlakka til að hitta hana aftur til að fá annan koss þegar skipt var um bílstjóra í eitt skipti. Systir konunnar segir bílstjórann hafa mútað henni með kókflöskum til að hún segði ekki frá, hafa sagt henni að hann ætti börn og hún mætti ekki segja frá samskiptum þeirra undir nokkrum kring- umstæðum. Yfirmaður Ferða- þjónustu fatlaðra, Einar Valsson, neit- aði að tjá sig um málið við Frétta- blaðið en yfirmaður konunnar segir hann hafa ætlað að ræða við umræddan bílstjóra þegar bréfið var sent fyrir tveimur mánuð- um. Greint var frá því í blaðinu í gær að bílstjóri á vegum fyrirtækis- ins hefði verið kærður fyrir nauðgun um miðjan mars og honum þá sagt upp störfum. Ekki fæst uppgefið hvort um sama mann er að ræða. - sv Fleiri dæmi um kynferðisbrot hjá Ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi: Bílstjóri braut ítrekað á farþega LÖGREGLUMÁL Fatlaðar konur eiga frekar á hættu að verða fyrir kyn-ferðisofbeldi en aðrar konur. Nýleg sænsk rannsókn sýnir að þrisvar sinnum líklegra sé að þroska-heftar konur ver ð i f y r i r slíkum brotum, en engar rann-sók n i r h a fa verið gerðar á slíku hér lendis þótt vísbend-ingar bendi í svipaða átt. Lögreglan á höfuðborgar-svæðinu er langt á veg komin með að rannsaka nauðgun á fatlaðri konu í Kópavogi um miðjan mars síðastliðinn. Bílstjóri konunnar, maður á fimmtugsaldri, var kærður fyrir brotið og hefur hann verið yfirheyrður. Nauðgunin átti sér stað í bíl á vegum Ferða-þjónustu fatlaðra í Kópavogi og hefur maðurinn verið leystur frá störfum. Hann hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu en öllum starfsmönnum er skylt að framvísa sakavottorði til Kópa-vogsbæjar áður en þeir eru ráðnir. Ekki er hægt að fá upp-gefið hvort maðurinn hafi gengist við glæpnum. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lög-reglunnar, segir manninum hafa verið sleppt að lokinni skýrslu-töku. Hann segir að brot sem þessi séu ekki algeng en þau komi vissulega fyrir eins og hjá öðrum. Spurður hvort hann telji líklegt að maðurinn verði ákærður segir hann það vera alfarið í höndum ákæru valdsins.Gunnar Torfason, yfirmaður Ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi, segir þetta vera í fyrsta sinn sem svona mál komi upp innan stofn-unarinnar. „Það verður klárlega farið yfir málin,“ segir hann. „Það er búið að ræða þetta og við erum að skoða þetta.“ Hann vildi ekki tjá sig um málið sem slíkt. „Maðurinn var boðaður til skýrslutöku og búið. Ég veit ekkert um aðstæður eða neitt slíkt. Ég veit bara ekkert um þetta mál,“ segir hann. Guðlaug Ósk Gísladóttir, yfir-maður þjónustudeildar fatlaðra í Kópavogi, vildi ekki tjá sig um málið og vísaði í félagsmálastjóra. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar. sunna@frettabladid.is Líklegra að brotið sé á fötluðum konumFatlað fólk er berskjaldaðra gegn kynferðisofbeldi en annað fólk. Bílstjóri fatlaðrar konu í Kópavogi grunaður um nauðgun. Veit ekkert um málið, segir fyrrverandi yfirmaður mannsins. Yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra neitar að tjá sig. KÆRÐI NAUÐGUN Í MARS Manninum sem var kærður fyrir að hafa nauðgað fatlaðri konu í Kópavogi var sagt upp störfum hjá Ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi eftir að málið komst upp. FRIÐRIK SMÁRI BJÖRGVINSSON „Erlendar konur, konur með fötlun, konur með alvar- legar geðraskanir og eldri konur eru taldar eiga frekar á hættu að verða þolendur kynbundins ofbeldis en aðrar konur.“ Svo segir í aðgerðaráætlun sem ríkis- stjórnin samþykkti í september árið 2006 vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis og gildir til ársins 2011. Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunar- fræðum við Háskóla Íslands, segir fatlað fólk berskjald- aðra en þá sem heilbrigðir eru gagnvart margs konar ofbeldi. Hún segir þau aðgreindu úrræði sem séu til staðar fyrir fatlað fólk vera viss hættusvæði sem ofbeldismenn geti leitað í. „Þessi umræða hefur ekki farið hátt,“ segir hún. „Þegar starfsmaður beitir ofbeldi er það auðvitað áfall fyrir viðkomandi stofnun. Oft er við- komandi þá bara látinn fara í rólegheitum, málið er ekki kært og hann fer þá bara að vinna á næstu stofnun fyrir fatlað fólk. Þetta er ferli sem hefur verið skilgreint í alþjóðlegum rannsóknum.“ ➜ Ríkisstjórnin vildi rannsókn árið 2006 Árið 2008 var Sveinbjörn R. Auðunsson sakfelldur fyrir að hafa nauðgað fatlaðri konu í bíl sínum. Í dómsorðinu segir að hann hafi notfært sér ástand konunnar og að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum and- legra annmarka og líkamlegrar fötlunar. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi, en konan sem hann nauðgaði var mikið fötluð og var hann með hana í liðveislu þegar hann braut gegn henni. Hún var þá 17 ára gömul. ➜ Nauðgaði 17 ára skjólstæðing sínum o i a . - þj gDrottningin Maxima stendur við hlið hans. NORDICPHOTOS/AFP æmist EES-samningnum. Samið hefur verið við sex fyrirtæki hér á landi á grundvelli kerfisins. - kóp Gestafjöldinn traðkar Þingvelli ofan í svaðið Þjóðgarðsvörður segir holskeflu ferðamanna það sem af er ári skilja Þingvelli eftir sem flakandi sár. Verja eigi allt að 60 milljónum króna til að byggja stíga, palla og girðingar til að vernda viðkvæman gróður frá því að vera traðkaður niður í svaðið. Búist við ákvörðun í dag: Sigmundur metur stöðuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.