Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 48
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður og
Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður
Hin
GUÐRÚN
HÖGNADÓTTIR
hliðin
Til lukku með nýja ábyrgð á okkar
sameiginlega vinnustað: Íslandi ehf.
Mig langar að fylgja ykkur úr hlaði
með nokkrum hvatningarorðum í
þeirri góðu trú að næstu fjögur ár
verði ár farsældar og festu, tímabil
sem erlendir þjóðarleiðtogar geti tekið
til fyrirmyndar í sinni endurreisn. Sem
forgöngumenn veit ég að þið þekkið
mikilvægi framtíðarsýnar, kjarks og
þrautseigju í starfi ykkar. Og sem leik-
menn veit ég að hraði breytinga og
kröfur samtímans snerta ykkur öll. Því
fylgja hér á eftir nokkur heilræði.
Forgangsraðið. Þeir leiðtogar
sem setja 2 til 3 mál í forgang klára
almennt 2 til 3 mál. Þeir sem eru
með 5 til 7 markmið koma kannski
einu máli næstum því í höfn. Því fleiri
markmið, þeim mun minni líkur á
árangri. Hafið kjarkinn og agann til
að einblína á fá en afgerandi mál í
einu. Og klárið þau. Heimilin. Höftin.
Hengjan. Annað kemur í kjölfar slíkra
góðra verka.
Hugsið. Gagnrýnin hugsun er for-
senda framfara. Leitið þekkingar og
ráða út fyrir ykkar þrönga hring. Mátið
ákvarðanir ykkar á aðra en spegil-
myndir ykkar sjálfra.
Hlustið. Stjórnmálaleiðtogar fortíðar
fengu þjálfun í ræðumennsku. Áhrifa-
menn framtíðar fá þjálfun í hlustun.
Sönn forysta byggir á virðingu fyrir
fólki. Skilningi á ólíkum skoðunum.
Guð gaf okkur tvö eyru og einn munn.
Talið minna. Hlustið meira. Látið
verkin tala. Eins og segir í Háva-
málum: Svo nýsist fróðra hver fyrir.
Hreinsið til. Kveðjið gamlar erjur og
syndir. Biðjist afsökunar og fyrirgefið,
ef þess þarf. Frelsið ykkur frá hags-
munum forvera ykkar – pólitískum,
landfræðilegum og fjárhagslegum.
Málið tæra mynd af því samfélagi sem
við viljum færa barnabörnum okkar
og leyfið ekki frændhygli, græðgi eða
þröngsýni að menga þá mynd.
Lærið. Af mistökum ykkar. Af mis-
tökum annarra. Gerið upp hug ykkar
um hvert ykkar framlag til framtíðar-
landsins verður. Og lærum saman á
leiðinni.
Virkið okkur. Þið eigið 322.930 sam-
starfsmenn sem eru tilbúnir að bretta
upp ermar í þágu þjóðar. Haldið
samtalinu gangandi á veraldarvefnum,
á kaffihúsunum, í háskólunum. Leyfið
okkur að taka með ykkur ábyrgð á
stóru málunum með könnunum og
þjóðaratkvæðagreiðslu. Finnið nýtt
fólk til mikilvægra verka. Það leynist
snillingur á hverju götuhorni.
Nærist. Þetta er harður heimur.
Gleymið ekki lýsinu. Svefninum.
Grænkálinu. Góðum bókum. Lélegum
bíómyndum. Göngutúrum. Mörgum
stundum í faðmi fjölskyldunnar.
Tengið ykkur reglulega við af hverju
þið tókuð að ykkur þetta verkefni. Og
virkið þá orku til góðra verka.
Ég óska ykkur velfarnaðar á áfram-
haldandi sameiginlegri vegferð okkar
allra!
Kveðja, Guðrún.
Elsku nýju
þjóðarleiðtogar
Kr. 89.900,-
SHARP
SJÓÐSVÉL
XE-A307
Kr. 54.900,-
SHARP SJÓÐSVÉL
XE-A113B
vöruflokkar32
t að 200 PLU númerAll
frænn innri strimill 3000 Ra
álfvirk dagsetning og tímiSj
taprentunHi
enskur strimillÍsl
frænn innri strimillRa
ög auðveld í forritunMj
99 vöruflokkar.
Allt að 10,000 PLU númer.
SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC
Sjálfvirk dagsetning og tími
Hitaprentun
Íslenskur strimill
Mjög auðveld í forritun
Kr. 69.900,-
99 vöruflokkar
Allt að 2000 PLU númer
Rafrænn innri strimill 9000 línur
Stór LCD skjár
SD kortarauf – hægt að
flytja gögn yfir á PC
Sjálfvirk dagsetning og tími
Hitaprentun
Íslenskur strimill
SHARP SJÓÐSVÉL
XE-A207B
línur