Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 4
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Ég er allt of mikill græn-
ingi í þessu pólitíska leikhúsi til
að meta hvort þetta hafi verið
sett á svið. Ég upplifði þetta
ekki þannig, mér fannst þetta
bara vera einlægar
samræður.
Birgitta
Jónsdóttir,
kapteinn Pírata
Staðan er nokkuð opin.
Þetta eru meiri þreifingar en
ég sá fyrir. Það er margt sem
þarf að skýrast betur áður en
hægt er að segja hvað er líklegt
stjórnarmynstur.
Guðmundur Steingrímsson,
formaður Bjartrar framtíðar
DANMÖRK Baulað var á Helle
Thorning-Schmidt, forsætis-
ráðherra Danmerkur, þegar hún
hugðist halda ræðu í Árósum í
gær, í tilefni af
1. maí.
Að minnsta
kosti einn maður
var handtekinn
fyrir að sprauta
vatni á forsætis-
ráðherra, að því
er fram kemur
á vef Jyllands-
Posten.
Svo mikil varð truflunin að for-
sætisráðherrann gat varla komið
upp orði. Hún hóf þó upp raust
sína á endanum og hélt ræðuna.
Hún endaði hana á því að óska
þeim sem væru komnir til að
hlusta og eiga rökræður gleðilegs
verkalýðsdags. - jhh
Mótmæli í Danmörku:
Baulað á for-
sætisráðherra
HELLE THORN-
ING-SCHMIDT
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
hvetur stjórnvöld til að kanna
mögulegan ávinning þess að flytja
undir sama þak nokkrar stofnanir
sem sinna þjónustu við fólk með
skerta færni.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
er bent á að margir fatlaðir þurfi
á að halda þjónustu fleiri en einn-
ar af þeim stofnunum sem sinna
rannsóknum, greiningu og marg-
víslegri þjónustu við fólk sem
hefur skerta færni af einhverju
tagi.
Með því að flytja þær undir
sama þak mætti bæta aðgengi
að þjónustu þeirra og auka hag-
kvæmni í rekstri. Stofnanirnar
eru nú dreifðar á höfuðborgar-
svæðinu. - óká
Tilfærsla stofnana skoðuð:
Bætt aðgengi
og hagkvæmni
SAGA Beinafundur við Jamestown í Virginíu í
Bandaríkjunum er talinn sönnun þess að breskir
landnemar neyddust til að leggja sér mannakjöt
til munns í mikilli hungursneyð veturinn 1609
til 1610.
Fréttastofa BBC greinir frá því að vísinda-
menn við Smithsonian-safnið í Washington DC
telji nær útilokað að för í beinagrind stúlku-
barns séu tilkomin með öðrum hætti en þeim
þegar lík er hlutað í sundur og kjöt þess fjar-
lægt.
Vísindamennirnir telja að stúlkan hafi brauð-
fætt hungraða landnema í Jamestown í mik-
illi hungursneyð sem þar var í heilan vetur,
en tugir, jafnvel hundruð manna, létust þá úr
hungri. Ekki er þó vitað hvernig dauða stúlk-
unnar bar að en bein hennar fundust við forn-
leifauppgröft á staðnum í fyrra. Sannað er hins
vegar að stúlkan var frá Bretlandseyjum.
Veturinn sem um ræðir, frá 1609 til 1610, er
alræmdur í bandarískri sögu. Oft er vitnað til
hans sem hluta eins versta tíma í landnáms-
sögu Norður-Ameríku. Heimildir greina frá því
að glorsoltið fólkið neytti hesta, hunda, katta,
rottna og snáka áður en gripið var til örþrifa-
ráða til að komast af. Lengi hefur því verið hald-
ið fram að íbúar Jamestown hafi lagt í mannát,
en hversu víðtæk þessi iðja var er ósannað. - shá
Beinafundur í Bandaríkjunum talinn sönnun þess að landnemar borðuðu lík samlanda sinna:
Lögðu sér lík til munns í hungursneyð
MANNÁT
Aðeins 60
af um 300
voru á lífi í
Jamestown
þegar
hjálp barst.
Myndin
tengist
fréttinni
ekki beint.
FRÉTTASKÝRING
Hver er staðan í stjórnarmyndunar-
viðræðum?
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknaflokksins,
hefur nú fundað með formönnum
allra flokka sem náðu manni á
þing. Hann hafði gefið það út að
það væri forsenda þess að ákveða
hverjum hann byði til formlegra
stjórnarmyndunarviðræðna.
Sigmundur vildi ekki ræða við
fjölmiðla í gær en mun, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins, gefa út
yfirlýsingu í dag um næstu skref.
Heimildarmenn blaðsins telja ýmist
að um sé að ræða einlæga leið til
að kanna alla kosti eða að á ferð sé
leikur til að sýna hver valdið hefur í
væntanlegum viðræðum við Bjarna
Benediktsson, formann Sjálfstæðis-
flokksins. Flestir eru þó sammála
um að enn séu mestar líkur á við-
ræðum við Sjálfstæðisflokkinn.
Guðni Th. Jóhannesson sagn-
fræðingur segir að í sögulegu
ljósi séu aðeins nokkrar sekúnd-
ur liðnar af stjórnarmyndunar-
ferlinu. Hann hvetur fólk til að
slappa af, en oft og tíðum sé eins
og krafan um nýja frétt þrisvar
á dag keyri fréttir áfram af við-
ræðunum.
Hvað eðli þeirra sjálfra varð-
ar segir hann að ljóst sé að Sig-
mundur Davíð stilli sér upp sem
sá sem ráði ferðinni.
„Hann ætlar að láta stjórnar-
myndunarviðræðurnar snúast
um það, að minnsta kosti á meðan
hann hefur umboðið, hversu langt
aðrir eru tilbúnir að koma til móts
við Framsóknarflokkinn.
Það sem um skal rætt er
kosninga stefnuskrá Framsóknar-
flokksins, það er ekkert verið að
mætast á miðri leið. Hann stýrir
því hverjir hoppa upp í með
honum.“
kolbeinn@frettabladid.is
Einlægni eða lævís leikur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur fundað með formönnum allra flokka. Hann verst svara um næstu
skref. Tvennum sögum fer af því hvort hann sé í einlægni að leita hófanna eða aðeins að styrkja stöðu sína.
Þögull sem gröfin
Sigmundur Davíð
Gunnlaugs son, formaður
Framsóknar flokksins, lætur
ekki ná í sig.
Við erum reiðubúin að
setjast niður með form-
legum hætti og skoða mögu-
leikana á stjórnarsamstarfi
til vinstri.
Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri grænna
Ég hitti Sigmund í gær
og við áttum ágætis tal
saman. Hann er náttúru-
lega bara með
umboðið og hann
ákveður næstu
skref.
Árni Páll Árnason,
formaður Samfylk-
ingarinnarEkki náð
ist í
Bjarna
Benedikt
s son.
VIÐ ÞEKKJUM
TILFINNINGUNA
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
208,1233
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,71 117,27
180,81 181,69
152,48 153,34
20,447 20,567
20,017 20,135
17,830 17,934
1,197 1,204
176,02 177,06
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
30.04.2013
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Austan 10-18 m/s.
ÞYKKNAR UPP Bætir smám saman í úrkomu á morgun með heldur hlýnandi veðri
um allt land. Lítur út fyrir slyddu og rigninu og stífa austanátt víðast hvar á laugardag
og síðan norðanátt með kólnandi veðri á sunnudag.
3°
9
m/s
2°
9
m/s
2°
7
m/s
3°
6
m/s
Á morgun
8-15 m/s, hvassast V-til.
Gildistími korta er um hádegi
6°
3°
4°
4°
3°
Alicante
Basel
Berlín
21°
20°
19°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
12°
19°
19°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
10°
10°
22°
London
Mallorca
New York
15°
20°
20°
Orlando
Ósló
París
26°
12°
16°
San Francisco
Stokkhólmur
25°
12°
2°
2
m/s
2°
5
m/s
0°
3
m/s
2°
5
m/s
1°
5
m/s
1°
8
m/s
-3
7
m/s
7°
6°
6°
5°
6°