Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 60
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
Vinsælasti bíll heims á enn betra verði
FORD FOCUS TREND EDITION
Ford Focus, söluhæsti bíll í heimi árið 2012, er nú fáanlegur í nýrri útfærslu.
16“ álfelgur eru undir bílnum og sérstakt Trend Edition áklæði á sætum.
Loftkæling, öflug aksturstölva, regnskynjari í framrúðu og blátannarbúnaður
eru einnig til staðar. Til viðbótar hefur verið hugað að fjölmörgum praktískum
atriðum, svo sem sjálfvirkri dimmingu á baksýnisspegli og sniðugri hurðavörn.
Komdu í Brimborg í dag og kynntu þér vinsælasta bíl heims árið 2012.
FORD FOCUS TREND EDITION 5 DYRA FRÁ 3.390.000 KR.
FORD FOCUS TREND EDITION STATION FRÁ 3.540.000 KR.
FRÁ
FORD FOCUS
TREND EDITION
27.447KR./MÁN
Ford Focus Trend Edition 5 dyra, 1,0 EcoBoost bensín 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,0 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 114 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90
mín. í senn. Miðað er við grænan óverðtryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 1.750.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,60%.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
ford.is
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2013
Námskeið
20.00 Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður og Jóhanna
Þormar garðyrkjufræðingur fjalla um helstu aðferðir og
vandamál sem upp geta komið við ræktun lauk- og hnýðis-
plantna upp af fræi, en í Grasagarðinum í Laugardal hefur
náðst góður árangur í slíkri ræktun.
Tónlist
22.00 Sara Blandon, Eðvarð Lárusson og Magnús Einarsson
halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Fyrirlestrar
12.00 Maria de Fátima Marinho, prófessor í portúgölskum
bókmenntum Háskólans í Portó í Portúgal og Isabel Pires de
Lima, prófessor við sama háskóla, halda fyrirlestra um portú-
galskar samtímabókmenntir í fyrirlestrasal 132 í Öskju.
Myndlist
10.00 Sýning Rósu Sigrúnar Jónsdóttur Andlit Esju opnar
í SÍM salnum, sal Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Sýningin stendur út maímánuð.
12.15 Í tengslum við sýninguna Flæði hefur Listasafn
Reykjavíkur kallað eftir aðstoð frá hópi fólks að velja sér
uppáhaldsverkið sitt á sýningunni. Á Kjarvalsstöðum í dag
segir Toshiki Toma, prestur innflytjenda, frá vali sínu á verki
vikunnar í samtali við gesti safnsins.
17.00 Sjónvarpsserían Vinkonur eftir Dagrúnu Aðalsteins-
dóttur verður sýnd í síðasta sinn á Listasafni Reykjavíkur
(Tryggvagötu 17) kl. 17.00 og 18.00 með íslenskum texta,
17.30 og 18.30 með enskum texta.
17.00 Sýningin Teiknað opnuð í dag í Norræna húsinu. Á
henni sýnir hópur tólf listamanna frá Svíþjóð teikningar.
Sýningin stendur til 26. maí.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is
og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is.
„Hugmyndin var að ég væri að gera það
sem mér þykir skemmtilegt, að keyra bíl.
Og Davíð það sem honum þykir skemmti-
legt, að spila,“ segir Ilmur Stefáns dóttir
myndlistarkona, en hún og Davíð Þór
Jónsson píanóleikari leiða saman hesta
sína á Listahátíð í Reykjavík með tón-
leikum sem haldnir verða í gömlum
strætisvagni, eða flygilrútu eins
og ökutækið er nefnt í dagskrá
Listahátíðar. Hugmyndin á bak
við þessa óvenjulegu tónleika er
gömul, segir Ilmur. „Þetta er
í rauninni framhald af þeim
verkefnum mínum sem hafa
snúist um að stökkbreyta hlut-
um í hljóðfæri, hárþurrku í
blokkflautu, strauborði í selló
og svo framvegis. Ég fékk svo
þessa hugmynd fyrir löngu að
leyfa Volkswagen-bjöllu og flygli
að renna saman í einn hlut. Það
hins vegar gekk ekki upp, bjall-
an var of lítil. Við Davíð Þór
fórum svo að leggja drög að því
að finna rútu og setja í hana flyg-
il og bjóða upp á tónleika þar sem
hann spilaði en ég keyrði,“ segir
Ilmur, sem segir þau Davíð hafa verið stað-
ráðin í því síðasta sumar að láta verða af
verkefninu. Það hafi hins vegar reynst
þrautin þyngri að finna farartækið.
„Það tók mig hálft ár að finna
ökutæki. Ég var alltaf að tala um
að mig vantaði rútu og loks bar það
árangur þegar Jón Atli Jónasson
sagði mér frá gömlum strætisvagni
sem væri í einkaeigu í Mosfellsbæ og
hefði meðal annars verið notaður til
að keyra gesti á Airwaves um í
kynningarferð um íslenska
tónlistarsögu. „Ég hringdi í
eigandann og ætlaði upphaf-
lega að athuga hvort hann
væri til í að lána mér það
sem reyndist vera gam-
all strætisvagn. Hann
var ekki til í það en var
til í að selja mér vagninn
á svo hagstæðu verði að
ég sló til. Og átti þá allt
í einu strætó. Þá vantaði
mig bara meirapróf þannig
að ég dreif mig í Nýja öku-
skólann og tók það.“
Ilmur segir strætóinn
svo flottan að lítið þurfi að gera við hann.
„Það verður samt svona barokk-rókókó-
þema og þess vegna ætlum við að vera með
kristalsljósakrónu og rauðan dregil í vagn-
inum. Ég hlakka mest til þess að heyra hvað
Davíð Þór mun spila í beygjunum,“ segir
Ilmur og hlær. „Við tókum prufutúr um dag-
inn, buðum fjölskyldunni í ísbíltúr og það
var mjög skemmtilegt. Þá spilaði Davíð Þór
reyndar bara á banjó, því flygillinn var ekki
kominn inn í vagninn.“
Ilmur segir dásamlegt að eiga strætó.
„Þetta er búið að vera geðveikt vesen og
ótrúlega skemmtilegt. Ég hef ekki talað um
annað en kælivökva og smurolíu undanfarið.
Fjölskyldan er kannski frekar hissa, Valur
[Freyr Einarsson, eiginmaður Ilmar] veit
eiginlega ekki hvaðan á hann stendur veðr-
ið,“ segir Ilmur að lokum.
Haldnir verða þrennir tónleikar í rútunni,
19. maí, 26. maí og 31. maí.
sigridur@frettabladid.is
Keypti sér strætó
Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona tók meiraprófi ð á dögunum eft ir að hafa keypt sér strætisvagn.
Ástæðan er fyrirhuguð uppákoma hennar og Davíðs Þórs Jónssonar á Listahátíð í Reykjavík þar
sem gestir hlusta á Davíð Þór leika á fl ygil í strætó sem Ilmur stýrir. Skemmtilegt vesen segir Ilmur.
Í BLÓMA Hundaskógarlilja í Grasagarðinum.
ÓVENJULEGUR ÍSBÍLTÚR Ilmur og Davíð Þór prufukeyrðu strætóinn á dögunum með fjölskylduna í bílnum. MYNDIR/JÓN PÁLL EYJÓLFSSON
➜ Efnisskráin á tónleikunum í flygil-
rútu Ilmar og Davíðs Þórs er allt frá
klassískri píanótónlist til sígunasöngls.