Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 2. maí 2013 | SKOÐUN | 25
Nýverið lauk í Reykja-
vík ráðstefnu um mál-
efni norður slóða þar sem
akademískir sérfræð-
ingar og ráðamenn land-
anna umhverfis norður-
heimskautið komu saman
til að ræða framtíðarhorf-
ur svæðisins. Niðurstöður
ráðstefnunnar voru allt í
senn sláandi, spennandi
og uggvekjandi. Norður-
heimskautið er einstakt í
hnattrænu samhengi því
hingað til hefur það verið
svo gott sem óaðgengilegt
mönnum og þar af leiðandi
er þar að finna ósnortin
land- og hafsvæði.
Loftslagsbreytingar af manna
völdum hafa á örfáum árum
umturnað landslagi Norður-
heimskautsins og áhugi þjóða
heimsins eykst með hverjum
bráðnuðum rúmmetra af ís. Ekk-
ert er dýrmætara á jörðinni en
ósnortið land og tækifærin sem
í því felast að vekja von í brjósti
sumra og dollaramerki í augum
annarra. Undir vinalegu yfir-
borði samstöðu samkundunnar í
Norðurheimskauts ráðinu horfa
heimsveldin tortryggnis augum
hvert á annað á meðan hinar minni
þjóðir tylla sér á tá og blása út
brjóstkassann til að minna á til-
vist sína. Stór svæði á norður-
heimskautinu eru utan lögsögu og
því er til mikils að vinna.
Glaðst yfir misnotkun?
Þrátt fyrir öll þau áhugaverðu pólit-
ísku álitamál og öryggis sjónarmið
sem þessar nýtilkomnu að stæður
kalla á kom á óvart að meginþráð-
ur ráðstefnunnar var annar. Það
sem helstu fræðimenn í málefn-
um svæðisins vildu fyrst og fremst
benda á er að þótt vissulega
séu mörg tækifæri falin
í bráðnun ís hellunnar sé
mun mikilvægara að skoða
orsakir þessara aðstæðna
og horfast í augu við
ískaldan, eða réttara sagt,
hlandvolgan veruleikann
og spyrja sig: Er hægt að
gleðjast yfir því að áratuga
misnotkun manna á auð-
lindum jarðarinnar hafi nú
leyst úr læðingi enn fleiri
svæði til að herja á?
Norður heimskautinu
hefur verið líkt við kanarí-
fugl í kolanámu. Áhrif
loftslagsbreytinga eru
margfölduð á norður heimskautinu
og afleiðingar þess fyrir heiminn
allan eru þegar orðnar miklar og
alvarlegar í formi náttúruhamfara,
svo sem þurrka, flóða og storma.
Það vita það allir að þegar fuglinn
drepst er ekki tímabært að opna
flösku og skála heldur sé það merki
um að hafa sig á brott og það hratt.
Tækifæri Íslendinga
En hvað hefur þetta með Íslend-
inga að gera? Við erum ein
þeirra þjóða sem eiga fast sæti
í Norðurheimskauts ráðinu og
munum eiga hlutdeild í framtíðar-
áformum um svæðið. Okkur hafa
einnig opnast möguleikar til nýt-
inga náttúru auðlinda þess á kom-
andi árum. Mörgum finnst eflaust
að nú sé okkar tími kominn til að
fá sneið af kökunni og ósanngjarnt
að hamla aðkomu okkar vegna
umhverfisspjalla annarra. Það er
þó mikilvægt að gera sér grein
fyrir því að allar athafnir á norð-
urheimskautinu eru margfalt flókn-
ari en á öðrum stöðum í heiminum
og að tæknin til að tryggja öryggi
manna og umhverfis er ekki til
staðar á Íslandi í dag. Við erum
vel menntuð og vel upplýst þjóð
og okkur ber skylda til að nálgast
málefni norðurheimskautsins af
yfir vegun og virðingu. Við megum
ekki gleyma okkur í dagdraumum
um olíufursta norðursins og við
megum ekki láta stjórnmálamenn
tæla okkur til lags við vafasamar
aðgerðir með loforðum um skjótan
gróða.
Tækifæri Íslendinga til ham-
ingju og hagsældar eru óteljandi og
síst háð nýtingu náttúruauðlinda,
því líkt og einn fræðimaðurinn
benti á er hagsæld þjóða yfirleitt í
öfugu hlutfalli við gnægt náttúru-
auðlinda þeirra. Þótt það virðist
öfugsnúið skýrist það með því að
það er töluvert erfiðara að misnota
mann vitið en náttúruna. Nú þegar
höfum við Íslendingar upplifað
hringrás hinnar brostnu blöðru
(e. boom-bust cycle) með óaftur-
kræfum afleiðingum fyrir náttúr-
una og án sýnilegs ávinnings. Lofts-
lagsbreytingar af mannavöldum
eru einhver mesta ógn sem steðj-
ar að mannkyninu fyrr og síðar og
um það efast ekki nokkur virtur
vísindamaður lengur. Þjóðir heims
verða að bregast við með ábyrgum
hætti áður en það verður of seint –
við getum ekki bara sest niður og
spilað á fiðlu á meðan jörðin brenn-
ur. Það er nú einu sinni þannig að
við þurfum á jörðinni að halda, en
hún þarf hins vegar ekki á okkur
að halda.
Kanarífugl í andnauð
UMHVERFISMÁL
Sóley
Kaldal
áhættu- og öryggis-
verkfræðingur
og doktorsnemi
í öryggismálum
norður-
heimskautsins
Stærst
i
skemmt
istaður
í heimi!
Skiptu gamla
pungnum út
fyrir nýjan
ofurpung!
10 X hra
ðari
en 3G pu
ngur!
Þjónustusamningur í áskrift hjá Nova er til 6 mánaða, greitt með kreditkorti. Nánari upplýsingar á nova.is.
Fyrsti mánuðurinn á 0 kr. í áskrift, skv. þeirri leið sem er valin, en í frelsi 1 GB.
Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter
4G pungur
6.990 kr.
með þjónustusamningi í áskrift.
Fullt verð í áskrift og frelsi: 12.990 kr.
4G pung er hægt að nota á 4G og 3G
þjónustusvæði Nova.
1 GB
1.190 kr.
15 GB
3.990 kr.
Fyrsti mánuðurinn á 0 kr.!
4G netþjónusta
➜ Ekkert er dýrmætara á
jörðinni en ósnortið land og
tækifærin sem í því felast
að vekja von í brjósti sumra
og dollaramerki í augum
annarra.
www.saft.is
KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ
SKOÐA EFNI Á NETINU MEÐ
GAGNRÝNUM HÆTTI