Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 66
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
? Ég er frekar með hugleiðingu heldur en beint spurningu.
Um daginn var ég að versla í mat-
vöruverslun og mig vantaði dömu-
bindi, mín tegund var ekki til svo
ég fór að velta fyrir mér úrvalinu
og tók eftir að í boði eru dömu-
bindi með lykt. Ég velti því fyrir
mér hvaða skilaboð við erum að
senda stúlkum um líkamann og
blæðingar þegar það er farið að
setja blómalykt í bindi. Kannski
er ég orðin gömul en þetta þykir
mér ekki eðlilegt og myndi gjarn-
an vilja fá meiri umræðu og gagn-
rýni á þessi mál.
● ● ●
SVAR Þegar Svört G-strengs
dömubindi með blómalykt,
ávaxtalyktarsprey fyrir útferð
og litur í þremur blæbrigðum af
bleikum fyrir barmana. Það er
hreint ótrúlegt hvers lags snyrti-
vörur eru framleiddar fyrir pík-
una og allt frekar útlitsmiðað eða
ætlað að koma í veg fyrir óþæg-
indi sem hún veldur öðrum. Þetta
er ákveðinn liður í þeirri trú að
konan sé oft „gölluð“ og þurfi á
einhvern hátt að fela gallana eða
reyna að bæta upp fyrir þá. Píkan
er alveg nógu mikil pæja með
sína eigin fylgihluti og þarf ekki
snillinga úti í bæ til að skvísa sig
upp. Það má svo ekki gleyma því
að snyrtivörubransinn er ansi
stór og vinnur að því að búa til
nýja „þörf“ og vörur sem mæta
þessari þörf. Það er því mjög
mikilvægt að vera gagnrýninn á
snyrtivörur og geta lesið sér til
um hvort óæskileg efni séu í þeim
og hvað sé í lagi.
Þá er frekar sorglegt að konur
sem glíma við lyktarsterka útferð
eiga það til að skrúbba píkuna með
lyktarsterkri sápu og smúla svo,
eins og mörgum ungum stúlkum er
kennt að gera. Slík hreinsun getur
einmitt raskað náttúrulegri sýkla-
flóru píkunnar og búið til vanda-
mál sem leiðir af sér illa lyktandi
útferð. Píkuna þarf bara rétt að
skola með hreinu vatni. Þá á hvorki
að vera blómalykt né ávaxtabragð
af píkunni. Ef þú trúir mér ekki
prófaðu þá að sprauta ilmvatni
upp í þig, það er frekar ólystugt
og allt annað en kynæsandi. Sama
væri upp á teningnum með typpa-
ilmefni, ef slíkt væri framleitt. Það
er eðlilegt að það sé lykt af kyn-
færum og tíðablóði en ef þér þykir
lyktin óvenju sterk eða að henni
fylgir öðruvísi útferð getur verið
gott að kíkja til læknis. Svarið er
því læknir en ekki ilmsprey. Eins
myndi ég mæla með dömubindi
sem er úr óbleiktri bómull (og fæst
í næstu matvöruverslun) sem er
alveg lyktarlaust enda finnst mér
tíðablóð og blómaangan vera ansi
ógirnileg blanda.
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Píkan þarf ekki
að láta „skvísa“ sig upp
ANGAN Tíðablóð og blómaangan er ógirnileg blanda að mati Siggu Daggar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Geiturnar þrjár ehf. er nýtt sprota-
fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Að
fyrirtækinu standa Berglind Sig-
marsdóttir, Ragnheiður Sveinþórs-
dóttir og Heather Philip. Saman
ætla þær að þróa ís, jógúrt og osta
til framleiðslu úr geitamjólk.
Berglind gaf út bókina Heilsu-
réttir fjölskyldunnar í fyrra og
vinnur nú að framhaldi hennar. Þar
mun hún skoða hvernig mataræði
hefur áhrif á hegðun barna. Hug-
myndin að fyrirtækinu kviknaði í
vinnslu bókarinnar. „Ég ræddi við
konu sem á dóttur með mjólkur-
óþol og hún sagði mér frá áhrif-
um þess að skipta kúamjólkinni út
fyrir geitamjólk,“ segir Berglind
og vísar til Heather Philip, eins
stofnenda Geitanna þriggja, sem
hefur flutt inn geitamjólkurduft í
talsverðan tíma fyrir dóttur sína.
„Duftið er einfaldlega þurrkuð
Geiturnar þrjár búa
til jógúrt, ís og osta
Geitamjólk getur hentar mörgum þeim sem hafa mjólkuróþol eða -ofnæmi.
Geiturnar þrjár ehf. þróa nú vörur úr geitamjólkurduft i til sölu hér á landi.
ÞRÓA
VÖRUR ÚR
GEITAMJÓLK
Heather
Philip og
Berglind
Sigmars dóttir
stofnuðu
fyrirtækið
Geiturnar
þrjár ásamt
Ragnheiði
Sveinþórs-
dóttur og
þróa afurðir
geitamjólkur.
Geitur eru taldar vera elstu tömdu húsdýrin
og menn hafa neytt geitamjólkur og afurðum
hennar í meira en tíu þúsund ár. Margir
ræktendur fjarlægja geithafurinn úr hjörðinni
sökum slæmrar lyktar sem getur smitast í
mjólkina. Kvenkyns geiturnar lykta aftur á móti
ekki.
Geitamjólk drukkin í mörg þúsund ár
geitamjólk. Engu er bætt í hana né
tekið úr. Við ætlum að pakka duft-
inu í neytendapakkningar og þróa
jógúrt, ís og osta til framleiðslu.“
Vörur framleiddar úr geitamjólk
geta hentað mörgum þeim sem
hafa mjólkuróþol eða -ofnæmi.
Berglind segir að með fram-
leiðslunni vilji þær fyrst og fremst
gefa fólki val. „Flestir í heiminum
drekka geitamjólk, um það bil 65
prósent íbúa heimsins. Kúa mjólkin
er í raun bara meira áberandi á
Vesturlöndunum.“ Geitaræktun
á Íslandi er nokkur en ekki nógu
mikil til að mjólkurframleiðsla
standi undir sér. „Það væri gaman
að skoða það síðar en sem stendur
kaupum við duftið að utan. Duftið
er vottað með stimpli sem kallast
QualiGoat og staðfestir að velferð
dýranna sé höfð að sjónarmiði sem
og gæði framleiðslunnar.“
halla@frettabladid.is
Stærst
i
skemmt
istaður
í heimi!
Ofurhraði
ofureinfalt
ofurgott verð!
Verð 1.690 kr. á mánuði í 12 mánuði í gegnum Borgun auk 325 kr. greiðsludreifingargjalds.
Þjónustusamningur í áskrift hjá Nova er til 6 mánaða, greitt með kreditkorti. Nánari upplýsingar á nova.is.
Fyrsti mánuðurinn á 0 kr. í áskrift, skv. þeirri leið sem er valin, en í frelsi 1 GB.
Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter
4G box
1.690 kr. /mán. í 12 mán.
með þjónustusamningi í áskrift.
Fullt verð í áskrift og frelsi: 2.190 kr. /mán. í 12 mán.
Netþjónusta fyrir heimili og vinnustaði.
Þú stingur bara í samband!
Fyrsti mánuðurinn á 0 kr.!
4G netþjónusta
15 GB
3.990 kr.
50 GB
4.990 kr.
100 GB
5.990 kr.
3 X meiri
hraði
en ADSL!