Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 18
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18
„Það þarf nú ekki að hafa neinar
stóráhyggjur af þessu,“ segir
Vilmundur Hansen garðyrkju-
fræðingur, spurður um áhrif
kulda tíðarinnar undanfarið á garð-
yrkjuna.
„Þetta virðist vera rysjótt ár
eftir ár en ég sé ekki annað en að
blómgun hafi verið ágæt undan-
farin ár,“ segir Vilmundur. „Það
eina sem gæti gerst er að blóma-
vísar á ávaxta- og berjatrjám hafi
skemmst í frosti og það gæti dreg-
ið úr berja- og aldinmyndun. Að
öðru leyti er þetta bara eins og
hvert annað ár.“
Um þetta leyti árs eru margir
búnir að forsá jurtum innanhúss
en Vilmundur segir að enn sé allt
of snemmt að færa þær út.
„Það þýðir ekkert að fara af stað
með slíkt fyrr en í fyrsta lagi eftir
að hættan á næturfrosti er liðin
hjá. Ég held að það verði ekki fyrr
en 20. maí, eða jafnvel seinna. Það
er allt of snemmt núna.“
Veðurspá fram yfir helgi gerir
ráð fyrir nokkrum kulda, slyddu
og jafnvel éljum víða um land.
Vilmundur segir mat- og krydd-
jurtarækt hafa aukist mikið hér
á landi undanfarin ár. Jafnvel sé
hægt að tala um sprengingu í þeim
efnum.
„Svo er fólk líka orðið frakkara
við að prófa nýjar tegundir. Það
eru bæði klassískar tegundir eins
og kartöflur og grænkál sem allir
geta ræktað, en svo er fólk farið að
prófa ýmislegt, til dæmis rósakál
og fleiri salattegundir og krydd-
jurtir. Svo hef ég líka verið að fá
spurningar um hvítlauk og spergil,
þannig að það er eitt og annað sem
fólk er að spá í.“
Vilmundur segir fátt því til
fyrir stöðu að þessar jurtir þrífist
hér á landi.
„Já, með alúð ætti þetta allt
saman að vera hægt. Ég hef ann-
ars sagt að svona ræktun mis-
heppnist kannski fyrstu tvö árin
en svo er maður orðinn góður!“
thorgils@frettabladid.is
Hefur ekki áhyggjur
af kuldatíðinni
Garðyrkjufræðingurinn Vilmundur Hansen segir að ekki þurfi að hafa miklar
áhyggjur af því að kuldatíð komi niður á ræktun. Þó sé allt of snemmt að setja út
jurtir sem hafi verið forsáð. Flest sé hægt að rækta hér á landi með alúð.
VILMUNDUR
HANSEN
Garðyrkju-
fræðingur-
inn hefur
ekki miklar
áhyggjur af
kuldatíðinni.
Tónlistamaðurinn Ágúst Bent segir að bestu
kaupin hans séu án efa John Frieda-sjampóið
hans. Þau verstu séu árskort í líkamsrækt.
Slíkt sé óþarfi þar sem frisbígolf sé mun betri
hreyfing.
„Fyrir eitt mánaðargjald er hægt að kaupa
sett af frisbígolfdiskum og massa sig upp allt
árið við að kasta í keðjur.“
Bent segist halda hárinu ljósu og fögru
með Go blonder línunni frá John Frieda.
„Bestu kaupin eru án efa John Frieda,
Go Blonder sjampóið mitt. „Nigga“, ég er
„gorgeous“. Það gerir mig ljóshærðan og
sætan. Ég nota reyndar líka John
Frieda Go Blonder hárnæringu og
John Frieda Go Blonder sprey svo
það má segja að öll línan sé mín
allra bestu kaup.“ - mlþ
Smellugas
Vinur við veginn
11 kg
2 kg
5 kg
10 kg
Grillum í allt sumar
með gasi frá Olís
Smellugas fyrir grillið, útileguna og heimilið!
Grand Hótel – Reykjavík
Miðvikudaginn 22. maí kl. 17:00
Dagskrá fundarins:
Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga
Engjateigi 9 105 Reykjavík
www.lifsverk.is
LÍFEYRISSJÓÐUR
VERKFRÆÐINGA
Hefðbundin aðalfundarstörf
Tillögur til breytinga á samþykktum
Önnur mál, löglega upp borin
Lífeyrissjóðs verkfræðinga
Aðalfundur
Kosið verður um 1 stjórnarmann og 4 varamenn í stjórn
sjóðsins. Í lögum og samþykktum sjóðsins kemur fram
að hlutfall annars kynsins í stjórn sjóðsins skal aldrei
verða lægra en 40%. Þeim sjóðfélögum sem hafa hug
á að bjóða sig fram er boðið að kynna sig stuttlega á
heimasíðu sjóðsins og eru þeir beðnir um að hafa
samband við starfsmenn sjóðsins.
Í sjóðnum er virkt sjóðfélagalýðræði og hafa allir
sjóðfélagar sem mæta á aðalfund jafnan atkvæðisrétt.
NEYTANDINN Ágúst Bent Sigbertsson
Bara það besta
fyrir hárið
Í ljós hefur komið galli á suðu í undirstöðum á trampólínum sem
BYKO seldi árið 2011 að því er segir í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.
„Hætta er á alvarleg-
um slysum þar sem suðu-
samsetningin sem tengir
járnhringinn, sem dúkur-
inn er festur í, við lapp-
irnar getur gefið sig,“ segir
í tilkynningu frá BYKO,
sem biður þá sem keyptu
umrædd trampólín að skila
þeim í næstu verslun fyrir-
tækisins til að fá nýtt eða
fá endurgreitt. Um er að
ræða trampólín sem eru 4,3
metrar í þvermál og eru með
öryggisneti. - gar
BYKO innkallar trampólín
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN