Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 8
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Verðtryggð skuldabréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS150224 Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt útgefandalýs- ingu og grunnlýsingu dagsett 24. apríl 2013 vegna töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. Útgefandalýsinguna og grunn- lýsinguna ásamt gögnum sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á vefsíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til lokagjalddaga skuldabréfanna. Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna sem óskað hefur verið að tekin verði til viðskipta 3. maí 2013 er 500.000.000 kr. heildarnafnverð flokksins eftir þá stækkun er þá 29.914.000.000 kr. Nafnverð hverrar einingar er 1 kr. Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf. Bréfin bera fasta 3,75% ársvexti sem greiddir eru hálfsárslega, 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert, í fyrsta sinn 15. febrúar 2009 og í síðasta sinn 15. febrúar 2024. Auðkenni flokksins á NASDAQ OMX Iceland hf. er LSS150224 og ISIN númer IS0000018869. Reykjavík, 2. maí 2013. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. Aðalfundur Félags einstæðra foreldra verður haldinn fimmtudaginn 16. maí kl. 17 á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Rvk. Á dagskrá verða almenn aðalfundarstörf. Boðið verður upp á kaffiveitingar og eru allir félagsmenn hvattir til að mæta. Félag einstæðra foreldra, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík Sími: 551-1822. Vefsíða: www.fef.is Facebook: facebook.com/felag.einstaedra.foreldra Wheeler Pro 50 Comfort götuh jól 84.995 kr. Herra og dömustell, 2 litir, álstell, 21gíra, dempari að framan og dempun í sæti, breiður hnakkur, brettasett fylgir. NÁTTÚRA Ný aðferðafræði við að merkja fálka skilar mikilvægum niðurstöðum til Náttúrufræði- stofnunar Íslands (NÍ). Hafnar eru tilraunir með erfðafræði legar rannsóknir á fjöðrum fálka. Óla fur K . Nielsen, fugla- fræðingur við NÍ, segir að allt fram til ársins 2011 hafi fálk- ar aðeins verið merktir með hefðbundnum stálhring, en til að lesa á slík merki þurfti fuglinn að finnast dauður eða að kom- ast undir manna hendur á annan máta. „Sumarið 2011 var byrjað að litmerkja fálka og síðan hafa um 100 fuglar verið merktir. Þessi merki gefa okkur kost á að nálg- ast nýjar upplýsingar. Ekki síst um fullorðna fugla í varpi, sem er aðal tilgangurinn með þessari nýju aðferð. Framtíðarsýnin er að koma upp merktum varpstofni svo hægt sé að meta afföll og fleira,“ segir Ólafur, en tilgangurinn með merkingum er að fá upplýsingar um ferðalög fálka, átthagatryggð, kynþroskaaldur og afföll. Ólafur segir að varpstofn á Íslandi sé um 400 pör. „Við erum með rétt innan við 10% af fálkastofninum á rann- sóknasvæðinu sem er um 5.000 ferkílómetra svæði í Þingeyjar- sýslum,“ segir Ólafur og bætir við að á liðnum áratugum hafi verið merktir á milli 16 og 17 hundruð fálkar með hefðbundnum merkj- um. Af þeim hafa 200 náðst til baka. Næsta skref í rannsóknum NÍ er nýting erfðafræðilegra upp- lýsinga. „Við náum lífsýnum úr fuglunum úr fjöðrum sem þeir fella. Þannig getum við greint einstaklinginn, og við tökum þetta upp samhliða litmerkingunum. Með því að beita þessum tveimur aðferðum sam- hliða getum við fylgst með fuglum sem heimsækja sitt óðal ár eftir ár. Tækifærin til að nýta þessar nýju aðferðir samhliða eru gríðarlega mikil,“ segir Ólafur. Ætlunin er að halda þessu verk- efni, litmerkingum og erfðafræði- legum rannsóknum samhliða, áfram næstu tíu árin. Von er á fyrstu varpfuglunum inn í verk- efnið núna í vor. Þess má geta að mjög er litið til þessara íslensku rannsókna þar sem allt að helm- ingur evrópska fálkastofnsins heldur til hér á landi. svavar@frettabladid.is Læra mikið í kjölfar nýrra fálkamerkinga Nýting nýrra litmerkja skilar merkilegum niðurstöðum um fálka hér á landi. Nú er hægt að greina fuglana lifandi en áður var treyst á endurheimtur dauðra fugla. AU Kvenfálkinn AU var merktur í S-Þingeyjarsýslu sumarið 2011 en hafði vetursetu og sumardvöl á Suðurlandi árið 2012. MYND/ÓLÖF HELGA HARALDSDÓTTIR HR Fálkinn HR, karlfálki á fyrsta hausti, dvaldi við Eyrarbakka fram í mars 2013. ÓLAFUR K. NIELSEN Eyrbekkingurinn Ólöf Helga Haraldsdóttir sendi nýlega upplýsingar til Náttúrufræðistofnunar um tvo merkta fálka í sinni heimabyggð. Þetta voru fálkarnir AU og HR. ■ Fálkinn AU, kvenfugl merktur sem ungi í hreiðri sumarið 2011 í Suður-Þingeyjarsýslu, sást sumarið 2012 á Eyrarbakka og sást renna sér eftir kanínum, meðal annars. Örn Óskarsson, líffræðikennari á Selfossi, hafði séð sama fugl veturinn á undan við ósa Ölfusár. Þessi þingeyski fálki hafði því bæði vetursetu og sumardvöl á Suðurlandi. AU hvarf á braut haustið 2012. ■ Fálkinn HR, karlfálki á fyrsta hausti, dvaldi við Eyrarbakka fram í mars 2013. HR sást eltast við kanínur en einnig tók hann æti sem lagt var út fyrir hann, dauðar hænur og gæsir. Fálkinn HR er einnig úr Þingeyjarsýslum og reyndar Bárðdælingur en ættaður úr Mývatnssveit þaðan sem móðir hans kemur, segir á vef NÍ. Saga þingeysku fálkanna AU og HR SAMFÉLAGSMÁL Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. Unglingar, 13 til 16 ára, mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan þess tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu og miðast aldur við fæðingarár. Útivistarreglurnar eru samkvæmt barna verndar- lögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn, en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklings bundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunn skóla aldri þurfi 10 tíma svefn hverja nótt. - kh Breyttur útivistartími barna og unglinga tók gildi í gær, 1. maí: Mega vera úti til klukkan tíu BÖRN AÐ LEIK Breyttur útivistartími tók gildi í gær. Nú mega börn vera úti til tíu en unglingar til tólf. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KJARAMÁL Laun ríflega fjórðungs alls vinnandi fólks í Reykjanesbæ eru undir 250 þúsund krónum. Könnun sem atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar, í samstarfi við fjármálaskrifstofu bæjarins, vinnur að leiðir þetta í ljós. Könnunin sýnir að 65% þeirra sem eru á aldrinum 18-67 ára voru við vinnu í febrúar. Af þessum hópi bæjarbúa eru 26,6% með laun undir nefndri krónutölu. „Hér er um að ræða íslenskt verkafólk, sem oftast hefur ein- göngu lokið grunnskólanámi,“ s e g i r Á r n i Sigfús son bæj- arstjóri, en þess- ar upplýsingar voru kynntar á íbúafundi með bæjar stjóra á þriðjudags- kvöld. Mjög er horft til upp byggingar álversins í Helguvík. Á fundinum kom fram að meðallaun verka- fólks í álveri Norður áls á Grundar- tanga væru á bilinu 500-600 þúsund krónur. „Við stöndum frammi fyrir því að byggja upp verkefni sem getur tvöfaldað laun verkafólks hér. Það hefur að auki veruleg áhrif á skatt- tekjur sveitarfélaga. Meðalskatt- tekjur sem Fjarðabyggð fær frá hverjum íbúa árið 2012, þar sem Fjarðaál er staðsett, eru 576 þúsund krónur á íbúa. Í Reykjanes bæ eru meðalskatttekjur sama ár um 390 þúsund krónur á íbúa,“ segir Árni. - shá Launakönnun bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ sýnir að 26,6% launafólks bera afar lítið úr býtum: Fjórðungur fær undir 250 þúsundum króna REYKJANESBÆR Mjög er litið til launa starfsfólks í álverum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÁRNI SIGFÚSSON MENNING Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar (ÚTÓN), nýr sjóður sem hefur það að mark- miði að styðja við útflutning tón- listar, hefur tekið til starfa. Í sjóðinn verður hægt að sækja um ferðastyrki mánaðarlega, og ársfjórðungslega verða veittir tveir styrkir sem nema 500 þús- und krónum og einn styrkur sem nemur einni milljón króna. Hlutverk ÚTÓN er að styrkja íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni á framfæri. - shá Tónlistarfólk fær stuðning: Sjóður um útflutta tónlist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.