Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 30
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 30 Ef ég man hlutföllin rétt þá voru um 97% viðmæl- enda bankafrétta árin fyrir hrun karlmenn. Þessi niðurstaða kom fram í fjölmiðlakafla skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og þótti sláandi. Fjölmiðlarnir voru gagn- rýndir fyrir að láta „mata“ sig af ör fáum mönnum og viðkomandi banka- viðmælendur voru gagn- rýndir fyrir að upplýsa þjóðina ekki rétt. Hefur eitthvað breyst? Fjórum árum síðar fórum við 12 konur af stað með fyrsta sérhæfða samskiptamiðilinn á Íslandi, spyr. is. Við völdum opnunardaginn 6. október 2012, þ.e. hinn margfræga „Guð blessi Ísland“ dag. Á tæpum sex mánuðum höfum við lært að opnun fyrirspurnargáttar fyrir almenning var ekki bara tíma- bær heldur er að vekja athygli erlendis sem fyrsti samskipta- miðillinn í heimi sem formlega hefur það hlutverk að óska eftir svörum fyrir almenning. Hátt í fjögur hundruð aðilar hafa nú svarað spurningum á spyr.is og voru kynjahlutföll svarenda um síðustu mánaðamót sem hér segir: 48% eru karlmenn, 38% eru konur og 14% eru ókyngreind, þ.e. svör eru birt í nafni fyrirtæk- is eða stofnunar. Ef ókyngreind svör eru ekki meðtalin væru kynja hlutföllin 56% karlmenn og 44% konur. Á þessum sex mánuð- um höfum við hins vegar komist að því að til þess að halda þess- um hlutföllum sem jöfnustum þurfum við að leita, finna og velja fréttir með kynja hlutfall svar- enda í huga. En ef konur eru sjaldnar við mælendur í fréttum fjölmiðla, þýðir það þá að konur hafi eitt- hvað minna að segja en karlmenn? Konur sem hafa vit! Svarið við síðustu spurn- ingu er klárlega nei. Ég nefni hér dæmi frá við- skiptavinum spyr.is þar sem stór íslensk fyrirtæki eru með stolti að tefla fram flott- um konum og ráðgjöfum: Ásdís B. Jóns dóttir, gæðastjóri hjá N1, hefur verið forsvars maður N1 í að miðla þekkingu er varðar gæði og öryggismál stórfyrirtækja. Ekki er hægt að segja annað en að Ásdís starfi í mjög karllægu umhverfi olíu og bifreiða. Annað gott dæmi er ráðgjafar KPMG. Á fyrsta birtingar mánuði KPMG á spyr.is tefldi KPMG fram þrem- ur konum á sínum vegum fyrir upplýsingamiðlun og ráðgjöf en það voru Guðrún B. Bragadótt- ir, Berglind Guðmunds dóttir og Soffía Björgvinsdóttir. Hjá Landsbankanum hafa tvær konur verið í sam skiptum við lesendur, þær Margrét O. Ásgeirsdóttir og Steinunn Pálmadóttir. Spurning- um til Símans hefur verið svarað af Gunnhildi Ö. Gunnarsdóttur, fyrrverandi blaðamanni. Og eru þá ekki upp talin samskiptin sem þjálfararnir hjá World Class eða Lukka á Happ eiga vikulega við lesendur um hollustu og hreysti. Já, það vantar ekki konurnar með þekkinguna en það sem meira er: Það eru fyrirtækin sjálf sem tefla þessum konum fram! En hvers vegna sjáum við konurnar þá ekki meira í fjölmiðlunum sjálfum? Spennandi tækifæri Hér eins og víða er fréttastofum og ritstjórnum fjölmiðla stjórnað af karlmönnum. Auðvitað hefur þetta áhrif, sama hvað þessir karlmenn halda kannski sjálfir. Að mínu mati yrði hvoru tveggja reyndar til góðs, að fjölga konum á fjölmiðlum og að fjölga konum í fjölmiðlum. Að þessu sinni læt ég það þó nægja að mæla með því að fjölmiðlar finni fleiri konur í fréttir, ekki bara í sparidag- skrárþættina. Fyrir vikið fáum við fjölbreyttari fréttir og eflaust mál- efnalegri umræður líka þar sem mannauðurinn yrði nýttur betur en nú. Ef einhverjir fjölmiðlar líta á þessa grein sem enn eitt kvenna- rausið, eru kannski sannfærðir um að konur séu tregar við að mæta í viðtöl, að fjölmiðlarnir séu eingöngu að endurspegla ytra umhverfi eða trúa því að karlmenn séu hreinlega hæfastir til að stýra fjölmiðlunum, þá eiga þeir það bara við sig. Staðreyndin er að konum hefur fjölgað á þingi, jöfn kynjaskipt- ing í ríkisstjórn telst eðlileg krafa, kynjakvótalög hafa verið sett fyrir stjórnir stærri fyrirtækja og nú er hreinlega komið að því að ræða svolítið fjölmiðlana. Þar liggja mörg spennandi tækifæri og upplagt að benda t.d. á fjölmiðlalista FKA þar sem listuð eru upp nöfn kvenna sem eru tilbúnar til að ræða við fjöl- miðla. Eins má líka benda á nafna- listann í þjóðskrá en þar eru kynja- hlutföllin 50:50. Kauptu miða á www.das.is eða í síma 561 7757. Miðaverð 1.300 kr. á mán. fyrir einfaldan miða. SEX VW BJALLA! Sex sinnum á happdrættisárinu verður dregin út Volkswagen Bjalla, sportlegur lúxusbíll, 5 milljóna virði. eða 10 milljónir í peningum. ÍS LE N SK A SI A. IS D AS 6 32 18 0 4/ 13 Nýtt happdrættisár framundan 5 MILLJÓNIR KRÓNA Í SKOTTINU á tvöfaldan miða MILLJÓNAVINNINGAR 7×6 milljónir og 39×4 milljónir Fjórtán 3 milljóna króna og sjötíu og átta 2 milljóna króna vinningar á einfaldan miða. Alls er dregið um 50 þúsund vinninga á árinu. Gervivísindi og vísinda- legt ólæsi verður sífellt meira áberandi í vestræn- um heimi. Það þarf ekki að líta lengra en á sjónvarps- skjáinn, þar sem innrásir geimvera, hindurvitni og skottulækningar eru mat- reidd sem nýjasta tækni og vísindi. Sumir þessara þátta hafa ratað athuga- semdalaust í útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu. Gervivísindi eru því orðin eðlilegur og sjálf- sagður hluti af okkar lífi. Fyrir marga er þegar orðið erfitt að greina á milli vandaðra og óvandaðra vinnubragða og það verður sjálfsagt erfiðara eftir því sem vanþekkingar síbyljan glym- ur hærra. Það er þó jafnvel alvar- legra að gervi-vísindi eiga sífellt fleiri fylgismenn meðal stjórnmála- manna Vesturlanda. Þurfum við að vera uggandi yfir því hvernig slíkt þróast hér á landi? Á næstu misserum liggur fyrir Íslendingum að taka afstöðu til flókinna mála t.d. varðandi nýtingu náttúruauðlinda. Það er viðbúið að vísindalega umræðan og „rökin“ sem munu glymja á þjóðinni verði misvönduð. Það er því mikilvægt við Íslendingar gerum þegar kröfu um vandaða umræðu, lítum í eigin barm og lærum að greina á milli. Eiga greiða leið að sviðinu Allt of oft heyrir maður talað um vísindi og skapandi greinar sem andstæður. Góð vísindi fela hins vegar alltaf í sér sköpun, bæði þegar hugmynd fæðist, þegar hún er útfærð og þegar niðurstöðurnar eru túlkaðar. Það eru fáar spurn- ingar sem hægt er að svara með já-i eða nei-i eða kvaðrat rótinni af fjórum. Mjög oft er hins vegar ætlast til að vísindamenn geri nákvæmlega þetta. Þeir eru síðan ásakaðir um loðin, óræð svör þegar þeir verða ekki við óskum fjölmiðla, stjórnmála- manna og annarra um ein- falt, afdráttarlaust svar. Það er á þessum tíma- punkti sem gervivísindi eiga greiða leið að sviðinu. Gervivísindi eru miklu áheyrilegri, skemmti- legri, fjölmiðlavænni og auðmeltari. Þau gera litlar kröfur til áheyrandans þar sem engin óvissa ríkir um niðurstöðuna. En af hverju erum við svona ginkeypt fyrir ein- földum fullyrðingum? Það er sjálfsagt ekkert einfalt svar við því, að einhverju leyti er það okkur eðlislægt, að einhverju leiti liggur svarið í vestrænni kennslu hefð. Í skóla innbyrðum við þekkingu, lærum „staðreyndir“ en við lærum ekki að hugsa. Jafn- vel á háskólastigi er allt of algengt að nemendur forðist aðferðafræði, hún er stimpluð leiðinleg og erfið, og nemendur fara fram á hugsunar- lausa yfirfærslu þekkingar frá kennara til nemanda. Þessi yfir- færsla er auðvitað ekki algjörlega tilgangslaus, eftir því sem þekk- ingargrunnurinn eykst fást betri forsendur til að setja hlutina í sam- hengi. Þekking kemur hins vegar aldrei í stað frjórrar hugsunar. Spilað á hræðslu Mætumst á miðri leið. Það er sannar lega ekki til of mikils mælst að vísindamenn leggi sitt af mörkum til að koma þekkingu sinni á framfæri á skiljanlegan og aðgengilegan hátt. Oft eru það færustu vísindamennirnir sem eiga best með að skýra fræðin, bara ef þeir nenna. Það er hins- vegar líka hægt að gera þá kröfu á almenning – og stjórnvöld – að við köstum hræðslunni, hugsum sjálf og hættum að láta sannfæra okkur um gervivísindi. Gervi vísindin spila nefnilega oft á hræðslu, hræðslu við fátækt, hræðslu við sjúkdóma, hræðslu við einangrun. Þau lofa einföldum remedíum bara ef við trúum. Mér er minnisstæð umræðan um Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma. Þá var mikið rætt um tilfinninga- rök. Þeir sem þóttu aðhyllast slík rök voru afgreiddir sem lopahúfu- klædd, trjáfaðmandi náttúrubörn. Kannski voru þeir afkomendur ein- feldninga sem höfðu villst með land- námsmönnum til Íslands, og hefðu sjálfsagt orðið úti strax á fyrsta vetri ef víkingarnir hefðu ekki haft vit fyrir þeim. Og nú tóku víking- ar aftur af þeim ráðin. Afleiðingar þess að afgreiða tilfinningarökin á þennan hátt eru nú ljósar. Við höfum ekki tilfinningar fyrir tilviljun. Til- finningar virka oft sem innbyggð- ur siðferðilegur áttaviti. Frá unga aldri finnum við innst inni að það er rangt að stela, meiða og borða alla súkkulaði kökuna alein. Tilfinning- ar virka líka sem meðfætt aðvör- unarkerfi, við fáum slæma tilfinn- ingu ef verið er að ljúga að okkur eða sannfæra okkur um að gera eitthvað sem við vitum að er rangt. Það var kannski sú tilfinning sem hringdi hátt hjá mörgum varðandi Kárahnjúka, það var jú aldrei búið að koma með sannfærandi rök fyrir gagnsemi virkjunarinnar. Ef við sem einstaklingar hefðum fylgt innsæinu, sleppt hræðslunni, hugsað sjálf og tekið eigin ákvarð- anir hefði kannski mátt sleppa við mikið af þeim hremmingum sem þjóðin hefur gengið í gegnum á síð- ustu árum. En það er aldrei of seint að byrja. Vísindi smísindi ➜ Gervisvísindi eru miklu áheyrilegri, skemmtilegri, fjölmiðlavænni og auð- meltari. Þau gera litlar kröfur til áheyrandans, þar sem engin óvissa ríkir um niðurstöðuna. ➜ Að mínu mati yrði hvoru tveggja til góðs að fjölga konum á fjölmiðlum og að fjölga konum í fjölmiðlum. Nýtum allan mannauðinn – líka í fjölmiðlum JAFNRÉTTI Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri UMHVERFISMÁL Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir vísindamaður og forstöðumaður Varar Sjávarrann- sóknaseturs við Breiðafj örð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.