Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 34
Kröfuhafar Skipta hf., móður- félags Símans, hafa samþykkt til- lögu um fjárhagslega endurskipu- lagningu félagsins sem kynnt var í byrjun apríl. Í kjölfarið verða skuldir félags- ins lækkaðar úr 62 milljörðum króna í 27 milljarða. Þá færist eignarhald félagsins frá Klakka ehf., áður Exista, til Arion banka og eigenda skuldabréfa Skipta. Stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa átt stærstan hluta skulda- bréfanna og verða þeir því helstu eigendur Skipta. Þá kynntu Skipti uppgjör sitt vegna ársins 2011 á þriðjudag. Tapaði félagið 3,4 milljörðum króna á árinu samanborið við 10,6 milljarða árið áður. Skoða ber uppgjör Skipta með tilliti ti l þeirr- ar erfiðu skuldastöðu félagsins sem endur- skipulagningin tók á. Var þann- ig 1,9 milljarða króna hagnað- ur af rekstri félagsins í fyrra, sem er miklu betri niðurstaða en árið áður þegar 534 milljóna króna tap var á rekstrinum. En þótt reksturinn hafi batnað mátti rekstrar niðurstaðan sín lítils þar sem nettó fjár- magnskostnaður var ríf- lega 5,5 milljarðar. - mþl EFNAHAGSMÁL Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is Mikilvægt er að uppgjör innláns- stofnana í slitameðferð raski ekki fjármálastöðugleika. Þá þarf að standa vel að sölu eignarhluta þrotabúa bankanna í nýju bönkun- um og endurfjármagna eða lengja í skuldabréfum Landsbankans. Þetta eru mikilvægustu verk- efni þjóðarbúsins með tilliti til fjármálastöðugleika að mati Seðla- bankans. Bankinn gaf á þriðjudag út ritið Fjármálastöðugleika, sem kemur jafnan út tvisvar á ári. Í formála Más Guðmundssonar Seðlabankastjóra í ritinu segir að á marga mælikvarða hafi dreg- ið úr áhættu varðandi fjármála- stöðugleika á síðastliðnu ári. Megi rekja þá þróun til þess að efna- hagsbatanum hafi miðað áfram, viðnámsþróttur fjármálakerfis- ins hafi eflst og ytri staða þjóðar- búsins batnað. Már varar þó við því að slak- að sé á árvekni gagnvart áhættu í fjármálakerfinu, enda hafi hægst á efnahagsbatanum auk þess sem skuldir heimila og fyrirtækja séu enn miklar í sögulegu tilliti. „Þriðja og veigamesta ástæð- an fyrir nauðsyn áframhald- andi aðgæslu [...] felst í hugsan- legu neikvæðu samspili uppgjöra búa erlendu bankanna, þungrar greiðslubyrði á erlendum skuld- um á næstu árum og losunar fjár- magnshafta.“ Þá segir enn fremur í skýrslunni að vandinn felist í því að miðað við óbreytt gengi nægi fyrirsjáan- legur viðskipta afgangur ekki til þess að fjármagna samnings- bundnar afborganir erlendra lána. Því muni þjóðarbúið ekki skapa nægan gjaldeyri til að losa út krónueignir þrotabúa gömlu bankanna til erlendra kröfuhafa. Loks segir í ritinu að aukinn útflutningur og þjóðhagslegur sparnaður myndu bæta stöðuna þótt slíkt myndi tæpast duga. Því þurfi að endurfjármagna sumar þessara skulda auk þess sem ekki sé hægt að losa eignir þrota- búanna hratt án þess að þær verði skrifaðar verulega niður. | 2 2. maí 2013 | miðvikudagur Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins Föstudagurinn 3. maí ➜Útboð ríkisbréfa Þriðjudagurinn 7. maí ➜Gistinætur og gestakomur á hótelum í mars ➜Vöruskipti við útlönd í apríl ➜Aðalfundur N1 hf. Miðvikudagurinn 8. maí ➜Fasteignamarkaðurinn í mánuðinum eftir landshlutum ➜Efnahagslegar skammtímatölur í maí Mánudagurinn 13. maí ➜Útboð ríkisvíxla Þriðjudagurinn 14. maí ➜Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum Miðvikudagurinn 15. maí ➜Fjármál ríkissjóðs á greiðslugrunni og peningalegar eignir og skuldir ríkissjóðs ➜Útboð ríkisbréfa ➜Útgáfudagur Peningamála og vaxtaákvörðun Fróðleiksmolinn Barneignir og hjúskaparstaða Til eru upplýsingar um fjölda fæðinga á Íslandi eftir hjúskaparstöðu frá árinu 1853. Hagstofa Íslands heldur utan um þessi gögn og gefur þau út árlega. Eins og sést á myndinni er meirihluti barneigna innan hjónabands nokkuð stöðugur frá 1853 og allt fram undir 1940. Frá 1940 til 1960 tvöfaldast fæðingar á Íslandi, aukast árlega úr því að vera um 2.500 í tæp 5.000 árið 1960. Frá 1960 til 2012 fækkar fæðingum innan hjónabands og að sama skapi fjölgar fæðingum utan hjónabands. Árið 1960 var fjöldi fæðinga innan hjónabands um 3.700 en árið 2012 um 1.500. Barneignir, hjúskaparstaða og aldur mæðra frá 1853-2012 http://data.is/1817OCM Barneignir eftir aldri mæðra Sé fjöldi fæðinga barna skoðaður á hverju fimm ára aldursbili óháð hjúskaparstöðu sést á myndinni að fjöldi fæðinga hjá mæðrum yngri en 24 ára var hlutfallslega lágur í byrjun tímbilsins og lengst af. Hann jókst þó hjá þessum aldurshópi í kringum 1950 og til 1980. Meðal- aldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og konur eignast sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur mæðra undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldur hækkað í 26 ár. Algengasti barneignaraldurinn er á bilinu 25 til 29 ára og næstalgengast er að mæður eignist börn á aldrinum 30-34 ára. http://data.is/ZTufsQ 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 1900 1950 2000 1900 1950 2000 ■ Innan 20 ára ■ 20-24 ára ■ 25-29 ára ■ 30-34 ára ■ 35-39 ára ■ 40-44 ára ■ 45-49 ára ■ 50 ára og eldri ■ Alls lifandi fædd börn ■ Börn mæðra í hjónabandi ■ Börn mæðra utan hjónabands Snjóhengjuvandinn mesti áhættuþátturinn Seðlabankinn gaf á þriðjudag út reglulegt rit sitt um fjármála- stöðugleika. Snjóhengjuvandinn er mjög fyrirferðarmikill í ritinu. SÖLVHÓLI Í GÆR Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála stöðugleikasviðs Seðlabankans, kynnti nýju skýrsluna í Seðlabankanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Fram kemur í skýrslu Seðlabankans að viðnámsþróttur innlendra fjármála- fyrirtækja hafi aukist á síðastliðnu ári. Þannig hafi eiginfjárhlutföll viðskipta- bankanna hækkað úr 22% í um 25% á árinu 2012 á sama tíma og vanskil fóru minnkandi. Þá er lausafjárstaða bankanna til skamms tíma sterk, auk þess sem gjaldeyrismisvægi dróst saman á árinu 2012, sem hafði í för með sér að í fyrsta sinn frá bankahruninu starfa allir viðskiptabankarnir án undanþágu frá reglum um gjaldeyrisjöfnuð. Aftur á móti er staða Íbúðalánasjóðs metin veik í skýrslunni og hætta sögð á því að ríkissjóður verði fyrir enn frekara tapi vegna sjóðsins. En frá árinu 2008 er tap sjóðsins um 52 milljarðar króna og hefur ríkissjóður því þurft að leggja honum til um 46 milljarða. STERKARI BANKAR EN ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR VEIKUR Heimild: Hagstofa Íslands Kröfuhafar samþykktu tillögu um endurskipulagningu Skipta: Lífeyrissjóðirnir eignast Skipti Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti. Ilmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum. Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi. Brakandi fersk salöt og ávexti. Við komum til móts við ykkar óskir HVAÐ HENTAR ÞÍNU STARFSFÓLKI? Hjá okkur færðu ljúffengan mat úr fyrsta flokks hráefni. www.kryddogkaviar.is Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.