Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 25

Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 25
FIMMTUDAGUR 2. maí 2013 | SKOÐUN | 25 Nýverið lauk í Reykja- vík ráðstefnu um mál- efni norður slóða þar sem akademískir sérfræð- ingar og ráðamenn land- anna umhverfis norður- heimskautið komu saman til að ræða framtíðarhorf- ur svæðisins. Niðurstöður ráðstefnunnar voru allt í senn sláandi, spennandi og uggvekjandi. Norður- heimskautið er einstakt í hnattrænu samhengi því hingað til hefur það verið svo gott sem óaðgengilegt mönnum og þar af leiðandi er þar að finna ósnortin land- og hafsvæði. Loftslagsbreytingar af manna völdum hafa á örfáum árum umturnað landslagi Norður- heimskautsins og áhugi þjóða heimsins eykst með hverjum bráðnuðum rúmmetra af ís. Ekk- ert er dýrmætara á jörðinni en ósnortið land og tækifærin sem í því felast að vekja von í brjósti sumra og dollaramerki í augum annarra. Undir vinalegu yfir- borði samstöðu samkundunnar í Norðurheimskauts ráðinu horfa heimsveldin tortryggnis augum hvert á annað á meðan hinar minni þjóðir tylla sér á tá og blása út brjóstkassann til að minna á til- vist sína. Stór svæði á norður- heimskautinu eru utan lögsögu og því er til mikils að vinna. Glaðst yfir misnotkun? Þrátt fyrir öll þau áhugaverðu pólit- ísku álitamál og öryggis sjónarmið sem þessar nýtilkomnu að stæður kalla á kom á óvart að meginþráð- ur ráðstefnunnar var annar. Það sem helstu fræðimenn í málefn- um svæðisins vildu fyrst og fremst benda á er að þótt vissulega séu mörg tækifæri falin í bráðnun ís hellunnar sé mun mikilvægara að skoða orsakir þessara aðstæðna og horfast í augu við ískaldan, eða réttara sagt, hlandvolgan veruleikann og spyrja sig: Er hægt að gleðjast yfir því að áratuga misnotkun manna á auð- lindum jarðarinnar hafi nú leyst úr læðingi enn fleiri svæði til að herja á? Norður heimskautinu hefur verið líkt við kanarí- fugl í kolanámu. Áhrif loftslagsbreytinga eru margfölduð á norður heimskautinu og afleiðingar þess fyrir heiminn allan eru þegar orðnar miklar og alvarlegar í formi náttúruhamfara, svo sem þurrka, flóða og storma. Það vita það allir að þegar fuglinn drepst er ekki tímabært að opna flösku og skála heldur sé það merki um að hafa sig á brott og það hratt. Tækifæri Íslendinga En hvað hefur þetta með Íslend- inga að gera? Við erum ein þeirra þjóða sem eiga fast sæti í Norðurheimskauts ráðinu og munum eiga hlutdeild í framtíðar- áformum um svæðið. Okkur hafa einnig opnast möguleikar til nýt- inga náttúru auðlinda þess á kom- andi árum. Mörgum finnst eflaust að nú sé okkar tími kominn til að fá sneið af kökunni og ósanngjarnt að hamla aðkomu okkar vegna umhverfisspjalla annarra. Það er þó mikilvægt að gera sér grein fyrir því að allar athafnir á norð- urheimskautinu eru margfalt flókn- ari en á öðrum stöðum í heiminum og að tæknin til að tryggja öryggi manna og umhverfis er ekki til staðar á Íslandi í dag. Við erum vel menntuð og vel upplýst þjóð og okkur ber skylda til að nálgast málefni norðurheimskautsins af yfir vegun og virðingu. Við megum ekki gleyma okkur í dagdraumum um olíufursta norðursins og við megum ekki láta stjórnmálamenn tæla okkur til lags við vafasamar aðgerðir með loforðum um skjótan gróða. Tækifæri Íslendinga til ham- ingju og hagsældar eru óteljandi og síst háð nýtingu náttúruauðlinda, því líkt og einn fræðimaðurinn benti á er hagsæld þjóða yfirleitt í öfugu hlutfalli við gnægt náttúru- auðlinda þeirra. Þótt það virðist öfugsnúið skýrist það með því að það er töluvert erfiðara að misnota mann vitið en náttúruna. Nú þegar höfum við Íslendingar upplifað hringrás hinnar brostnu blöðru (e. boom-bust cycle) með óaftur- kræfum afleiðingum fyrir náttúr- una og án sýnilegs ávinnings. Lofts- lagsbreytingar af mannavöldum eru einhver mesta ógn sem steðj- ar að mannkyninu fyrr og síðar og um það efast ekki nokkur virtur vísindamaður lengur. Þjóðir heims verða að bregast við með ábyrgum hætti áður en það verður of seint – við getum ekki bara sest niður og spilað á fiðlu á meðan jörðin brenn- ur. Það er nú einu sinni þannig að við þurfum á jörðinni að halda, en hún þarf hins vegar ekki á okkur að halda. Kanarífugl í andnauð UMHVERFISMÁL Sóley Kaldal áhættu- og öryggis- verkfræðingur og doktorsnemi í öryggismálum norður- heimskautsins Stærst i skemmt istaður í heimi! Skiptu gamla pungnum út fyrir nýjan ofurpung! 10 X hra ðari en 3G pu ngur! Þjónustusamningur í áskrift hjá Nova er til 6 mánaða, greitt með kreditkorti. Nánari upplýsingar á nova.is. Fyrsti mánuðurinn á 0 kr. í áskrift, skv. þeirri leið sem er valin, en í frelsi 1 GB. Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter 4G pungur 6.990 kr. með þjónustusamningi í áskrift. Fullt verð í áskrift og frelsi: 12.990 kr. 4G pung er hægt að nota á 4G og 3G þjónustusvæði Nova. 1 GB 1.190 kr. 15 GB 3.990 kr. Fyrsti mánuðurinn á 0 kr.! 4G netþjónusta ➜ Ekkert er dýrmætara á jörðinni en ósnortið land og tækifærin sem í því felast að vekja von í brjósti sumra og dollaramerki í augum annarra. www.saft.is KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ SKOÐA EFNI Á NETINU MEÐ GAGNRÝNUM HÆTTI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.