Fréttablaðið - 02.05.2013, Síða 48

Fréttablaðið - 02.05.2013, Síða 48
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður og Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður Hin GUÐRÚN HÖGNADÓTTIR hliðin Til lukku með nýja ábyrgð á okkar sameiginlega vinnustað: Íslandi ehf. Mig langar að fylgja ykkur úr hlaði með nokkrum hvatningarorðum í þeirri góðu trú að næstu fjögur ár verði ár farsældar og festu, tímabil sem erlendir þjóðarleiðtogar geti tekið til fyrirmyndar í sinni endurreisn. Sem forgöngumenn veit ég að þið þekkið mikilvægi framtíðarsýnar, kjarks og þrautseigju í starfi ykkar. Og sem leik- menn veit ég að hraði breytinga og kröfur samtímans snerta ykkur öll. Því fylgja hér á eftir nokkur heilræði. Forgangsraðið. Þeir leiðtogar sem setja 2 til 3 mál í forgang klára almennt 2 til 3 mál. Þeir sem eru með 5 til 7 markmið koma kannski einu máli næstum því í höfn. Því fleiri markmið, þeim mun minni líkur á árangri. Hafið kjarkinn og agann til að einblína á fá en afgerandi mál í einu. Og klárið þau. Heimilin. Höftin. Hengjan. Annað kemur í kjölfar slíkra góðra verka. Hugsið. Gagnrýnin hugsun er for- senda framfara. Leitið þekkingar og ráða út fyrir ykkar þrönga hring. Mátið ákvarðanir ykkar á aðra en spegil- myndir ykkar sjálfra. Hlustið. Stjórnmálaleiðtogar fortíðar fengu þjálfun í ræðumennsku. Áhrifa- menn framtíðar fá þjálfun í hlustun. Sönn forysta byggir á virðingu fyrir fólki. Skilningi á ólíkum skoðunum. Guð gaf okkur tvö eyru og einn munn. Talið minna. Hlustið meira. Látið verkin tala. Eins og segir í Háva- málum: Svo nýsist fróðra hver fyrir. Hreinsið til. Kveðjið gamlar erjur og syndir. Biðjist afsökunar og fyrirgefið, ef þess þarf. Frelsið ykkur frá hags- munum forvera ykkar – pólitískum, landfræðilegum og fjárhagslegum. Málið tæra mynd af því samfélagi sem við viljum færa barnabörnum okkar og leyfið ekki frændhygli, græðgi eða þröngsýni að menga þá mynd. Lærið. Af mistökum ykkar. Af mis- tökum annarra. Gerið upp hug ykkar um hvert ykkar framlag til framtíðar- landsins verður. Og lærum saman á leiðinni. Virkið okkur. Þið eigið 322.930 sam- starfsmenn sem eru tilbúnir að bretta upp ermar í þágu þjóðar. Haldið samtalinu gangandi á veraldarvefnum, á kaffihúsunum, í háskólunum. Leyfið okkur að taka með ykkur ábyrgð á stóru málunum með könnunum og þjóðaratkvæðagreiðslu. Finnið nýtt fólk til mikilvægra verka. Það leynist snillingur á hverju götuhorni. Nærist. Þetta er harður heimur. Gleymið ekki lýsinu. Svefninum. Grænkálinu. Góðum bókum. Lélegum bíómyndum. Göngutúrum. Mörgum stundum í faðmi fjölskyldunnar. Tengið ykkur reglulega við af hverju þið tókuð að ykkur þetta verkefni. Og virkið þá orku til góðra verka. Ég óska ykkur velfarnaðar á áfram- haldandi sameiginlegri vegferð okkar allra! Kveðja, Guðrún. Elsku nýju þjóðarleiðtogar Kr. 89.900,- SHARP SJÓÐSVÉL XE-A307 Kr. 54.900,- SHARP SJÓÐSVÉL XE-A113B vöruflokkar32 t að 200 PLU númerAll frænn innri strimill 3000 Ra álfvirk dagsetning og tímiSj taprentunHi enskur strimillÍsl frænn innri strimillRa ög auðveld í forritunMj 99 vöruflokkar. Allt að 10,000 PLU númer. SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC Sjálfvirk dagsetning og tími Hitaprentun Íslenskur strimill Mjög auðveld í forritun Kr. 69.900,- 99 vöruflokkar Allt að 2000 PLU númer Rafrænn innri strimill 9000 línur Stór LCD skjár SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC Sjálfvirk dagsetning og tími Hitaprentun Íslenskur strimill SHARP SJÓÐSVÉL XE-A207B línur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.